Fjarðarpósturinn - 16.01.2014, Síða 3
www.fjardarposturinn.is 3 Fimmtudagur 16. janúar 2014
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
– B Í L AV E R K S T Æ Ð I – VA R A h L u T I R o g V I Ð g E R Ð I R –
FR
U
M
www.bilaraf.is bilaraf@bilaraf.is Bílaraf ehf. Strandgata 75 220 Hafnarfjörður
Hemlahlut ir, kúpl ingar, startarar, al ternatorar, rafgeymar, bi lanagreiningar o.f l . o.f l .
Sími 564 0400
Íþróttaskóli FH er hafinn!
Kennarar við skólann:
Eva Þórunn Vignisdóttir • Daníel Andrésson • Sigurður Víðisson • Unnur Hjartardóttir
Nánari upplýsingar gefur
Eva Þórunn í síma 695 7565 efti kl. 17 alla virka daga.
Veturinn 2013-2014
- fyrir krakka 2 til 5 ára
2-3 ára börn kl . 09.30 - 10.30
4-5 ára börn kl . 10.30 - 11.30
Fyrir skömmu færði bæjar stjóri,
Guðrún Ágústa Guð munds dóttir,
starfsmönnum Hafn ar borgar og
leikskólans Vest ur kots viðurkenn
ingarskjal, súkkulaðiköku og kær
ar þakkir fyrir vel unnin störf.
Vesturkot fékk viður kenn ingu
fyrir að skapa skólanum já kvæða
ímynd með öflugu innra starfi.
Sama dag fékk Hafn ar borg við
ur kenn ingu fyrir framúr skar andi
fram lag til menningarlífs i
Hafnar firði.
Bæjrstjóri segir það mikil vægt
að fá tækifæri til að þakka fyrir
það sem vel er gert og því hafi sá
siður verið tekinn upp árið 2012
að veita viður kenn ingu til stofn
anna og deilda bæj ar ins og hafi
það verið gert reglulega síðan.
Særún Þorláksdóttir leikskólastjóri, Guðrún Ágústa Guðmunds dótt ir
bæjarstjóri og Linda Hrönn Þórisdóttir aðtoðarleikskólastjóri.
Fengu viðurkenningu
Hún er ömurleg aðkoman að
leikvellinum í gömlu „Ljóna
gryfjunni“ við enda Klapparholts
og neðan við Eyrarholt á
Hvaleyrarholtinu. Íbúar hafa
notað leikvöllinn til að skjóta
upp flugeldum en hafa látið hjá
líða að hreinsa upp eftir sig.
Varla geta íbúar búist við því
að starfsmenn bæjarins komi til
að taka til eftir íbúana, ekki síst
þegar nóg er að gera við að
hálkuverja göngustíga og götur.
Að vísu hefur heldur ekki verið
sandað við leikvöllinn og því
varhugavert að fara þar um.
Á leikvellinum eru líka brotnar
bjórflöskur og drasl af ýmsu tagi
sem íbúar hafa skilið eftir eða
hefur fokið þangað.
Oft má sjá flugeldadrasl langt
fram á sumar í bænum og það
mátti sjá t.d. á Hamrinum, stolti
Hafnfirðinga. Varla geta
bæjarbúar verið stoltir af því að
skilja eftir flugeldadrasl rétt hjá
heimilum sínum og eru þeir
hvattir til að hreinsa til í kringum
heimili sín.
Leikvöllurinn í „Ljónagryfjunni“ er bæði flugháll og sóðalegur.
Léleg umgengni íbúa á leikvelli
Hafa ekki hirt um að hreinsa flugeldadót upp eftir sig
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n