Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 13.02.2014, Blaðsíða 2

Fjarðarpósturinn - 13.02.2014, Blaðsíða 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 13. febrúar 2014 Sunnudagurinn 16. febrúar Messa kl. 11 Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Guðmundur Sigurðsson. Félagar úr Barbörukórnum syngja. Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjón Arnórs og Önnu Elísu. Alla miðvikudaga Morgunmessa kl. 8.15 www.hafnarfjardarkirkja.is. HAFNARFJARÐARKIRKJA 1914 - 2014 Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380 Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf. Ritstjóri: Guðni Gíslason Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson. Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193 www.fjardarposturinn.is www.facebook.com/fjardarposturinn Inger Steinsson Inger Rós Ólafsdóttir Ólafur Örn Pétursson Útfararþjónusta Vönduð og persónuleg þjónusta Strandgata 43 · Sími: 551 7080 · 691 0919 · athofn@athofn.is · www.athofn.is RAGNAR SCHEVING ÚTFARARÞJÓNUSTA ÓLÖF HELGADÓTTIR ÚTFARARÞJÓNUSTA HÁLFDÁN HÁLFDÁNARSON ÚTFARARSTJÓRI FRÍMANN ANDRÉSSON ÚTFARARSTJÓRI FJÖLSMÍÐ LÍKKISTUVINNUSTOFA Síðan 1993 Stapahraun 5 220 Hafnarfjörður www.uth.is uth@simnet.is 565-9775 Hafnarfjörður státar af öflugu félagslífi. Þar eru mest áberandi stóru íþróttafélögin með FH og Hauka í fararbroddi. Hið öfluga hestamannafélag Sörli fagnaði 70 ára afmæli sínu um daginn og ekki má gleyma golfklúbbnum Keili sem státar af flottasta golfvelli á landinu og Björk á glæsilega sögu í fimleikum. Við erum líka með öflug og gamalgróin félög eins og Skátafélagið Hraunbúa, enn eldri karlakór sem fagnar 102 ára afmæli í næstu viku. Við erum með öflug kvenfélög, stjórnmálafélög og önnur félög sem hafa gert þennan bæ enn betri að búa í. Sum félaganna hafa lagt mikið til samfélagsins í formi styrkja og gjafa með og án stuðnings almennings á meðan önnur hafa lagt mikið til samfélagsins í formi uppbyggilegs starfa á æsku­, íþrótta, og menningarsviði. Flest þeirra félaga hafa notið góðra styrkja frá bæjarfélaginu og hafa þeir verið nauðsynlegir svo hægt væri að bjóða upp á hið góða starf sem þar fer fram. Á undanförnum árum hefur verið gerð aukin krafa um gagnsæja stjórnsýslu og faglegt mat á umsóknum og skynsamlega útdeilingu skattfés almennings. Margt hefur unnist í þessum efnum þó við eigum enn langt í land að afgreiðslur séu hafnar yfir gagnrýni. Afgreiðsla bæjarráðs á verulegum uppkaupum á eignum Hauka til að bjarga þeim úr fjárhagsvanda er gott dæmi um að við eigum enn langt í land í gangsærri stjórnsýslu. Hafnarfjarðarbær vildi ekki upplýsa um gögn sem notuð voru til grundvallar ákvörðunar í málinu en Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hrakti öll rök Hafnarfjarðarbæjar og gerði bænum skylt að afhenda gögnin. Málið snérist ekki um fjármál Haukanna heldur hvernig stjórnsýslan meðhöndlar slík mál. Að menn skuli þurfa að fara í fjármálalega loftfimleika til að láta málið líta öðruvísi út en það er í rauninni, er ekki í anda opinnar, gegnsærrar og heiðarlegrar stjórnsýslu. Eflaust hafa mörg félög náð á einhverjum tímapunkti að smjaðra sig inn á björgunarpakka frá bæjaryfirvöldum og auðvitað má deila um ýmsar framkvæmdir og spyrja sig hvort eðlilegt sé að framkvæmt sé fyrir skattfé íbúanna. Verst er að skussunum er oft hampað og þeim félögum og deildum sem hafa allt sitt á hreinu er á stundum refsað. Í dag höfum við ekki efni á pólitískum loforðum. Fjárhagur Hafnar­ fjarðarbæjar verður þröngur áfram og við vitum ekkert hvernig endurfjármögnun á skuldum, sem nú eru við FMS Wertmanagement og fellur í gjalddaga í lok næsta árs, fer. Bæjarbúar eiga heimtingu á að sparlega sé farið með almannafé, hvort sem nota á það til að kaupa skautasvell eða til að styrkja fólk úti í bæ til að reka vefsíður. Guðni Gíslason ritstjóri. leiðarinn 35 ár Stolt að þjóna ykkur Útfararskreytingar kransar, altarisvendir, kistuskreytingar, hjörtu Bæjarhrauni 26 Opið til kl. 21 öll kvöld Símar 555 0202 og 555 3848 www.blomabudin.is Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380 Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf. Ritstjóri: Guðni Gíslason Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson. Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193 www.fjardarposturinn.is www.facebook.com/fjardarposturinn Víðistaðakirkja Sunnudaginn 16. febrúar Messa kl. 11.00 Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur. Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson Sunnudagaskóli kl. 11.00 Fjölbreytt dagskrá fyrir börn á öllum aldri, fer fram uppi í suðursal kirkjunnar. Kyrrðarstundir á miðvikudögum kl. 12.00 súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir. www.vidistadakirkja.is Sunnudagur 16. febrúar Sunnudagaskóli kl. 11 Leikhúsið Tíu fingur sýnir leikritið um Mjallhvíti. Gospelmessa kl. 20 miðvikudagur 19. febrúar Starf eldri borgara Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur les úr verkum sínum. www.astjarnarkirkja.is Ástjarnarkirkja Kirkjuvöllum 1 Sunnudagurinn 16. febrúar Sunnudagaskóli kl. 11 Kvöldguðsþjónusta kl. 20 Loksins klukknahljómur – saga Fríkirkjunnar í 100 ár Bókin er seld í safnaðarheimilinu, Blómabúðinni Burkna, Fjarðarkaupum, Hár-Ellý og í Kirkjuhúsinu. Kostar 4.900 kr. www.frikirkja.is Hvar auglýsir þú? Fer inn á öll heimili og fyrirtæki í Hafnarfirði

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.