Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 13.02.2014, Blaðsíða 4

Fjarðarpósturinn - 13.02.2014, Blaðsíða 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 13. febrúar 2014 Fjarðarpósturinn Vettvangur fyrir skoðanaskipti í Hafnarfirði Smelltu á LIKE á www.facebook.com/fjardarposturinnÞrengslin í Hraunvallaskóla Það er ánægjulegt hversu börnum á Völlum fer fjölgandi og er til vitnis um fjölgun íbúa á svæðinu. Hverfið býður uppá mikla möguleika til íþrótta og útivistar og almenn ánægja íbúa sem búa í hverfinu eru bestu með mælin. Vaxtaverkir fylgja gjarnan nýjum hverfum en þegar hverfi eru hönnuð er stærð skóla miðuð við hverfi í jafnvægi, þ.e. meðalfjöldi barna í fjölskyldu og því mynd ast yfirleitt tíma bundin þrengsli í grunn­ og leikskólum meðan hverfi eru að byggjast upp. Ein leið til að bregðast við tíma­ bundn um þrengslum sem mynd­ ast á vaxtarskeiði hverfisins er að koma fyrir lausum stofum á skóla lóðum sem brúa þá bilið fyrir viðkomandi skóla uns jafn­ vægi er náð. Nú hefur fræðsluráð ákveðið að leysa húsnæðismál Hraun­ vallaskóla með þessum hætti og koma fyrir þremur lausum stofum við skólann til viðbótar, sem nýtast munu efri bekkjum skólans. Tillagan er að mestu leyti samhljóða fram kominni tillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem lýsa ánægju sinni með það að sátt hafi náðst um hagkvæma lausn á húsnæðisvanda Hraunvallaskóla. Með þessari ákvörð un er fræðsluráð að hverfa frá fyrri tillögum sem með al annars fólu í sér tilflutning á leik skóla hluta skólans og mætt hafa mik illi andstöðu meðal for eldra og fagfólks. 5 ára deild óbreytt á Hvammi leikskóla Ennfremur er horfið frá tillögu um flutning á lausum stofum við Leikskólann að Hvammi á lóð leikskólans að Hamravöllum sem einnig mætti mikilli and stöðu foreldra og starfsfólks við leiksskólann. Fulltrúar Sjálf­ stæð isflokksins í fræðsluráði hafa á undanförnum mánuðum flutt tillögur um lausnir á þrengsl um í Hraunvallaskóla sem miðuðu að því að nýta betur það skólahúsnæði sem bærinn hefur yfir að ráða og ennfremur að halda nýfjárfestingum í skóla­ húsnæði í lágmarki til þess að bærinn geti staðið við skuld­ bindingar sínar um niðurgreiðslu skulda og sé ennfremur í stakk búinn til þess að hlúa betur að innra starfi skólans en eins og allir vita er ekki hægt að nota sömu krónurnar tvisvar og því mikil vægt að forgangsraða þeim fjármunum sem eru til ráð­ stöfunar með ábyrgum hætti. Höfundur er bæjarfulltrúi. Helga Ingólfsdóttir Nú styttist í að flokksfélagar og stuðningsmenn Samfylking­ arinnar taki afstöðu til þess hvaða einstaklingar skipi lista flokks ins í komandi kosningum. Sá hópur sem hefur boðið sig fram er öflugur og fjöl breyttur og ég hef mikla trú á því að við getum gert góða hluti fyrir bæinn okkar. Málin sem varða okk ur bæjarbúa eru fjöl­ mörg og mikilvægt að við látum okkur þau varða og vinnum að þeim í sam einingu. Við viljum að bær­ inn okkar verði áfram eftirsókn­ ar verður staður til búsetu og at vinnureksturs, staður þar sem virðing er borin fyrir umhverfi, menntun og menn ingu. Ég er þeirrar skoð unar að þetta gerum við með því að standa vörð um velferðar kerfið og vinna gegn ójöfnuði í samfélaginu. Það er einlæg trú mín að okkur í Sam­ fylk ingunni sé best treystandi til að standa vel að þessum mál um. Það sem fyrir okkur liggur á komandi kjörtímabili er að halda áfram vel utan um fjármál og rekstur. Fjárhagsstaðan hef ur verið erfið en þó hefur tekist að snúa vörn í sókn og nú þarf að sýna aðhald og ráðdeild. En um leið og halda þarf vel utan um budduna og ráðstafa fjár­ munum skynsamlega þá þarf að forgangs­ raða, og að öðrum mála flokkum ólöstuð­ um tel ég að skólamál og húsnæðis mál hljóti að vera framarlega í forgangs röðinni. Kallað hefur verið eftir endurnýjun á vett vangi stjórn mál­ anna og nýtt fólk stig­ ið fram á sjónarsviðið. Ég er í hópi þessa fólks og ástæð an fyrir því að ég stíg fram er sú að ég er jafnaðar mann eskja og vil vinna að mál efnum bæjarins með gildi jafn að arstefnunnar að leiðarljósi. Þess vegna óska ég eftir stuðn ingi í 2.­3. sæti í flokksvalinu um næstu helgi. Ég hvet alla flokksfélaga og stuðningsmenn Samfylk ing­ arinnar til að taka þátt í flokks­ valinu og hafa þannig áhrif á þann lista sem boðinn verður fram í komandi kosningum. Einungis þannig tryggjum við að raddir allra heyrist. Höfundur er framhaldsskóla­ kennari býður sig fram á lista Samfylkingarinnar. Adda María Jóhannsdóttir Silfur er nýr veitingastaður í Firði Bistro með kaffi, kökur og mat allan daginn Þau Berglind Goldstein og Davíð Axel Gunnlaugsson hafa opnað nýjan veitingastað, Silfur, þar sem Café Aroma var áður. Staðurinn er hinn glæsilegasti á góðum útsýnisstað í Firði og staðurinn hefur verið tekinn í gegn og snyrtur. Þetta er bistro, kaffihús með mat. Þrírétta hádegisverður og steikur á kvöldin og ýmislegt í boði á matseðlinum. Boðið er upp á glæsilegar tertur og kaffi. Berglind segir að þau setji metnað í góðan mat og góða þjónustu í fallegu umhverfi. Verðið á að vera þannig að venjulegt fólk geti leyft sér að fara út að borða. Segir hún viðtökurnar hafa verið mjög góðar og fólk streymdi inn um leið og opnað var. Davíð Axel Gunnlaugsson og Berglind Goldstein. Góður staður fyrir herramenn! Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Það skiptir máli hverjir stjórna Stjórnmálahreyfingar byggja á mismunandi gildum Er það virkilega svo að ekki skipti máli hvaða stjórnmála­ flokk ar séu við völd, þeir séu allir „sama tóbakið“. Skýr dæmi um að svo er ekki komu í ljós við af ­ greiðslu fjár hags áætl­ unar bæjarsjóðs fyrir 2014. Fyrst má nefna að að Sjálfstæðismenn vildu selja hlut okkar í veitu­ fyrirtækinu HS­Veitur í hendur fjárfesta. Við í meirihluta Samfylk­ ingar og VG erum al ger lega andsnúinn slíkri sölu. Reksturinn byggir á einkaleyfum og engin samkeppni er til staðar. Slík fyrirtæki viljum við hafa í al mannaeigu. Fyrirtækið er fjár­ hagslega mjög traust og rekið með hagnaði. Annað dæmi um hug mynda­ fræðilegan mun lýtur að rekstri skóla. Þar viljum við jafnaðar­ menn leggja áherslu á að þróa okkar skólastofnanir fram á veg eftir aðhald síðustu ára. Verja á rúmum 150 milljónum króna í ár til að efla upplýsingatækni, styðja við nýsköpun, fjölga kennslu stundum og auka stuðn­ ing við nýbúa. Um þetta var ekki ágreiningur en bæjarfulltrúar Sjálfstæðis­ flokksins lögðu til að bæjar­ yfirvöld hefðu frumkvæði að því að fela einkaaðilum stærri hlut í skólarekstri bæjarins. Þarna hræða sporin. Á kjörtímabilinu 1998­2002 þegar Sjálf­ stæðis flokkur og Fram­ sókn fóru með völdin var farin leið einka­ fram kvæmdar í skóla­ mál um. Hún reyndist dýrkeypt. Tillagan fékk því ekki brautargengi. Við sem myndum meiri hlutann í bæjar­ stjórn erum ekki and­ snúin einkafram taki, síður en svo. Við leggj um kapp á að skapa aðstæður þar sem fjölbreytt og þróttmikið at vinnu­ líf fær notið sín. En þegar kemur að rekstri grunnþjónustu þarf að stíga varlega til jarðar Í Hafnarfirði starfa þrír einka­ reknir leikskólar og einn grunnskóli, góðar stofnanir sem ánægja ríkir með. En frumkvæðið að stofnun þeirra kom frá frum­ kvöðlum sem höfðu eitthvað nýtt fram að færa sem eykur fjölbreytni og val foreldra. Það er mikill munur á þessu eða því að beinlínis stefna að því að koma rekstri núverandi skólastofnana bæjarins í hendur einkaaðila. Höfundur er bæjarfulltrúi og frambjóðandi í flokksvali Samfylkingarinnar. Eyjólfur Þór Sæmundsson Gaaraleikhúsinu 565 5900 midi.is gaaraleikhusid.is Sýningar Sunnudagur 23. febrúar kl. 20.00 Sunnudagur 2. mars kl. 20.00 Sunnudagur 9. mars kl. 20.00 Sunnudagur 16. mars kl. 20.00 Miða- pantanir Það er alltaf gaman í ÓMAR ÆSKUNNAR Sögur af sérstæðu fólki einstök kvöldstund með Ómari Ragnarssyni Hafðu áhrif – taktu þátt í flokksvali Samfylkingarinnar

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.