Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 16.04.2014, Blaðsíða 4

Fjarðarpósturinn - 16.04.2014, Blaðsíða 4
4 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 16. apríl 2014 www.n1.is facebook.com/enneinn Opið mánudaga-föstudaga kl. 08-18 laugardaga kl. 09-13 www.n1.is www.dekk.is  Hjólbarðaþjónusta N1: Bíldshöfða 440-1318 Fellsmúla 440-1322 Réttarhálsi 440-1326 Ægissíðu 440-1320 Langatanga Mosfellsbæ 440-1378 Reykjavíkurvegi Hafnarfirði 440-1374 Grænásbraut Reykjanesbæ 440-1372 Dalbraut Akranesi 440-1394 • Gott torfærudekk • Milligróft og gripsterkt við erfiðustu aðstæður • Sjálfhreinsandi munstur hindrar grjót í að gata dekkið • Einn sterkasti hjólbarðinn á markaðnum í dag • Nýtt alhliða jeppadekk frá Cooper  • Ný gúmmíblanda sem eykur grip í bleytu • Nýstárlegt munstur sem bætir aksturseiginleika bílsins • Frábært heilsársdekk með framúr- skarandi endingu og virkar við nánast allar aðstæður Cooper Discoverer ST MAXX Cooper Discoverer AT3 Jeppaeigendur þekkja að við íslenskar aðstæður veltur mikið á að hjólbarðarnir séu af bestu gerð. Láttu dekkin frá Cooper draga fram það besta í jeppanum þínum. Cooper undir jeppannÍSLE N SK A /SIA .IS E N N 68624 04/14 Fjölmenni í afmælishlaupi Hauka Knattspyrnufélagið Haukar fagnaði 83 ára afmæli sl. laugardag. Skokkhópur Hauka hafði að venju veg og vanda að afmælishlaupinu þar sem öllum aldurshópum var boðið að hlaupa sér og öðrum til gleði og ánægju. „Á hverju ári leikum við okkur með aldur félagsins þegar hlaupalengdir eru ákveðnar. Félagið er sem fyrr segir 83 ára og því urðu hlaupavegalengdirnar þetta árið 8,3 km ­ 3,8km – 830 m og 380 m,“ að sögn Antons Magnússonar formanns skokk­ hópsins. Metþátttaka var í hlaupinu og hátt í 200 manns á öllum aldri mætti með bros á vör. Hópurinn byrjaði á því að syngja afmælis­ sönginn til heiðurs hinum bráð­ unga öldungi en svo skelltu allir sér í hlaup og völdu vega lengd eftir aldri og getu. Þeir yngstu enn í barnavögnum en aldursfor­ setinn kominn vel á áttræðis­ aldurinn. „Það er fátt dásamlegra en að sjá allar þessar kynslóðir sameinast svona á jákvæðan hátt,“ segir Anton. Allir af yngri kynslóðinni voru leystir út með páskaglaðningi svo allir fóru glaðir frá þessu velheppnaða hlaupi. Vorveður var í lofti og allir í sólskinsskapi. Kvöldið fyrir sumardaginn fyrsta! Nú er vetrarstarfi félagsins að ljúka og því mun hið árlega lokakvöld okkar verða haldið í félagsheimili SVH að Flatahrauni 29, miðvikudagskvöldið 23. apríl. Auðvitað verður svo happadrættið á sínum stað og fleira skemmtilegt. Allir velkomnir, og „ félagar“ endilega takið með ykkur gesti. Húsið opnað kl. 20. Fræðslu- og skemmtinefnd Stangaveiðifélags Hafnarfjarðar Eitt af elstu húsunum við Vitastíg hefur staðið autt síðustu ár og er mjög illa farið. Hafa íbúar í nágrenninu töluverðar áhyggjur og segjast óttast að af húsinu fjúki í vondum veðrum. Kofi við veginn er enn ig að niðurlotum kominn en viðhald hefur ekkert verið að sögn íbú­ anna. Húsið er orðið hrörlegt, málning flögnuð af húsinu, gluggar eru ónýtir, tré í garði eru brotin og íbúar óhressir með að hafa svona hús í hjarta bæjarins án þess að nokkuð sé að gert. Miðbæjarhús til ama Hefur verið autt síðustu ár Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.