Fjarðarpósturinn - 16.04.2014, Qupperneq 8
8 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 16. apríl 2014
FRAMTÍÐARSTARF
FMS Hafnarfirði óskar
eftir umsóknum í fullt starf.
Lyftarapróf æskilegt en ekki
nauðsynlegt.
Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknir sendist á kristjan@fms.is
Innritun
fyrir skólaárið 2014-2015
Forskóli
Innritun fyrir nemendur fædda 2007.
Suzukinám
Innritun fyrir nemendur í fiðlu- og sellónám fædda 2009.
Söngnám
Á næsta skólaári verður hægt að stunda bæði almennt söngnám og rytmískt söngnám.
– Nýjung –
Nemendum gefst nú tækifæri á 3ja mánaða söngnámi til reynslu
og til að kanna hvort það henti þeim.
Innritun fer fram á hafnarfjordur.is
– íbúagátt – mínar síður – umsóknir – tónlistarskóli dagana 28. apríl til 9. maí.
Skólastjóri
PANTAÐU
Á NETINU
OG FÁÐU
AFSLÁTT
REYKJAVÍKURVEGI 60 – SÍMI 561 0562
Sigraði í stærðfræði
Pétur Hrafn í 10. bekk Víðistaðaskóla
Pétur Hrafn Friðriksson
nemandi í 10. SK í Víðistaða
skóla sigraði í stærðfræðikeppni
grunnskólanema. Keppnin var
haldin í Borgarholtsskóla 14.
mars sl. fyrir nemendur í 8., 9.,
og 10. bekk í Grafarvogi, Árbæ,
Norðlingaholti, Grafarholti og
Mosfellsbæ og tóku um 160
nemendur þátt í keppninni. Pétur
var eini Hafnfirðingurinn sem
tók þátt og var kynntur sem slík
ur á verðlaunaafhendingunni, en
hann sigraði í flokki 10. bekkjar.
„Við í Víðistaðaskóla fengum
tækifæri til að taka þátt á þessu
skólaári fyrir 12 nemendur en
keppnin er svipuð þeirri sem
haldin var í Flensborg árlega
fyrir grunnskólanemendur. Von
andi heldur samstarfið áfram svo
við getum sent áhugasama nem
endur í keppni sem þessa,“ segir
Sólveig Kristjánsdóttir stærð
fræðikennari í Víðistaðaskóla.
Pétur Hrafn ásamt kennara sínum Sólveigu Kristjánsdóttur.
Fimm Íslandsmeistarar í badminton
Badmintonfélag Hafnarfjarðar
hélt í samvinnu við Badminton
samband Íslands stórglæsilegt
Meistaramót Íslands í badminton
í Íþróttahúsinu við Strandgötu
um þarliðna helgi. Árangur
BHinga var líka glæsilegur því
fimm BHingar urðu Íslands
meistarar.
BHingurinn Erla Björg Haf
steinsdóttir sigraði í tvíliðaleik
kvenna í meistaraflokki ásamt
Tinnu Helgadóttur úr TBR. Titill
Erlu er annar Íslandsmeistaratitill
félagsins í efsta flokki í badmin
ton frá upphafi en félagið fagnar
55 ára afmæli á þessu ári. Þær
Erla og Tinna sigruðu einnig árið
2009 á 50 ára afmæli félagsins
og því óhætt að segja að þær
veiti veglegar afmælisgjafir.
Einnig var keppt um Íslands
meistaratitla í A og B flokki á
mótinu og þar stóðu BHingar
sig líka vel. Róbert Ingi Huldar s
son vann tvöfalt í Bflokki og
vann auk þess ein silfurverðlaun.
Hann vann einliðaleikinn, var í
öðru sæti í tvíliðaleik með
Sigurði Eðvarði Ólafssyni og
sigr aði í tvenndarleik með Ingi
björgu Sóleyju Einarsdóttur.
Ingi björg Sóley og Eyrún Björg
Guðjónsdóttir voru líka í öðru
sæti í tvíliðaleik í Bflokki
kvenna.
Í A flokki var hreinn BH
úrslitaleikur í tvíliðaleik kvenna
þar sem Anna Lilja Sigurðardóttir
og Irena Ásdís Óskarsdóttir
stóðu uppi sem sigurvegarar en í
öðru sæti voru þær Hrefna Rós
Matt híasdóttir og Sigrún María
Valsdóttir. Sigrún María vann
einnig silfurverðlaun í einliða
leik.Róbert Ingi, Ingivbjörg Sóley, Anna Lilja og Irena Ásdís.
Erla Björg Hafsteinsdóttir.
Happdrætti
4. fl. FH stelpna
Dregið hefur verið í happ
drætti 4. flokks FH stelpna og
eru vinningsnúmer eftirfarandi:
27, 61, 73, 77, 94, 96, 102,
122, 141, 154, 220, 249, 259,
261, 309, 316, 320, 361, 371,
433, 441, 478, 483, 486, 494,
502, 514, 520, 549, 559, 631,
632, 654, 662, 665, 677, 680.
Foreldrafélag 4. fl. FH stelpna
þakkar stuðninginn.
Sóðaskapur
Umgengni við Hringbraut!
Lj
ós
m
.:
H
el
gi
B
jö
rn
ss
on
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n