Fjarðarpósturinn - 16.04.2014, Síða 12
12 www.fjardarposturinn.is Miðvikudagur 16. apríl 2014
Stofnað 1982
Dalshrauni 24 • Sími 555 4855
steinmark@steinmark.is
Reikningar • Nafnspjöld
Umslög • Bæklingar
Fréttabréf
Bréfsefni
Og fleira
30 ára
Stofnuð 1983
styrkir barna- og unglingastarf SH
Sundstund
gefur gull í mund
Suðurhrauni 2b | 210 Garðabær | Sími: 590 5290 | www.klettur.is
M A D E T O F E E L G O O D.
BJÓÐUM DEKK FRÁ:
HJÓLBARÐAVERKSTÆÐI
VIÐ HÖLDUM UPP Á
1 ÁRS AFMÆLI
VERÐUM MEÐ TILBOÐ Í HVERRI VIKU!
Næsta blað
föstudag 25. apríl
Eftir páska kemur Fjarðar
pósturinn út föstudaginn 25.
apríl en sumar dagurinn fyrsti er
á fimmtu deg inum.
Síðasta blað í apríl kemur svo
út miðvikudaginn 30. apríl en 1.
maí er á fimmtudeginum.
Mikilvægt er að senda inn efni og
auglýsingar tímanlega fyrir þessi
blöð. Fyrirspurnir má senda á
auglysingar@fjardarposturinn.is.
Auglýsingasími: 565 3066.
Þú finnur Fjarðarpóstinn líka á
Facebook!
Rekstrarformið í Höfn gekk í raun aldrei upp
Sjálfseignarstofnuninni verður slitið og íbúarnir verða þinglýstir eigendur
Öldrunarmiðstöðin Höfn sem
byggði og rekur 64 íbúiðir í
tveimur húsum við Sólvangsveg
er að þrotum komin. Höfn er
sjálfseignarstofnun stofnuð 1991
en skipulagsskrá var staðfest af
dómsmálaráðuneyti í október
1998. Að Höfn standa eftirtaldir
aðilar:
Hafnarfjarðarbær
Sólvangur, sjúkrahús
Félag eldri borgara í Hafnarfirði
Bandalag kvenna Hafnarfirði
Verkalýðsfélagið Hlíf
Sjómannafélag Hafnarfjarðar
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
Skátafélagið Hraunbúar
Lionsklúbbur Hafnarfjarðar
Lionsklúbburinn Ásbjörn
Lionsklúbburinnn Kaldá
Kiwanisklúbburinn Hraunborg
Kiwanisklúbburinn Eldborg.
Verkakvennafélagið Framtíðin
var einnig stofnaðili en félagið
sameinaðist Verkalýðsfélaginu
Hlíf.
Fulltrúar þessarar aðila sitja í
fulltrúaráði sem hefur það
hlutverk að fylgjast með rekstri
stofnunarinnar og vera tengiliður
milli stjórnar hennar og stofn
enda. Í stjórn sita 5 menn, Gylfi
Ingvarsson formaður, Linda
Bald ursdóttir varaformaður, Geir
Jónsson, Gunnar Hólmgeirsson
og Kristín Gunnbjörnsdóttir.
Aðalfundur haldinn of seint
Aðalfundur 2013 var ekki hald
inn fyrr en í desember og sýndu
reikningar ársins 2012, sem þar
voru lagðir fram, mjög alvarlega
stöðu Hafnar. Var tap ársins 2012
22 milljónir kr. þrátt fyrir bók
færðan 22,5 millj. kr. arf. Skuldir
umfram eignir í lok árs 2012 voru
tæpar 80 millj. kr. og handbært fé
ekkert. Var á fund inum samþykkt
tillaga um að farið yrði ofan í
saumana á rekstri Hafnar og leita
skyldi leiða til úrlausnar. Geir
Jónsson bæjar fulltrúi leiddi þá
vinnu og voru það niðurstöður
hennar sem kynnt ar voru á fundi
með íbúum sl. laugardag.
Tvö stöðugildi
Reksturinn er tvískiptur en þó
undir einni kennitölu. Annars
vegar er byggingarsjóðurinn og
hins vegar ígildi húsfélags. Hús
vörður í fullu starfi var á launum
hjá húsfélaginu og fram kvæmda
stjóri í fullu starfi var til helminga
á launum hjá byggingarsjóðnum
og húsfélaginu.
Höfn er þing lýstur aðili að
húsunum, nema 6 íbúðum og eld
húsi sem er í eigu Hafnar fjarð ar
bæjar. Íbúar greiða við komu fyrir
íbúðirnar og fá upp hæðina
endurgreidda er þeir fara eftir
ákveðn um reglum. Að sögn Gylfa
Ingvarssonar for manns Hafn ar
hefur mismunuar á kaup og sölu
verði ekki dugað til að standa
undir rekstrinum. Gylfi segir að
nettótap af brottflutningi heilsu
gæslunnar, sem leigði í húsinu,
hafi kostað samtökin um tvær
milljónir kr. auk þess að verða af 8
millj. kr. leigutekjum á ári.
Sjálfseignarstofnuninni
slitið
Niðurstaða vinnuhópsins sem
settur var á laggirnar á síðasta
aðalfundi er sú að eina leiðin sé
að núverandi íbúar leysi til sín
íbúðirnar og kaupi sinn hlut í
sameigninni. Drög að árs
reikningi fyrir 2013 hafa verið
lögð fram og sýna þau 20 millj
óna kr. tap byggingar sjóðsins.
Verði þessi leið ekki farin verður
félagið gert upp, kröfuhafar
krefjast þess að fá sitt og það sem
eftir mun standa rennur til endur
greiðslu á kaupverði íbúanna.
Í skipulagsskránni segir að telji
fulltrúaráðið sér ekki fært að
annast rekstur stofnunarinnar
skuli gefa aðildarfélögum kost á
að taka við rekstrinum, enda
verði hlutverk stofnunarinnar
óbreytt. Enginn vill taka rekst
urinn að sér að sögn Gylfa og
segir í stofnskránni að þá skuli
eignir hennar falla til ríkisins og/
eða sveitarfélagsins með þeirri
kvöð að hún verði áfram rekin í
þjónustu aldraðra.
Áframhaldandi starfsemi
Kaupi íbúarnir sína hlutdeild í
sameigninni og verði þinglýstir
eigendur getur reksturinn orðið
eins og er í dag á Hjallabraut 33.
Hafnarfjarðarbær rekur matar
þjónustu og eigendur hafa með
sér lögbundið húsfélag sem sér
um daglegan rekstur og viðhald.
Óskað yrði eftir því að kvöð yrði
sett á húsið að þar gætu þeir einir
búið sem eru 60 ára eða eldri.
96 íbúðir eru í Hafnarhúsunum við Sólvangsveg.
Oft er líflegt í Höfn.
Sigríður Ólafsdóttir, nýr fram-
kvæmdastjóri, 2. f.h. hættir brátt.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Ársreikn ingur
Hafnar fjarðar
kynntur í dag
Bæjarstjórnarfundur
Ársreikningur bæjarsjóðs
Hafnarfjarðar og stofnana hans
verður lagður fram í bæjarstjórn
í dag til fyrri umræðu. Ef
venjum verður framfylgt verður
lítil sem engin umræða um
reikninginn, bæjarstjóri kynnir
hann og oddviti minnihlutans
segir nokkur orð. Er honum þá
vísað til síðari umræðu þar sem
hann verður ræddur og sam
þykktur. Með því er talið að
uppfyllt séu ákvæði sveitar
stjórnarlaga um tvær umræður.
Meðal annarra mála á
fundinum má nefna endur
skoðun svæðisskipulags höfuð
borgarsvæðisins, vefstefnu
bæjar ins og skipulagsmál. Hægt
er að horfa og hlusta á fundinn
sem hefst kl. 14 á www.
hafnarfjordur.is