Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 02.10.2014, Blaðsíða 2

Fjarðarpósturinn - 02.10.2014, Blaðsíða 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 2. október 2014 Á hverju ári þurfa starfsmenn bæjarins að reyna að hreinsa niðurföll til að fjarlægja mikla polla sem myndast á götum þegar mikið rignir. Það er undarlegt að mestu vandamálin skuli vera í nýjasta hverfinu, Vallahverfinu en þar eru nokkrir staðir sem alltaf flæðir þegar miklar rigningar eru. Eitt dæmið er framan við Ásvallalaug þar sem vatn flæðir vel upp fyrir kantsteina á stóru svæði. Á öðrum stað sprautast upp úr niðurfalli sem á að taka við vatni. Alls staðar er vatni ekki veitt út í fráveitukerfi bæjarins, heldur er það leitt í púkk. Hvergi er gert ráð fyrir að vatnið flæði út af veginum og þar niður í púkk og því myndast miklir pollar þar sem lægðir eru og ná sumir þeirra langt upp á gangstéttar. Ástæðan er einnig oft stífluð niðurföll þar sem lauf og drasl lokar ristunum. Þessar ristar virðast vera töluvert minni en þekkist í nágrannalöndunum og því stíflast þær auðveldlega. Maður getur skilið þetta í eldri hverfum en með nútíma þekkingu á svona ekki að þekkjast. Nú standa yfir hreinsunardagar. Eru bæjarbúar hvattir til að hreinsa lóðir sínar og nærumhverfi. Gámar hafa verið setti upp á nokkrum stöðum í bænum og hefur safnast þó nokkuð í þá. Það vekur hins vegar athygli að gámarnir eru töluvert nýttir til að henda í drasli sem fólk hefur geymt innanhúss og sleppur fólk þá við að fara með þetta út í Sorpu en það sleppur líka í mörgum tilfellum við að flokka ruslið því aðeins eru þrír gámar á hverjum stað, undir timbur, málma og blandað rusl. Fyrirtæki og húsfélög geta óskað eftir að rusl verði sótt til þeirra svo mikið er í lagt til að gera bæinn snyrtilegri. Þó virðist lítið fara fyrir átakinu ef frá eru taldar auglýsingar í fyrstu viku og lítið er fjallað um átakið á heimasíðu bæjarins. Víða er mikið drasl, ekki síst á iðnaðarsvæðum þar sem fyrirtæki hafa látið hjá líða að girða af sín svæði svo draslið er oft aðgengilegt öllum og getur því líka skapast slysahætta af því. Enn ítreka ég hér þá skoðun mína að fyrirtæki komast of auðveldlega upp með sóðaskap og sennilega eru reglur ekki nógu skýrar eða að þeim sé illa framfylgt nema hvorutveggja sé. Samhliða þessu átaki þarf að kenna bæjarbúum að fara að reglum en sjá má hjólhýsi og kerru sem skaga með beisli út í gangstéttar svo ekki sé talað um alla þá bíla sem fullorðið fólk, oft foreldrar, leggur upp á gangstéttar þar sem börnin eiga að vera öguggust. Verst er þó fordæmið sem foreldrar gefa börnum sínum. Sjái börn foreldra sína aldrei henda rusli á víðavangi eða leggja bílum sínum uppi á gangstéttum eru miklu minni líkur á að þau sjálf geri slíkt þegar þau eldast. Fyrirtækjarekendur! Sýnið dug ykkar og hreinsið draslið áður en myndir af því rata á alla samfélagsmiðla. Guðni Gíslason ritstjóri. leiðarinn Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380 Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf. Ritstjóri: Guðni Gíslason Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson. Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193 www.fjardarposturinn.is www.facebook.com/fjardarposturinn 35 ár Stolt að þjóna ykkur Útfararskreytingar kransar, altarisvendir, kistuskreytingar, hjörtu Bæjarhrauni 26 Opið til kl. 21 öll kvöld Símar 555 0202 og 555 3848 www.blomabudin.is Sunnudagurinn 5. október Sunnudagaskóli kl. 11 Kvöldmessa kl. 20 Kór og hljómsveit kirkjunnar leiða sönginn. Stjórnandi Örn Arnarson. Sjá nánar um starfið á www.frikirkja.is og á Facebook.com/frikhafn www.frikirkja.is Víðistaðakirkja Sunnudagur 5. október: Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11 Gott samfélag fyrir unga og eldri Molasopi á eftir. Starfsfólk Víðistaðakirkju. www.vidistadakirkja.is Sunnudagurinn 5. október Sundbarnaguðsþjónusta í Ásvallalaug kl. 11 Allir velkomnir, bæði blautir og þurrir. Gospelguðsþjónusta í Haukaheimilinu kl. 20 Gestir verða hljómsveitin GIG auk þess sem kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar. Prestur er sr. Kjartan Jónsson Eldriborgarastarf á miðvikudögum kl. 13:30 - 13:50 www.astjarnarkirkja.is Það var lítt spennandi að ganga úti í rokinu og rign­ ing unni á mánudagsmorgunn. Sumir brugðu á það ráð að ganga afturábak þegar veðrið var sem verst. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n VeðurbarinnSunnudagurinn 5. októberMessa kl. 11 Félagar úr Barbörukórnum syngja. Organisti er Guðmundur Sigurðsson. Prestur er sr. Þórhildur Ólafs. Sunnudagaskóli kl. 11 í Hásölum Strandbergs safnaðarheimilis kirkjunnar. Leiðtogi er Anna Elísa Gunnarsdóttir. Aðstoðarstúlka hennar er Margrét Heba. Kaffi, kex og djús í Ljósbroti Strandbergs safnaðarheimilis Hafnarfjarðarkirkju. Miðvikudagurinn 8. október Morgunmessa kl. 8.15 Organisti er Guðmundur Sigurðsson. Prestur er Sr. Þórhildur Ólafs Morgunverður í Odda Strandbergs. Fræðslukvöld kl. 20 Hljómsveit æskufólks kynnir hjálparstarf. Kaffi, kex og djús í Ljósbroti Strandbergs www.hafnarfjardarkirkja.is. HAFNARFJARÐARKIRKJA 1914 - 2014

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.