Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 02.10.2014, Blaðsíða 8

Fjarðarpósturinn - 02.10.2014, Blaðsíða 8
8 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 2. október 2014 5 ættliðir í kvenlegg Fimm ættliðir í hreinan kven- legg komu saman í mynda töku fyrir skömmu. Ættmóðirin er Sólveig Guðfinna Stígsdóttir Sæland en foreldrar hennar voru Stígur Sveinsson Sæland (1890- 1974) sem var þekktur lögreglu- maður í Hafnarfirði og var frá Sveinsbæ sem nú er Lækjargata 6 og Sigríð ur Eiríksdóttir Sæland (1889-1970) ljósmóðir frá Sjón- ar hóli. Áróra Kristína Marsden fædd 2013, Kolbrún Björg Ómarsdóttir fædd 1985, Hildur Harðardóttir fædd 1967 í Hafnarfirði, Björg Gréta Sæland Eiríksdóttir, fædd 1947 í Hafnarfirði og Sólveig Guð finna Stígsdóttir fædd 1928 í Hafnarfirði. Kolbrún Björg með Áróru Kristínu í fanginu, Hildur, Björg Gréta og Sólveig Guðfinna Næsta laugardag fjallar Rósa Guðbjartsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði og formaður bæjarráðs um bæjarmálin og helstu áherslur á fyrsta starfsári nýs meirihluta Allir velkomnir! Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði Laugardagskaffi Alla laugardagsmorgna í vetur milli kl. 10 og 12 í Sjálfstæðisheimilinu að Norðurbakka 1. Erum á Facebook: Skottsala í Firði í bílakjallaranum í Firði laugardaginn 4. október Opið frá 12.00 til 16.00 Stuð og stemmning Komdu og grúskaðu Prúttaðu og gerðu góð kaup Erlendur skipaður forstöðumaður Kvikmyndasafnsins Mennta- og menningarmála- ráðherra hefur skipað Erlend Sveinsson í embætti forstöðu- manns Kvikmyndasafns Íslands til fimm ára frá 1. október nk. að telja en hann var settur forstöðu- maður safnsins árið 2012. Erlendur er kvikmyndagerðar- maður og hefur komið að starf- semi Kvikmyndasafns Íslands um áratugaskeið sem stjórnar- maður, ráðgjafi og starfsmaður auk þess sem hann gegndi starfi forstöðumanns safnsins frá 1980 til 1986. 15 sóttu um stöðuna. Erlendur segist sjá fyrir sér þrjú höfuðverkefni: 1) Að lóðsa safnið með mínu góða samstarfsfólki inn í staf- rænu öldina því með vissum hætti má segja að safnið sé nú statt á nýjum byrjunarreit á öllum sviðum þess í umróti staf- rænu byltingarinnar 2) Að finna nútímalegar leiðir fyrir miðlun safnskostsins, sem þjóðin öll getur notið 3) Að tryggja að ungt fólk verði komið til starfa hjá safninu og í stakk búið að halda merkinu á lofti þegar við eldri starfsmenn þess látum af störfum. Jafnframt þessu þarf að efla vitund þjóðarinnar fyrir því að Kvikmyndasafn Íslands er sú stofnun í hennar eigu sem er ætlað það viðamikla verkefni að varðveita og miðla arfleifð henn- ar í lifandi myndum. Það er gríðarlega stórt viðfangsefni á góðu pari með verkefnum höfuð- safna landsins. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Erlendur Sveinsson Leikskólinn Hjalli við Víði- staðatún fagnaði 25 ára afmæli sínu 25. september sl. Tíma- mótunum var fagnað með ýmsu móti eins og vera ber en hæst bar þó þegar leiskólinn fékk afhentan sinn annan Grænfána fyrir að hafa undanfarin tvö ár unnið með vatn og orku. Ekki hefur verið ákveðið enn hvað unnið verður með næstu tvö árin en fyrstu árin var unnið að endurvinnslu. Fulltrúi Landverndar afhenti fánann og þegar fáninn hafði verið dreginn að hún sungu krakkarnir og starfsfólk saman afmælissönginn. Börnin forvitin um fánann. Fékk Grænfánann í annað sinn Leikskólinn Hjalli fékk grænfánann á 25 ára afmæli sínu Starfsfólk og leikskólabörnin stolt af sínum öðrum Grænfána á Hjalla. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Um 400 hlupu í Flensborgarhlaupinu Metþátttaka var í Flens- borgarhlaupinu í síðustu viku er um 400 manns á öllum aldri hlupu. Hlaupið er öllum opið hvort sem þeir tengjast Flens- borgarskólanum eða ekki. Á milli 60-70 útdráttarverðlaun voru veitt sem ýmis fyrirtæki og stofnanir gáfu. Fljótasti karl- inn og konan úr framhaldsskóla hlutu titilinn Framhald skóla- meistarinn í 10 km og fengu bikar að launum. Ágóði af hlaup inu var tvö hundruð þús- und krónur sem renna til Barn- aheilla. 10 km konur 18 ára + 1. Anna Berglind Pálmadóttir, 40:21 2. Helga Guðný Elíasdóttir, 41:54 3. Hrönn Guðmundsdóttir, 43:13 10 km konur 17 ára og yngri 1.-.2. Oddrún Inga Marteinsdóttir og Ingibjörg Dís Níelsdóttir, 1:03:11 3. Karen Alfa Rut Kolbeinsdóttir, 1:09:28 10 km karlar 18 ára + 1. Kári Steinn Karlsson, 32:07 2.Ingvar Hjartarson, 36:01 3. Örvar Steingrímsson, 36:19 10 km karlar 17 ára og yngri 1. Daníel Einar Hauksson, 39:52 2. Starri Snær Valdimarsson, 40:37 3. Ágúst Örn Víðisson, 41:44 5 km karlar, 18 ára + 1. Arnar Pétursson, ÍR, 17:14 2. Sigurjón Ernir Sturluson, 17:29 3. Ívar Trausti Jósafatsson, 17:53 5 km karlar, 17 ára og yngri 1. Fannar Óli Friðleifsson, 19:27 2. Birgir Þór Þorsteinsson, 20:39 3. Friðleifur K. Friðleifsson, 21:28 5 km konur, 18 ára + 1. Eva Skarpaas Einarsdóttir, 20:11 2. Aldís Arnardóttir, 22:27 3. Júlíana Jónsdóttir, 22:28 5 km konur, 17 ára og yngri 1. Sylvía Rún Hálfdánardóttir, 24:31 2. Bryndís Kristjánsdóttir, 24:58 3. Andrea Marín Árnadóttir, 25:27 Daníel Einar Hauksson og Karen Sif Pujarini Jónsdóttir, bæði úr Flensborg voru krýnd framhaldsskólameistarar í 10 km hlaupi 2014.

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.