Fjarðarpósturinn - 02.10.2014, Qupperneq 5
www.fjardarposturinn.is 5 Fimmtudagur 2. október 2014
* Dagana 2. 3. og 4. október 2014.
Gildir ekki um vörur á sérverðum.
Dalshrauni 13, Hafnarfirði | Sími 544 4414
Málningardagar
í Flügger litum Hafnarfirði
Allar vörur
á hálfvirði
AFSLÁTTUR
50%
fimmtudag, föstudag og laugardag*
08:00–18
:00 fimm
tudag og
föstudag
10:00–15
:00 lauga
rdag
Afgreiðs
lutími á m
álningar
dögum
Kleinur og kaffi á könnunni
Krýsuvíkurvegurinn hefur
verið þekktur fyrir þvottabretti
og verið minnisvarði um rykuga
malarvegi. Við aukna malartöku
í Vatnsskarði var vegurinn
endurbættur frá Hafnarfirði að
skarðinu, hann jafnaður, breikk-
aður og síðan malbikaður.
Þetta var ekki endilega
gleðiefni fyrir yngri kynslóðina,
skáta á leið á Vormót eða í úti-
legu eða krakka sem fóru í
sumar dvöl í Krýsuvík. Þau
höfðu glaðst yfir því að fá að
svífa létt upp úr sætum aftast í
rútun um, færu þær nægilega
hratt.
Vegurinn meðfram vatninu
hefur hins vegar alltaf verið leið-
inlegur og því var það
fagnaðarefni þegar Vegagerðin
hóf endurbætur á honum og hóf
að leggja bundið slitlag á hann í
áföngum. Var þetta gert í
sérstöku átaksverkefni og nú er
að sjá fyrir endan á því. Nú er
verið að laga 2,1 km kafla á
veginum og nýlega var lokið við
1,2 km kafla og sýna myndirnar
þær framkvæmdir.
Þegar 900 m kaflanum sem
eftir er að klára í ár er lokið
verður eftir aðeins 1.300 m kafli
um Vatnsskarð. Ekki er komin
áætlun um hvenær verður farið í
hann. Það er heldur dýrari fram-
kvæmd en þeir kaflar sem unnið
hefur verið í síðustu ár en
vonandi verður það sem fyrst
enda bætir þetta aðgengi að
bæjarlandi Hafnarfjarðar í
Krýsuvík. Vetrarþjónusta er hins
vegar í lágmarki, þriðjudaga og
föstudaga en virka daga að
Vatns s karði.
Fyrra lagið lagt á veginn 17. september. sl.
Bundið slitlag komið á stærstan
hluta Krýsuvíkurvegar
Óvíst hvenær kaflinn um Vatnsskarð verður endurbættur
Lj
ós
m
.:
Ve
ga
ge
rð
in
Lj
ós
m
.:
Ve
ga
ge
rð
in
Fallegasti bekkurinn
í miðbænum
Gestir og starfsfólk Bókasafns
Hafnarfjarðar tóku í sumar þátt
í „prjónagraffi“ og skreyttu
handrið og fleira inni í
bókasafninu. Ef stærsta verkið
var eflaust skreyting á bekk
utan við bókasafnið sem fékk á
sig mun hlýlegri blæ en ella.
Má því kalla hann fallegasta
bekkinn í miðbænum og þó
víðar væri leitað.
Bekkurinn var glæsilegur í sólríku horninu við Bókasafnið.