Fjarðarpósturinn - 09.10.2014, Blaðsíða 2
2 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 9. október 2014
Þegar húsnæðisvandi grunn-
skólanna var sem mest til umræðu
kom upp hugmynd um að setja á
laggirnar unglingaskóla. Var þá
hugsað til „Græna hússins“ á
miðsvæði Valla sem mögulegu
húsnæði. Ekkert varð úr þeirri
hugmynd enda virtist hugmynd um sérstakan ungl-
ingaskóla mæta töluverðri andstöðu. Þá var markmiðið
að geta frestað því að byggja nýjan skóla í Skarðshlíð en
þá var búist við að það hverfi væri að byggjast upp. Nú
er hugmyndin um unglingaskóla aftur komin upp á
yfirborðið en ekki vegna húsnæðisvanda heldur vegna
þess að einkaaðilar vilja fá tækifæri á að reka slíkan skóla
með samningi við Hafnarfjarðarbæ. Slíkur skóli sem
staðsettur væri á Völlum þyrfti ekki endilega að leysa
húsnæðisvanda Hraunvallaskóla og Áslandsskóla eins og
bæjarrekinn skóli gerði enda yrði einkarekinn skóli aldrei
hverfisskóli og enginn skikkaður í slíkan skóla. Ætli
bæjaryfirvöld að heimila rekstur slíks skóla sem hæfi
störf haustið 2015 þurfa bæjarfulltrúar að hafa hraðar
hendur á því gera þarf ráð fyrir slíku í fjárhagsáætlun.
Eðlilegt er að bæjarbúar fái að segja sitt álit á slíkum
áformum, foreldrar og skólasamfélagið því að mörgu er
að hyggja þegar áform um einkarekna skóla eru tekin
upp. Fleiri einkareknir skólar geta skapað óvissu um
húsnæðisþörf og jafnvel verri nýtingu skólahúsnæðis en
þeir geta líka haft þveröfug áhrif og verið til þess að létta
álagi af öðrum skólum. Hins vegar er það spurningin um
það hvaða rekstrarfyrirkomulag sé hagkvæmast
bæjarbúum og auðvitað gæti farið svo að bæjaryfirvöldum
þætti hagkvæmast að bæjaryfirvöld starfrækti nýjan
unglinga skóla, sé það talið besta lausnin fyrir kennslu á
þessu aldursstigi.
Miklar breytingar eru að eiga sér stað í Firði, einu
verslunarmiðstöð bæjarins. Töluverð uppstokkun hefur
orðið ekki síst eftir að Vínbúðin hvarf á braut. Langir
lokaðir veggir að bönkum og stærri verslunum eiga ekki
að sjást í verslunarmiðstöð af þessari stærð og synd að
horfa upp á að besta verslunarplássið á jarðhæð sé notað
undir skrifstofur og jafnvel kaffistofur starfsmanna.
Íslandspóstur er að flytja sig í stærra húsnæði og mun þá
vonandi veita meiri og betri þjónustu, Símabúðin er
komin í stærra húsnæði og kaffitorgið á eftir að stækka
og taka gagngerum breytingum. Eigendur skoða í dag
breytingur á eignarhaldi og stofnun eins eignarfélags um
verslunarhúsnæðið í Firði sem gerði alla skipulagningu
og rekstur einfaldari og hnitmiðaðri. Nýjar búðir eru á
leiðinni í Fjörð og það verður gaman að fylgjast með því
þegar verslunarmiðstöðin tekur flugið á ný, endurbætt og
með fleiri verslunum. Hafnfirðingar munu á ný sækja
meira í miðbæinn - sinn eigin miðbæ!
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
35 ár
Stolt að þjóna ykkur
Útfararskreytingar
kransar, altarisvendir,
kistuskreytingar,
hjörtu
Bæjarhrauni 26
Opið til kl. 21 öll kvöld
Símar 555 0202 og 555 3848
www.blomabudin.is
Sunnudagurinn 12. október
Sunnudagaskóli kl. 11
Guðsþjónusta kl. 13
Kór og hljómsveit kirkjunnar leiða sönginn
undir stjórn Arnar Arnarsonar.
Kaffisala kvenfélagsins
verður í safnaðarheimilinu
að lokinni guðsþjónustu.
Kvenfélag Fríkirkjunnar í Hafnarfirði veitir
safnaðarstarfinu dýrmætan stuðning og er
kaffisala þess ævinlega mikilvægur hluti
fjáröflunar félagskvenna. Allir velkomnir.
www.frikirkja.is
Sunnudagurinn 12. október
Sunnudagaskóli og
guðsþjónusta kl. 11
Foreldramorgnar
á þriðjudögum kl. 10
Unglingagospelkór
á föstudögum kl. 16.30
www.astjarnarkirkja.is
Sunnudagurinn 12. október
Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11
Yngri barnakórarnir syngja. Stjórnandi er Helga
Loftsdóttir. Meðleikari er Anna Magnúsdóttir.
Anna Elísa Gunnarsdóttir leiðtogi sunnudaga skólans
og Margrét Heba aðstoðarstúlka hennar tala.
Organisti: Douglas Brotchie.
Prestur er sr. Þórhildur Ólafs.
Þriðjudagur 14. október
Kynning kl. 20 á
Helgistaðir við Hafnarfjörð
Ritverki sem gefið verður út í tilefni af eitt
hundrað ára afmæli Hafnarfjarðarkirkju.
Gunnlaugur Haraldsson söguritari og Magnús
Gunnarsson formaður sóknarnefndar hafa orðið
og svara fyrirspurnum.
Miðvikudagurinn 15. október
Morgunmessa kl. 8.15
Organisti er Guðmundur Sigurðsson.
Prestur er sr. Jón Helgi Þórarinsson.
www.hafnarfjardarkirkja.is.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
1914 - 2014
Víðistaðakirkja
Sunnudagur 12. október:
Fjölskyldustund og
sunnudagaskóli kl. 11
Barnakór Víðistaðakirkju syngur
undir stjórn Helgu Þórdísar.
Notalegt samfélag fólks á öllum aldri.
www.vidistadakirkja.is
Molasopi á eftir.
Krakkarnir í æskulýðsfélaginu Megas selja
bakkelsi til fjáröflunar vegna ferðar á
Landsmót æskulýðsfélaga kirkjunnar
Starfsfólk Víðistaðakirkju.
Fjármálstjóri Hafnarfjarðarbæjar
22 umsækjendur
Ari Sigurðsson, MBA og cand.oecon; Björn Arnar
Kárason, m.sc. fjármálaverkfræði; Björn Steinar
Pálmason, MBA; Björn Þór Hermannsson, m.sc.
fjármálahagfræði; Drífa Valdimarsdóttir, m.acc
reikningsskil og endurskoðun; Hallgrímur Ólafsson, ACI
og cand.oecon; Hilmar Stefánsson, cand.oecon; Jenny
Johansen, rekstrarfræðingur; Jón Ólafur Gestsson,
hagfræðingur; Jónína Kristjánsdóttir, viðskiptafræðingur,
MIF í alþjóða fjármálum; Karen Huld Gunnarsdóttir,
m.acc reikningsskil og endurskoðun; Karítas Jónsdóttir,
cand.oecon; Kristín Einarsdóttir, cand.oecon; Lúðvík
Þorgeirsson, cand.oecon fjármál fyrirtækja; Olga
Eleonora Marcher Egonsdóttir, m.sc. alþjóðastjórnun og
m.sc. hagnýt hagfræði og fjármál; Regína Fanný
Guðmundsdóttir, löggiltur endurskoðandi; Rósa
Steingrímsdóttir, MBA og cand.oecon; Sigrún
Bragadóttir, m.sc. fjármál fyrirtækja; Snorri Gissurarson,
cand.oecon; Steingrímur Hólmsteinsson, rekstrar- og
viðskiptafræði; Sveinn Bragason, MBA og cand.oecon;
Þórður Guðbjörnsson, m.sc. stjórnun og stefnumótun.
Fimm höfðu dregið umsókn sína til baka.