Fjarðarpósturinn - 09.10.2014, Side 3
www.fjardarposturinn.is 3 Fimmtudagur 9. október 2014
Hafðu það bragðgott alla daga!
Kíktu á matseðilinn á
www.burgerinn.is
©
F
ja
rð
ar
pó
st
ur
in
n
20
14
-0
5
Flatahrauni 5a Hfj. • 555 7030
Opið alla daga kl. 11-22
Munið krakka matseðilinn ELDBAKAÐAR PIZZUR
FLOTTIR HAMBORGARAR
BBQ KJÚKLINGUR
QUESADILLA
GRILLAÐAR LAMBAKÓTILETTUR
Hádegisverðartilboð
alla daga vikunnar
Borðað í sal
eða sótt í lúgu
Vilja reka unglingaskóla á Völlum
Forsvarsmennirnir flestir tengdir Haukum
Þau Kristján Ómar Björnsson
þjálfari hjá Haukum og fil. mag. í
tónlistarfræðum, Hildur Lofts-
dóttir grunnskóla kennari og
knattspyrnuþjálfari, Ágúst Sindri
Karlsson lög maður og fram-
kvæmdastjóri fjár fest inga félags-
ins Arkea, Sigríð ur Kristjáns dótt-
ir þroska þjálfi, Hjálm ar Árna son
fram kvæmda stjóri Keilis og
Gísli Guð munds son hafa óskað
f.h. óstofnaðs hluta félags eftir
sam þykki Hafn ar fjarðarbæjar á
stofn un grunn skóla fyrir
unglinga deildanema á Völlum.
Í bréfi dags. 16. september sl.
til Hafnarfjarðarbæjar er þess
farið á leit að boðað verði til
fundar með forsvarsmönnum
undirbúnings hóps Framsýnar
skólafélags en það hafa þau nefnt
hið óstofnaða félag. Hópurinn
hefur samið við Karl Þorsteins
hjá ARM verðbréfum hf. um
aðstoð við fjármögnun og rekstr-
ar áætlun. Forsvarsmaður hópsins
er Kristján Ómar Björns son.
Stefnt er að því að kennt verði
eftir námskrá þar sem sérstök
áhersla verði lögð á upplýsinga-
tækni, heilsu og hreyfingu.
Skólinn verði umhverfisvænn og
stefnt að pappírslausu umhverfi.
Stuðst verði við speglað kennslu-
fyrirkomulag þar sem sjálfstæði
og tæknifærni nemandans fái að
þroskast. Þá segir einnig í bréfi til
Hafnarfjarðarbæjar að líkamlegt
og andlegt heilbrigði verði einnig
haft í fyrirrúmi þar sem öllum
nemendum verði gert að stunda
markvissa hreyfingu daglega.
Stefnt er að því að félagið verði
einkahlutafélaga til að auðveldara
sé að nálgast rekstrarfé en endan-
leg ákvörðun um rekstr arfyrir-
komulag hefur ekki verið tekin
og ekkert kemur fram í bréfi
hópsins hvar skólinn yrði til húsa.
Bréfið var tekið á dagskrá
fræðslu ráðs sl. mánudag til kynn-
ingar en sl. föstudag átti bæjar-
stjóri og fleiri embættismenn
fund með fulltrúum hópsins og
að sögn fræðslustjóra er stefnt á
annan fund fyrir næsta fund
fræðsluráðs.
Vilja halda maraþon
hlaup í Hafnarfirði
Fræðsluráð hefur falið
íþrótta fulltrúa að hafa samband
við hugsanlega samstarfsaðila
sem gætu komið að árlegu
maraþonhlaupi í Hafnarfirði.
Hlaup hafa átt sífellt meiri
vinsældum að fagna meðal
Hafnfirðinga og tveir af stærstu
hlaupahópum landsins eru í FH
og Haukum. Fara menn víða til
að keppa í maraþoni og enn
lengri hlaupum og gæti vel
skipulagt maraþonhlaup vakið
mikla athygli á Hafnarfirði.
Gætu menn jafnvel haldið
Hansa-Hafnarfjörður maraþon í
samstarfi við aðra Hansa bæi
eins og vinabæ okkar í
Cuxhaven.
Þrjú maraþon í bænum
Þrisvar hefur verið keppt í
marþon hlaupi í Hafnar firði. Þá
er ekki meðtalið óformlegt
afmælismót Guðmundar R.
Ingvasonar 1995 þar sem þrír
hlupu, hann, Sveinn K. Baldurs-
son og Erlendur Sveinsson.
Eina hlaupið sem var með
lög lega mælda braut var af -
mælis hlaup Sveins K. Bald-
urssonar sem þá fagnaði 50 ára
afmæli sínu. Það var haldið 29.
maí 1999 og voru átta skráðir í
heilt maraþon og kláruðu þeir
allir. Kom afmælisbarnið ásamt
Sigurði Ingvarssyni fyrstur í
mark á 3.53,32 klst. Blaðamenn
Tímans töldu ástæðu til, er þeir
gáfu upp að lengd maraþons
væri 42,2 km að það væri
„talsvert löng leið til að hlaupa
í einni lotu“.
5. september 1982 stóðu Sig-
urður P. Sigmundsson og
Haraldur S. Magnússon fyrir
maraþoni sem var um leið
Íslandsmót í greininni. 17 hófu
keppni en aðeins 9 komust í
mark. Sighvatur Dýri Guð-
mundsson sigraði á 2.44,36
klst.
Þeir Sigurður og Haraldur
héldu svo annað maraþon 4.
septem ber 1983. Það var meist-
aramót Íslands í maraþonhlaupi
karla þar sem Sighvatur Dýri
Guð mundsson varð Íslands-
meistari á 2.32,27 klst. eftir
harða keppni við Steinar Jens
Frið geirsson. Alls hófu 17
keppni en 14 komust í mark.
Jafnframt var keppt í 10 km
hlaupi.
Til gamans má geta að þátt-
tökugjald var aðeins 80 kr. og
mátti greiðast á keppnisstað.
Lægsta gjald í Reykjavíkur-
maraþonið í dag er 8.500 kr. sé
greitt hálfu ári fyrir hlaup.
Brautin sem hlaupin var 1982
og 1983 var mæld með lög-
reglumótorhjóli og reyndist
vera nærri 1 km of stutt. Afrekin
voru því ekki viðurkennd þó
finna megi tíma úr síðasta
hlaupinu á Afrekaskrá FRÍ.
Brynja Björk nýr rekstrarstjóri Sörla
Brynja Björk Garðarsdóttir
hefur verið ráðin rekstrarstjóri
Hestamannafélagsins Sörla frá
og með 1.október. Hún er með
B.Sc gráðu í viðskiptafræði frá
Háskólanum í Reykjavík, MSc
í markaðsfræði og alþjóða-
viðskiptum frá Háskóla Íslands.
Brynja Björk hefur m.a starfað
við fjármálastjórn, blaða-
mennsku, markaðsráðgjöf og
almanna tengsl. Brynja Björk
hefur stundað hestamennsku til
fjölda ára.
Hestamannafélagið Sörli var
stofnað árið 1944 og er því
sjötíu ára. Sörli er með öfluga
starf semi sína í Hafnarfirði með
tæplega 1000 félagsmenn.
Brynja Björk Garðarsdóttir.
Með Hafnfirðingum frá 1983
...HVAR AUGLÝSIR ÞÚ?
..bæjarblað Hafnfirðinga síðan 1983