Fjarðarpósturinn - 09.10.2014, Qupperneq 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 9. október 2014
Hluti starfsmanna Motus sem búsettir eru í Hafnarfirði ásamt Hannesi J. Hafstein
héraðsdómslögmanni og Bjarna Lárussyni hæstaréttarlögmanni hjá Pacta lögmönnum.
Motus og Pacta lögmenn opna í Firði
Stærsta innheimtufyrirtæki landsins vill veita betri þjónustu í bænum
Innheimtufyrirtækin Motus og
Lögheimtan ásamt lögmanns-
stofunni Pacta lögmenn hafa
opnað starfsstöð á 5. hæð í
norður turninum í Firði. Hjá fyrir-
tækjunum starfa tæplega 150
starfsmenn. Að jafnaði hafa um
10 starfsmenn verið búsettir í
Hafnarfirði og mun einhverjum
þeirra verða boðið að flytja sig um
set í heimabæinn.
Hjá Pacta lögmönnum starfa á
þriðja tug lögmanna víða um
land. Í forsvari fyrir starfsemi
Pacta lögmanna í Hafnarfirði eru
þeir Hannes J. Hafstein héraðs-
dómslögmaður og Bjarni Lárus-
son hæstaréttarlögmaður. Bjarni
býr í Hafnarfirði og rak hann þar
eigin lögmannsstofu um árabil.
Að sögn Sigurðar Arnars
Jónssonar er markmiðið með
opnun starfs stöðvarinnar að veita
við skipta vinum fyrirtækj anna í
Hafnar firði og nágrenni betri
þjón ustu en áður.
Í starfsstöðinni í Firði verður
mót taka fyrir greiðendur krafna,
bak vinnslustarfsemi og almenn
lög fræðiráðgjöf og reiknar Sig-
urð ur með að 4-5 starfsmenn verði
þar til að byrja með en að staða er
til að fjölga starfs mönn um með
auknum verk efn um.
Motus fagnar 20 ára afmæli á
næsta ári og er stærsta innheimtu-
fyrirtæki landsins. Pacta var hins
vegar stofnað 1980 og eru þetta
því rótgróin fyrirtæki sem eru að
koma sér fyrir í Hafnarfirði.
Starfsstöðin í Hafnarfirði er tólfta
starfsstöð fyrirtækjanna.
Gunnar Kvaran sellóleikari og Selma Guðmundsdóttir
píanóleikari leika þekktar innlendar og erlendar
tónlistarperlur á borð við Ave Mariu eftir Bach-Gounod
og Nótt eftir Árna Thorsteinsson og fleiri lög, sem margir
þekkja auk tónverka eftir Schumann og Couperin.
Almennt miðaverð kr. 2500, fyrir eldri borgara
og námsmenn kr. 1500. Aðgöngumiðar eru seldir
í Hafnarborg, s. 585 5790
Sunnudag 12. október 2014 kl. 20
Kammertónleikar
í Hafnarborg
Hafnarborg
Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar.
Strandgata 34
220 Hafnarfjörður
Iceland
www.hafnarborg.is
hafnarborg@hafnarfjordur.is
(354) 585 5790
St. Jósefsspítali
Kvöð um heilbrigðis
starfssemi við sölu
Stjórn Hollvinasamtaka St.
Jósefsspítala fundaði 17. sept-
ember sl. með fulltrúum bæjar-
yfirvalda í Hafnarfirði. Þar kom
fram að Fasteignir ríkisins, sem
hafa umsjón með St. Jósefs-
spítala, hafa hug á því að selja
stofnunina. Bæjaryfirvöld settu
fram þær kvaðir að í sölusamningi
komi fram að heilbrigðis-
starfsemi, samkvæmt lögum um
heilbrigðismál, verði starfrækt í
húsnæði St. Jósefsspítala. Þá
verði 15% eignarhlutur Hafnar-
fjarðarbæjar metinn með tilliti til
athugasemda stjórnar Holl-
vinasamtakanna.
Í framhaldi fundaði stjórn
Hollvinasamtakann og var
eftirfarandi samþykkt send
bæjaryfirvöldum: „Stjórn holl-
vina samtaka St. Jósefsspítala
tekur undir markmið bæjaryfir-
valda að við sölu á St. Jósefs-
spítala fylgi sú kvöð, að heil-
brigðisstarfsemi verði starfrækt í
húsnæði sjúkrahússins, sem falla
undir lög um heilbrigðisþjónustu.
Bæjaryfirvöld verði í samstarfi
við stjórn Hollvinasamtaka St.
Jósefsspítala um söluferlið og
þær hugmyndir sem fram munu
koma.“ Vonar stjórn Hollvina-
samtaka St. Jósefsspítala að þetta
skref verði til þess að heil-
brigðisstarfsemi hefjist aftur í St.
Jósefsspítala.
Eitt sinn stóð lítið snoturt
einbýlishús á stórri lóð að Stekkj-
arbergi 9, lóð sem ligg ur að
friðuðu Stekkjar hraun inu. Í góð-
ærinu keypti meintur ríkur maður
lóðina og húsið sem hann reif hið
snarasta og ætlaði að byggja
mikla glæsivillu. Peng ingaveldi
eigandans hrundi og eftir stóð
út grafin lóðin sem undanfarin ár
hefur verið umflotin vatni.
Núverandi eigendur vilja
greini lega ná einhverju út úr
lóði nni því þeir hafa lagt inn
fyrir spurn um að byggja 11 rað-
og parhús á lóðinni, samtals
2.400 m². Lóðin er sem áður
segir stór, 2.400 m² en hún er
jafn framt á viðkvæmum stað við
Stekkjarhraunið.
Hafa eigendur sótt um að fá að
breyta deiliskipulagi Stekkjar-
hrauns v/Stekkjarbergs 9 og
hefur skipulags- og bygg ingarráð
Úr litlu húsi í 11 raðhús
Vilja stóraukið byggingarmagn í Stekkjarhrauni
heimilað að lóðarhafi láti vinna
tillögu að deiliskipu lagi í sam-
ræmi við tillöguna.
STEKKJARBERG
STEKKJARBERG
HL
ÍÐA
RB
ERG
Hér má sjá fyrstu hugmyndir. Rauði kassinn er gamla húsið.
Hugmyndir lóðarhafa.
Stofnað 1982
Dalshrauni 24
Sími 555 4855
steinmark@steinmark.is
reikningar • nafnspjöld • umslög
bæklingar • fréttabréf • bréfsefni
og fleira