Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 23.10.2014, Side 4

Fjarðarpósturinn - 23.10.2014, Side 4
4 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 23. október 2014 Hafnarfj arðarkirkja 100 ára 1914-2014 Hádegistónleikar í Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 28. október kl. 12.15-12.45 Douglas A. Brotchie leikur glæsilega efnisskrá á bæði orgel kirkjunnar © 1 41 0 H ön nu na rh ús ið e hf . Kaffi sopi eftir tónleika Verið hjartanlega velkomin – Aðgangur ókeypis Georg Böhm (1661-1733) Partita „Jesu, du bist allzu schöne“ John Corigliano (1938) „O God of love“ (umritun úr óperunni ‘The Ghosts of Versailles’) Kurtág György (1926) Tre versetti úr Játékok VI (1990) 1. Temptavit Deus Abraham 2. Consurrexit Cain adversus fratrem suum 3. Dixit Dominus ad Noe: fi nis universe carnis venit Apokriph Hymn Næsta laugardag fjallar Haraldur Benediktsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi formaður Bændasamtaka Íslands um stöðuna í landbúnaðarmálunum Allir velkomnir! Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði Laugardagskaffi Alla laugardagsmorgna í vetur milli kl. 10 og 12 í Sjálfstæðisheimilinu að Norðurbakka 1. 259 þáðu kjötsúpu í „neyð“ í Víðistaðskóla Lærðu margt á landsæfingu Rauði krossinn á Íslandi stóð fyrir landsæfingu sl. sunnudag og bauð þjóðinni jafnframt í mat. Alls voru 48 fjöldahjálpar stöðv­ ar opnaðar um allt land þar sem sjálfboðaliðar Rauða krossins stóðu vaktina, rétt eins og í alvöru neyðarástandi. Klúbbur matreiðslumeistara lagði Rauða krossinum lið á landsæfingunni með því að reiða fram þjóðar­ réttinn, íslenska kjötsúpu. Á höfuðborgarsvæðinu voru tvær stöðvar, í Víðistaðaskóla og í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ. Aðeins 259 komu í Víðistaða­ skóla og þáðu fría kjötsúpu en kokkarnir höfðu eldað fyrir 1800 manns og voru tilbúnir að elda mun meira ef á þyrfti að halda. Súpan fór þó ekki til spillis því hún nýttist vel í súpueldhúsi Samhjálpar að sögn Guðjóns Svans sonar verkefnastjóra Rauða krossins sem hafði yfir­ umsjón með æfingunni. Segir hann að í heild hafi æfingin tekist mjög vel. Auðvitað hafi fleiri mátt koma, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu. Hins vegar hafði verið mjög góð þátttaka sjálfboðaliða auk þess sem nokkrir tugir sjálboðaliða bættust við á lista hjá Rauða krossinum. Alls segir Guðjón að um 4­5000 manns hafi komið á sunnudag en ekki var búið að taka saman endanlegar tölu á þriðjudag. Hann segir góða æfingu hafa fengist við skráningu á fólki inn á fjölda hjálpar stöðv­ arnar og auk þessa hafi mikill áhugi myndast í kringum við­ lagakassann svokallaða sem m.a. var kynntur í Lágafellsskóla. Svona æfing verður örugglega haldin aftur en þetta var í fyrsta sinn sem slík æfing er haldin fyrir heilt land. Einvalalið matreiðslumeistara eldaði kjötsúpuna enda var enginn svikinn af henni sem mætti í Víðistaðaskóla Rúmt var um fólk í Víðistaðskóla. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Það er alltaf gaman í Gaaraleikhúsinu Miða pantanir Frumsýning 24. október 565 5900 midi.is gaaraleikhusid.is Næstu sýningar föstudagur 31. október kl 20.00 föstudagur 7. nóvember kl 20.00 Kyrrðarbæn í Fríkirkjunni Námskeið í Kyrrðarbæn (Centering Prayer) verður haldið í Fríkirkjunni í Hafnarfirði laug­ ardaginn 15. nóvember kl.10­14. Umsjón er í höndum Margrétar Scheving og Þorvaldar Hall dórs­ sonar. Námskeiðsgjald er 3.000 kr. Námskeiðsgögn og hádegis­ hressing innifalin. Upplýsingar og skráning hjá Fríkirkjunni í Hafnarfirði á staðnum eða í síma 565 3430 alla virka kl. 13­16. Einnig má senda skilaboð gegn­ um Facebook síðu kirkjunnar: facebook.com/frikhafn.

x

Fjarðarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.