Fjarðarpósturinn - 23.10.2014, Page 5
www.fjardarposturinn.is 5 Fimmtudagur 23. október 2014
• Hansasambandið í fortíð og nútíð - Björn Pétursson, bæjarminjavörður Hafnarfjarðar.
• Hansakirkjan í Hafnarfirði, fyrsta lúterska kirkjan á Íslandi, reist 1533 aflögð
1603 – Jónatan Garðarsson, fjölmiðlamaður.
• Streng stillir fingur – Spilamenn Ríkínís syngja og leika á forn hljóðfæri veraldlega og
andlega tónlist sem rekja má til Hansatímabilsins.
• Orgelið í Skálholti og reikningurinn frá Hinrik Marthens Hamborgara
– Bjarki Sveinbjörnsson, tónlistarfræðingur.
• Hamborgarar í Hafnarfirði. Þegar Hafnarfjörður var miðstöð
utanríkisverslunar Íslendinga – Pétur Eiríksson, sagnfræðingur MA.
• „Afsegjum vjer þann mjöð, sem skömmu seinna verður daufur og fúll“ Um
bjórföng og áfengisdrykkju Íslendinga á tímum Hansakaupmanna
- Stefán Pálsson, sagnfræðingur.
• Annríki – Þjóðbúningar og skart sýna tóvinnu þar sem ullarreyfi verður skipt í tog og þel,
ullin kembd og spunnin á snældu og undirbúin í vefnað eða til að prjóna úr. Einnig verður
sýnd gerð gamla hringavíravirkisins eins og það var unnið í skartgripi á þessum tíma.
• Boðið verður uppá veitingar í anda tímabilsins, nýbakað brauðmeti framreitt
af Jóni Árelíussyni bakarameistara
• Leikfélag Hafnarfjarðar mun forsýna leikritið „Draugagangan – göngum aftur“
þar sem áhugahópur um draugaveiðar reynir að veiða drauga í Pakkhúsinu
Laugardaginn 25. október 2014 kl. 14:00-17:00.
Pakkhús Byggðasafns Hafnarfjarðar, Vesturgata 6.
Fyrirlestrar, tónlist, matur og leikrit.
Á Hansahátíð Byggðasafns Hafnarfjarðar verður boðið uppá
margvísilegan fróðleik og skemmtun um það tímabil í sögu
Hafnarfjarðar þegar þýskir Hansakaupmenn réðu þar ríkjum.
Ókeypis aðgangur
Það var oft blautt á þátttak
endum í Ratleik Hafnarfjarðar
sem stóð í allt sumar. Alls hafði
verið komið fyrir 27 ratleiks
merkjum víðs vegar í upplandi
Hafnarfjarðar. Einstaka merki
voru þó örlítið út fyrir bæjar
mörkin en eins og þeir sem hafa
farið um upplandið vita þá eru
sveitarfélagamörkin ekki
áberandi og allt er þetta eitt
útivistarsvæði.
Þátttakendur fengu að kynnast
hinum fjölmörgu þjóðleiðum og
voru flest merkjanna nálægt
leiðum sem forfeður okkar hafa
mótað í landið á ferðum sínum til
og frá Hafnarfirði síðustu aldir.
Fólk á öllum aldri tekur þátt í
leiknum og heilu fjölskyldurnar
og vinahópar fara gjarnan saman.
Sumir eru búnir að taka þátt, öll
17 árin sem leikurinn hefur verið
haldinn en aðrir voru að taka þátt
í fyrsta sinn.
Markmið með leiknum er að
hvetja til útivistar og náttúru
skoðunar í fjölbreyttu upplandi
Hafnarfjarðar og um leið að
vekja athygli á þeim fjölmörgu
perlum sem þar leynast. Segja
sumir að upplandið okkar sé best
geymda náttúrperlan á Íslandi.
Þann 21. september var
skiladagur á lausnum úr leiknum
en hver keppandi skráir niður
númer sem er á hverju ratleiks
merki. Þeir kallast Léttfetar sem
fundið hafa a.m.k. 9 merki,
Göngugarpar hafi þeir fundið
a.m.k. 18 merki og Þrautakóngar
kallast þeir sem fóru á alla 27
staðina og voru þeir 53 í ár. Það
telst nokkuð gott afrek að ljúka
leiknum enda spannar hann um
10 km² svæði.
Alls skiluðu 118 inn lausnum
en engin skráning er í leikinn og
alls ekki allir sem taka þátt skila
inn lausnarblöðum.
Þrautakóngur 2014
Sólveig L. Kristjánsdóttir,
Engjaseli 67, Reykjavík var
dreg in út sem Þrautakóngur
Ratleiks Hafnarfjarðar 2014 á
upp skeru hátíð í Gúttó 15. okt. sl.
Fær hún að launum árskort í
Hress líkams rækt.
Agnes Agnarsdóttir, Engjahlíð
3a varð í öðru sæti og hlaut að
launum 6 mánaða sundkort í
sundlaugar Hafnarfjarðar.
Margrét Ólöf Sveinbjörns
dóttir, Breiðvangi 52 varð í
þriðja sæti og hlaut göngustafi
og sokka frá Músik og sport.
Göngugarpur 2014
Adam Breki Birgisson,
Klukkubergi 4 varð Göngugarpur
Ratleiks Hafnarfjarðar 2014 og
hlaut hann að launum Scarpa
Mojito skó frá Fjallakofanum.
Sveinn K. Valdimarsson,
Öldu slóð 43 varð í öðru sæti og
hlaut 15 þús. kr. gjafabréf frá
Altis.
Ýmir Atli Kárason, Danmörku
varð í þriðja sæti og hlaut 6 mán
aða kort í sund frá Hafnar
fjarðarbæ.
Léttfeti 2014
Sveinn Elliði Björnsson varð
Léttfeti Ratleiks Hafnarfjarðar
2014 og hlaut 6 mánaða kort frá
Hress líkamsrækt.
Elín Margrét Guðmundsdóttir,
Blikaási 5 varð í öðru sæti og
hlaut 3 mánaða kort í Hress
líkams rækt.
Ágúst Haraldsson, Efstuhlíð
19 varð í þriðja sæti og hlaut 6
mán aða kort í sund frá Hafnar
fjarðarbæ.
Heppnir
Auk þess hlutu 6 heppnir
þátttakendur sem mættu á upp
skeru hátíðina útdrátt ar vinninga,
göngustafi og sokka frá Músik
og sport, Höfnina myndabók
frá Hafnarfjarðarhöfn og
kvöldverð fyrir 2 í Fjörukránni.
Styrktaraðilar
Hönnunarhúsið ehf. gefur
leikinn út fyrir Hafnarfjarðarbæ
og sér um lagningu hans. Ómar
Smári Ármannsson aðstoðaði
við val á stöðum og skrifaði
fróðleiksmola.
Allir vinningar eru gefnir af
styrktaraðilum en auk þeirra sem
áður hafa verið nefndir þá styrktu
leikinn eftirtaldir aðilar: Fjarðar
pósturinn, Altis, Fjarðarkaup,
Gámaþónustan, Húsasmiðjan,
Valitor , Gróðrarstöðin Þöll auk
Fjallakofans sem var aðal
styrktaraðili leiksins í ár.
Sjá nánar um leikinn á www.
ratleikur.blog.is og á Facebook
síðu leiksins, Ratleikur Hafnar
fjarðar.
Vinningshafarnir og heppnir þátttakendur ásamt Guðlaugu Kristinsdóttur forseta bæjarstjórnar sem
afhenti vinningana á uppskeruhátíð í Gúttó 15. október sl.
Fjögur þúsund sinnum komið að Ratleiksmerki í sumar
53 luku við allan leikinn sem spannaði um 10 ferkílómetra svæði í upplandi Hafnarfjarðar