Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 23.10.2014, Síða 8

Fjarðarpósturinn - 23.10.2014, Síða 8
8 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 23. október 2014 Verum virk í skólamálum Skólamálin eru stærsti og merki legasti málaflokkur sveit­ ar félagsins. Það lætur nærri að sex af hverju tíu krónum, sem bæjarbúar treysta okkur kjörnum fulltrúum fyrir, fari í þenn an málaflokk. Það sem einkennt hefur umræður um hafnfirskt skólastarf er hins vegar húsnæðisskortur, léleg­ ur tækjakostur og óá sætt anlegur árangur skóla barna í grunn­ fögum. Það verður ekki sakast við kennara eða embættismenn í þeim efnum, því vandinn tengist fram­ tíðarsýn og ákvarðanatöku hjá okkur sem berum hina pólitísku ábyrgð. Skólastefna Hafnarfjarðar er að megingrunni frá árinu 2005 og hefur einungis einu sinni verið endurskoðuð síðan, þrátt fyrir að svo beri að gera á 3 ára fresti. Það veit auðvitað ekki á gott, að stefna sem varðar okkar stærsta og merkilegasta mála­ flokk sé ekki endurskoðuð reglu­ lega, einnig í ljósi þess að hafn­ firskir skólar standast ekki samanburð í nokkrum veiga­ miklum atriðum. Á síðastliðnum fræðsluráðs­ fundi var samþykkt að endur­ skoðun skólastefnunni hæfist nú þegar og miðað er við að þeirri vinnu ljúki á fyrsta ársfjórðungi 2015. Skólastefna er verkfæri sem á stöðugt að vera til skoðunar, þótt grunnþættir henn­ ar verði að lifa af pólitískar breyt ingar. Húsnæðismál leik­ og grunn­ skóla er flókið verkefni að því leiti að börnum fjölgar og fækkar innan sama hverfis á tiltölulega skömmum tíma og því þurfa lausnir í húsnæðis mál­ um að vera sveigjan­ legar. Það er þó margt sem hægt er að sjá fyrir í þeim efnum og því ætti að vera óþarft að grípa til skyndilausna eða taka ákvarðanir í tímahraki. Hraunvallaskóli á við húsnæðisskort að stríða sem mátti afstýra. Færan legar skólastofur sem áttu að vera tilbúnar í ágúst verða því miður ekki tilbúnar fyrr en eftir áramót vegna langs ákvarðana­ ferlis. Þá eru húsnæðismál Ás lands skóla eitt af brýnustu úrlausnar efnum okkar. Óvissa er um hvað tekur við að samningi loknum árið 2025, þar sem bænum var ekki tryggð eign skóla bygginganna við samn­ ingslok. Síðastliðin 12 ár hefði mátt nýta betur til að finna lausn á þessu máli. Meirihluti Bjartrar framtíðar og Sjálfstæðisflokks hefur ein­ sett sér að leysa húsnæðismál Hraunvalla­ og Áslandsskóla til frambúðar og að þau verði í höfn fyrir upphaf næsta skólaárs. Grunn ur að góðu og árangursríku skólastarfi er skýr stefna og öflugt skólafólk sem hefur vinnu aðstæður til að sinna fag­ legu starfi sínu. Höfundur er bæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar. Einar Birkir Einarsson Skipulags­ og byggingarráð (SBH) hefur frá því í vor sett nokkur mikilvæg verkefni af stað. Fyrst skal nefna Skarðs­ hlíðina þar sem ráðið samþykkti þ. 1.7. sl. að hlé verði gert á lóðarúthlutunum. Horft er til þess að skipulag svæðisins og nýting taki sem best mið af þörf markaðar ins um minni og hag kvæmari sérbýli og fjölbýli. Skipaður hef ur verið hópur sér fræð inga sem muni skila tillögum fljót lega. Markmiðið er að geta boðið upp á ódýrar lóðir með möguleika á hagkvæmu sérbýli í bland við stærri sérbýli ásamt íbúðum í fjölbýli fyrir alla markhópa. Flensborgarhöfn Smábátahöfnin sem gjarnan er nefnd Flensborgarhöfn er ein af okkar dýrmætustu perlum. Í aðalskipulagi Hafnarfjarðar sem samþykkt var síðasta vor segir m.a. „Í þessari endur skoð un er notkun þess (Flens borgarhafnar, innskot greinar höfundar) breytt, þannig að það verður nú skilgreint sem blanda af hafn­ arsvæði og verslunar­ og þjón­ ustu svæði.“ Í þessu felst að svæðið verði notað fyrir fjöl­ breytta starfsemi sem tengist hafinu á ein hvern hátt, söfnum, veit inga stöðum, gisti aðstöðu, og að sjálf sögðu smábátahöfn, siglingaklúbbnum og tengdri starf semi. Efnt var til fundar í Kæn unni þar sem kynnt var ákvörð­ un skipu lags­ og bygg­ ingarráðs um að ráðast í gerð skipulags lýsing­ ar með það að mark­ miði að ná samkomu­ lagi við hags muna aðila og bæj arbúa um fram­ t íðaruppbyggingu svæð isins. Framhald vinn unar ræðst svo af því hvort hags munaaðilar á skipulags­ svæðinu séu sam mála um leiðir til uppbyggingar. Þétting byggðar – Svæðisskipulag Vinna við svæðisskipulag höfuð borgarsvæðisins er langt komin og hefur verið mörkuð sú stefna að byggja inn á við með vistvænu skipulagi, þetta þýðir að leitast verði við að þétta núverandi byggð þar sem því verði komið við. Kostir þess arar stefnu eru að innviðir samfélagsins sem við höfum fjárfest í nýtast betur, má þar nefna samgöngumannvirki, skóla og íþróttahús. Með þetta að leiðarljósi samþykkti SBH að skipaður yrði ráðgjafahópur til að gera tillögu að þróunar­ svæð um innan núverandi byggðar í Hafnarfirði í samræmi við stefnu svæðisskipulags höfuð borgarsvæðisins 2015­ 2040. Hópnum er ætlað að skila tillögum fyrri part næsta árs. Einnig …ber að geta hreinsunarátaks sem nú er í fullum gangi. SBH samþykkti að setja af stað átakið og nú yrði gengið lengra en í fyrri átökum. Gámum hefur verið komið fyrir víðsvegar um bæinn, gengið hefur verið í fyrirtæki og hvatt til betri umgengni þar sem það á við. Þó svo að átakinu ljúki formlega 22. nóvember erum við hvergi hætt og verður haldið áfram með aðgerðir þar sem umgengni er ábótavant. Þetta og margt fleira hefur verið á dagskrá SBH þar sem samstarf allra full trúa í ráðinu hefur verið mjög gott. Hægt er að skoða fundargerðir á heimasíðu Hafnar fjarðar. Höfundur er bæjarfulltrúi og formaður skipulags- og byggingarráðs. Skarðshlíð – Flensborgarhöfn – Þétting byggðar Ó. Ingi Tómasson Verður haldinn á Sörlastöðum Fimmtudaginn 30. október kl. 20:00 Dagskrá aðalfundar ➤ Kosning fundarstjóra og fundarritara ➤ Formaður leggur fram og skýrir skýrslu stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu ári ➤ Gjaldkeri leggur fram og skýrir reikninga félagsins ➤ Umræður og atkvæðagreiðslur ➤ Formenn nefnda leggja fram og skýra skýrslur um starf viðkomandi nefnda á liðnu ári ➤ Kosning formanns ➤ Kosning sex manna í stjórn ➤ Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara ➤ Kosið í nefndir og skal kjósa formenn sérstaklega ➤ Tillaga lögð fram til samþykktar um árgjald næsta árs ➤ Önnur mál sem félagið varðar Veittar verða viðurkenningar og nefndabikarinn eftirsótti afhentur nýrri nefnd, sem skarað hefur framúr á liðnu starfsári. Veitingar í fundarhléi Stjórnin hvetur Sörlafélaga til að mæta vel og stundvíslega og taka þátt í umræðum. Nánari uppl‡singar ver›a birtar á vefnum www.sorli.is. Stjórnin 70 . AÐALFUNDUR Hestamannafélagsins sörla Hlaupahópur FH í samstarfi við Krabbameinsfélag Hafnar­ fjarðar stóð fyrir Bleika hlaupinu sl. laugardag. Hlaupið var til styrktar þeirri herferð sem Krabbameinsfélagið hefur verið í til að hvetja konur til að mæta reglulega í leghálskrabba meins­ leit. Þátttakendur komu víða að úr ýmsum hlaupahópum á höfuð­ borgarsvæðinu og greiddi hver 1.000 kr. Samtals söfnuðust 156.400 kr. sem afhent var í gær­ kvöldi. Boðið var upp á 5, 10 og 20 km hlaup í upplandi Hafnar­ fjarðar og var hlaupið í flottu veðri. Flestir voru í einhverju bleiku og mátti sjá allt frá bleikum slaufum að bleiku strápilsi. Félagar úr Hlaupahópi FH buðu svo upp á dýrindis kræsingar þegar í mark var komið við Suðurbæjarlaug og Hafnarfjarðarbær bauð hlaup­ urum frítt í sund. Litríkur hópurinn áður en lagt var af stað frá Suðurbæjarlaug. Söfnuðu 156.400 kr. í bleiku hlaupi Hlauparar komu víða að í styrktarhlaup fyrir Krabbameinsfélagið Falleg hlaupaleiðin við Ástjörn. Ingólfur þjálfari með flotta bleika slaufu í tilefni dagsins. Það er ekki oft sem ástæða fæst til að nota strápilsið! Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Fjarðarpósturinn Vettvangur fyrir skoðanaskipti í Hafnarfirði Smelltu á LIKE á www.facebook.com/fjardarposturinn

x

Fjarðarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.