Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 20.11.2014, Blaðsíða 6

Fjarðarpósturinn - 20.11.2014, Blaðsíða 6
6 www.fjardarposturinn.is Fimmtudagur 20. nóvember 2014 Ég undirritaður tel það augljóst Við viljum allir Hafnfirðingar hafa sýsluskrifstofu okkar óhreyfða sem hún er um aldur og ævi. Ég tel það ekki við hæfi að nú einmitt á sama tíma sem heilbrigðiskerfi lands manna gengur á brauðfótum, að nokkr- um mönnum sé það alvara að fleygja ein- hverjum milljörðum í að koma þessum fávita hætti af stað, að sameina Sýslumanns embættið og gera þjálfað fólk í sínu starfi atvinnulaust. Það þarf að spara í þessu þjóðfélagi það er augljóst mál. Án heilbrigðiskerfis er þjóðfélagið dauða- dæmt. Dæmi. Nú um þessar mundir bíða 800 fár- veikir sjúklingar eftir skurðaðgerð. Dæmi um óráðsíuhátt. B a n d a r í s k u r milljarða mæringur bauð ríkinu umtals- verða fjárhæð í holuna sem gerð var undir sjáv ar máli í teikningunni af Hörpu. Hefðu ekki Vinstri grænir gengið með magann fullann af svonefndri menningu, þá væri heil- brigðiskerfi okkar til fyrir myndar og góðir læknar ekki þurft að flýja land vegna launa mismunar til viðmiðunar í ná granna- löndunum eins og t.d. í Noregi. Nú tökum við höndum saman um alvöru sparnað. Gerum okkur það ljóst að stjórn mála- menn á Íslandi hafa enga burði til að reka okkar fámenna þjóð- félag, því þurfum við að íhuga stjórnmálasamband við Noreg. Þá gætum við lifað við mann- sæmandi laun. Spyrjum læknana sem gáfust upp á því að búa hér heima. Höfundur er fv. bátasmiður. Garðar H. Björgvinsson Frábær golfnámskeið fyrir krakka á aldrinum 4-10 ára Nú ætlum við í Keili að bjóða upp á SNAG-golfæfingar (golfþrautabraut) fyrir krakka 4-10 ára á laugardögum í Hraunkoti, æfingasvæði Keilis í vetur. Æfingar verða á laugardögum, 18 vikur frá 22. nóvember. Þátttökugjald fyrir 4-5 ára er 7.000 kr. (ekki niðurgreitt af Hafnarfjarðarbæ). Fyrir 6-10 ára kostar 12.000 kr. (full niðurgreiðsla frá Hafnarfjarðarbæ). Kylfur á staðnum fyrir alla. Þátttakandi þarf að vera í fylgd með fullorðnum. Aldurskipting og mæting: 4-7 ára kl. 09:15 – 10:00 8-10 ára kl. 10:00 – 10:45 Skráning fer fram á heimasíðu Hafnarfjarðar www.hafnarfjordur.is/minar-sidur/ Upplýsingar í Hraunkoti síma 565 3361 eða bjorgvin@keilir.is Endilega kom ið og prófið prufutíma fyri r skráningu! Umboðsmaður Alþingis, Tryggvi hefur ritað Sigurði Inga Jóhannssyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fyrir- spurn í 6 liðum þar sem vill vita á hvaða lagagrundvelli heimild til flutnings Fiskistofu til Akureyrar væri byggð og miðar hann við þá tímasetningu þegar starfsfólki er kynnt ákvörðunin munnlega á fundi 27. júní sl. og aftur skriflega 10. september sl. Bendir hann á að ráðherra hafi upplýst í júní að afla þyrfti lagaheimildar til flutningsins. Hvergi hefur komið fram að slíkar lagaheimildir liggi fyrir. Spyr umboðsmaður hvort það samrýmist vönduðum stjórn- sýsluháttum að kynna flutning á höfuðstöðvum Fiskistofu fyrir starfsmönnum stofnunarinnar eins og gert var á fundi með þeim 27. júní sl. og með bréfi 10. september sl. Bendir hann á að skv. þeim kynningum hafi enginn fyrirvari verið gerður um að eftir væri að afla sam- þykkis Alþingis eða hin kynntu áform fælu í sér annað en að þegar hefði verið tekin sú „stefnumarkandi ákvörðun [...] um að flytja höfuðstöðvar stofn unarinnar til Akureyrar.“ Óskar umboðsmaður að svar og umbeðin gögn berist honum eigi síðar en 10. desember. nk. Flutningur Fiskistofu úr Hafnarfirði Umboðsmaður Alþingis spyr um lagaheimildir Fjölskylduhjálp Íslands hefur opnað fatasöfnun og hjálpar- miðstöð í gamla pósthúsinu við Strandgötu. Hefur félagið fengið húsnæðið að láni endurgjalds- laust hjá Landsbankanum. Fjölskylduhjálpin var stofnuð árið 2003 af 5 konum sem allar höfðu mikla reynslu sem sjálf- boðaliðar í góðgerðar störfum. Var það til að úthluta fatnaði til þeirra sem erfitt eiga í sam- félaginu. Fljótlega fór Fjöl- skylduhjálpin að útdeila mat- vælum sem fékkst hjá fyrirtækj- um. Upphaflega var starfsemin í gamla Hagkaupshúsinu við Miklatorg en er nú á fjórum stöðum auk Hafnarfjarðar, að Iðufelli 14 í Reykjavík, að Hafnargötu 29 í Reykjanesbæ og í Hamraborg 9 í Kópavogi. Markmið með opnun í Hafn- arfirði er að gera Hafn firðingum í neyð auðveldara með að sækja aðstoð. Á öllum stöðunum er nytjamarkaður með nýlegan og notaðan varning sem seldur er til að afla fé til matarkaupa en Fjölskylduhjálpin veltir um 69 milljónum kr. árlega. Af því koma 2,6 milljónir kr. frá Reykja víkurborg og 4 milljónir kr. frá ríkinu. Um 50 sjálfboðaliðar starfa hjá Fjölskylduhjálpinni og árlega er úthlutað um 30 þúsund matar- gjöfum. Í Hafnarfirði verður veitt jólaaðstoð í formi matar, jólapakka og fatnaðar ef fólk þarf slíkt. Fjölskylduhjálpin er í gamla pósthúsinu, þar sem Antikbúðin var. Fjölskylduhjálpin í miðbænum Fjölskylduhjálp Íslands nú á 4 stöðum fyrir jólin Ýmislegt má finna á nytjamarkaðinum. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Jólagjafahandbókin kemur út 4. desember

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.