Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.08.2014, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 01.08.2014, Blaðsíða 2
S kipulagsráði Reykjavíkur og Íbúasamtökum mið- bæjarins hafa borist kvartan- ir vegna ónæðis í íbúabyggð af rútum og stórum jeppum. Hjálmar Sveinsson, formaður skipulagsráðs Reykjavíkur, segir að verið sé að taka á málunum. Til að mynda megi stórar rútur ekki lengur keyra um íbúa- byggð og komið hafi verið fyrir sérstöku rútustæði við safn Einars Jónssonar svo rútur þurfi ekki að fara um Þingholtin. „Þetta hefur reynst mjög vel og það þarf að búa til fleiri svona stæði, það er ekki spurning,“ segir Hjálmar. En töluverðar kvartanir hafa borist vegna minni rútu- bíla og stórra jeppa. „Íbúar eru óánægðir með mikla umferð á hvaða tímum sólar- hrings sem er og margir tala um að bílstjórar drepi ekki á vélinni þegar beðið er eftir farþegum. Það er alveg ótrú- legur ósiður sem margir bíl- stjórar hafa tamið sér en það er að halda bílunum gang- andi í stað þess að drepa á vélinni. Það mengar bæði hljóð og loft að hafa stóra bíla í gangi í langan tíma og veldur miklu ónæði. Bara þetta litla atriði hefur pirrað marga íbúa enda ólíðandi siður. Það væri hugsandi að setja líka reglur varðandi þetta,“ segir Hjálmar. Hlín Gunnarsdóttir, ritari íbúasamtaka Miðbæjarins, segir umferð í miðbænum hafa verið mikið rædda hjá samtökunum. „Það hafa bor- ist kvartanir og þess vegna höfum við rætt þetta við aðila hjá Samtökum ferðaþjónust- unnar og Reykjavíkurborg til að reyna að finna sáttalausn í sameiningu. Það verður að finna lausn sem allir eru sáttir við. Það skiptir til mjög miklu máli að drepið sé á rútunum, sérstaklega um miðjar nætur, og það er eitt- hvað sem ætti að vera auðvelt að leysa.“ halla@frettatiminn.is A f þeim 35 sem bera sendi-herratitil á vegum utanríkis-þjónustunnar eru 7 konur. Alls eru því 28 karlar með sendi- herratitil, ef með eru taldir þeir Geir H. Haarde og Árni Þór Sigurðsson sem Gunnar Bragi Sveinsson utan- ríkisráðherra skipaði í vikunni. Þeir taka hins vegar ekki við embætti fyrr en 1. janúar næstkomandi. „Það er alveg hárrétt, að þetta lítur ekki vel út,“ segir Gunnar Bragi. „Við erum meðvituð um að við þurfum að laga þetta, ekki bara í sendiherrastöðum heldur þurfum við að auka almennt hlut kvenna í hærri stöðum í utanríkisþjónust- unni og ráðuneytinu. Ég hef sem betur fer tæp þrjú ár í viðbót til þess. Þótt ég hafi bara skipað karla í þetta skipti er ekki þar með sagt að það verði þannig,“ segir Gunnar Bragi. Hann segir utanríkisráðuneytið hafa verið mjög karllægt í gegnum tíðina. „Það er að sjálfsögðu ástæða til endurskoðunar en við munum að sjálfsögðu halda áfram að skipa karla þótt við förum að bæta okkur með konurnar. Það virðist hafa verið mjög erfitt í þessu ráðuneyti,“ segir hann. Spurður hver ástæðan fyrir því sé svarar hann: „Það er í raun kannski hefðin sem ræður því. Þetta hljómar ef til vill eins og klisja en sendiherrastörf kalla oft á tíðum á vinnutíma sem er allan sólarhring- inn og gera kröfu á flutningsskyldu milli landa. Það gæti verið að konur sækist síður eftir þessum störfum,“ segir Gunnar Bragi. Hann segir hins vegar mjög hæfar konur innan ráðuneytisins sem vel gætu skipað sendiherrastöður. „Við þurfum ef til vill hugarfarsbreyt- ingu hjá okkur og öðrum sem skipa í stöður sem þessar,“ segir hann. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is  jAfnréttiSmál Ein konA á hvErjA fjórA kArlSEndihErrA Sjö konur og 28 karlar sendiherrar Fjórfalt fleiri karlar eru sendiherrar en konur, 28 karlar og 7 konur. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segir stöðuna ekki líta vel út. Hann telur að hefð og vinnuumhverfið sé ef til vill helsta ástæða misréttisins og segist hafa þrjú ár til að bæta stöðuna þótt hann hafi bara skipað karla nú síðast. Guðbjörg auðugust Íslendinga Guðbjörg M. Matthíasdóttir, aðaleigandi Ísfélagsins í Vest- mannaeyjum, er auðugasti Íslendingurinn að mati Viðskiptablaðsins en blaðið birti í gær lista yfir þá Íslendinga sem greiða hæstan auð- legðarskatt vegna ársins 2013. Auðlegð Guðbjargar – og reiknuð viðbótarauðlegð er samtals talin nema rúmlega 18 milljörðum króna. Næst koma hjónin Kristján H. Vilhelms- son og Kolbrún Ingólfsdóttir en eign þeirra er talin nema um 9,5 milljörðum króna. Í þriðja sæti er Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, með tæpa 8 milljarða. Guðmundur Kristjáns- son, útgerðarmaður í Brimi, vermir fjórða sætið en eignir hans eru metnar á tæplega 6,4 milljarða króna.  ónæði rútuStæði rEynASt vEl í miðbænum Íbúar pirraðir á rútum og stórum jeppum Þórólfur forstjóri Samgöngustofu Hanna Birna Kristjáns- dóttir innanríkisráðherra hefur skipað Þórólf Árnason rekstrarverkfræðing í emb- ætti forstjóra Samgöngu- stofu en hæfisnefnd mat hann hæfastan umsækjenda um starfið. Þórólfur hefur störf næstkomandi miðvikudag, að því fram kemur í tilkynningu innanríkisráðu- neytisins. Þórólfur hefur á síðustu árum starfað sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi, verið stjórnarformaður Isavia, unnið að stofnun jarðvarmaklasa með Gekon og sinnt fleiri verkefnum. Þá sinnti hann verkefnastjórn við sameiningu Flugstoða og Keflavíkurflugvallar og við stofnun Isavia árið 2010. Þórólfur var áður forstjóri Skýrr, Icelandic Group, Tals og borgarstjóri í Reykjavík á árunum 2003-2004. -jh Ákall til íslenskra yfirvalda Alþjóðahjálparstarf kirkna, ACT Alliance, sem Hjálparstarf kirkjunnar er aðili að, skorar á íslensk stjórnvöld að beita pólitískum þrýstingi á alþjóðavettvangi og beita öllum öðrum tiltækum ráðum til að stöðva átökin á Gaza þar sem missir mannslífa og þjáning íbúanna er óbærileg, að því er fram kemur í tilkynningu Hjálpar- starfs kirkjunnar, sem Bjarni Gíslason framkvæmdastjóri undirritar. „Alþjóðasamfélaginu ber skylda til,“ segir þar, „að bregðast við og tryggja vernd og öryggi borgara og að alþjóðalögum um framgöngu í stríði, um vernd spítala og skóla sé hlítt. Íslensk stjórnvöld hafa full- gilda rödd í alþjóðasamfélaginu og ber að beita henni af fullum þunga.“ - jh Fis brotlenti á Bakkaflugvelli Fis brotlenti á Bakkaflugvelli í Landeyjum um hádegisbil í gær, fimmtudag. Flug- maðurinn slapp með minniháttar meiðsl en fisið er mikið skemmt, að því er vefur Sunnlenska greinir frá. Þar kemur fram að lögreglan á Hvolsvelli rannsaki tildrög slyssins ásamt Rannsóknarnefnd sam- gönguslysa. -jh Sleipt í þaraboltanum Ýmsar sérkennilegar íþróttagreinar skjóta upp kollinum þessa sumardaga. Þekktastur er mýrarboltinn á Ísafirði, sem fram fer nú um verslunarmannahelgina. En aðrir Vest- firðingar láta sitt ekki eftir liggja. Keppt var í þarabolta á Reykhólum á nýliðnum Reykhóladögum. Þar var sleipt undir fæti, hvort heldur var í sókn eða vörn, því þara hafði verið dreift á spark- völlinn við skólann og bleytt vel í. Kepp- endur lögðu engu að síður sál, en einkum líkama, í þaraboltann, að því er fram kemur á Reykhólavefnum. Grundargengið, keppendur tengdir Grund í Reykhólasveit, sigraði í viðureign við Sekkina. Myndin er skjáskot Gauta Eiríkssonar - jh Það mengar að hafa stóra bíla í gangi í langan tíma og veldur ónæði í byggð. „Það er í raun kannski hefðin sem ræður því. Þetta hljómar ef til vill eins og klisja en sendiherrastörf kalla oft á tíðum á vinnutíma sem er allan sólarhringinn og gera kröfu á flutningsskyldu milli landa. Það gæti verið að konur sækist síður eftir þessum störfum,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson uutanríkisráðherra. Albert Jónsson Moskva Anna Jóhannsdóttir fastafullltrúi hjá NATO Auðunn Atlason Vín Árni Þór Sigurðsson skipaður sendiherra frá 1. janúar Benedikt Ásgeirsson heima Benedikt Jónsson London Bergdís Ellertsdóttir að störfum í ráðuneytinu Berglind Ásgeirsdóttir París Einar Gunnarsson ráðuneytisstjóri Elín Flygenring að störfum í ráðuneytinu Geir H. Haarde skipaður sendiherra frá 1. janúar Gréta Gunnarsdóttir fastafulltrúi hjá SÞ Guðmundur Árni Stefánsson Washington Guðmundur Eiríksson Nýja Delhí Gunnar Gunnarsson Stokkhólmur Gunnar Pálsson Osló Gunnar Snorri Gunnarsson Berlín Hannes Heimisson Tókýó Hermann Ingólfsson skrifstofustjóri Hjálmar W. Hannesson aðalræðismaður í Winnipeg Högni S. Kristjánsson skrifstofustjóri Jón Egill Egilsson prótókollsstjóri Júlíus Hafstein heima Kristín Á Árnadóttir Helsinki Kristján Andri Stefánsson skrifstofustjóri María Erla Marelsdóttir skrifstofustjóri Martin Eyjólfsson fastafulltrúi í Genf Pétur Ásgeirsson aðalræðismaður í Nuuk Stefán Haukur Jóhannesson tímabundið að störfum hjá ÖSE Stefán Lárus Stefánsson heima Stefán Skjaldarson Peking Sturla Sigurjónsson Kaupmannahöfn Þorsteinn Ingólfsson heima Þórður Ægir Óskarsson Ottawa Þórir Ibsen Brussel SAMTALS 35 (28 karlar og 7 konur) 2 fréttir Helgin 1.-3. ágúst 2014 Ora grillsósur fást í næstu verslun! Lúxus Bernaisesósa

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.