Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.08.2014, Side 30

Fréttatíminn - 01.08.2014, Side 30
30 matur Helgin 1.-3. ágúst 2014 Innipúkinn í Reykjavík Á Innipúkann mæt- ir enginn með tjald, enda er hátíðin stíluð á þá sem eru búsettir í bænum og vilja ekki eða komast ekki út á land. Eitthvað segir mér að þeir sem sækja Innipúkann skottist í latté í nágrenninu, en þegar kvölda tekur munu gestir renna niður svellköldum Grolsch og klass- ískum G & T. Mýrarboltinn á Ísafirði Á Vestfjörðum enginn maður með mönnum nema hann fái sér súrsaða sels- hreifa og feitt kindakjöt um verslunarmanna- helgina. Eins er þetta staðgóð og nærandi fæða fyrir þá sem ætla að keppa í mýrar- boltanum. Hvað drykki varðar þá er bara einn drykkur sem gengur fyrir vestan, og það er náravolgt íslenskt brennivín, drukk- ið beint af stút. Neistaflug á Neskaupstað Austfirðirnir eru matarkista. Þar er alltaf hægt að fá að gæða sér á dýrindis hreindýri og gæs- um. Villibráðin á heima fyrir austan. Það má því ætla að gestir á Neista- flugi í ár gæði sér á gómsætum hrein- dýraborgurum og grafinni gæs. Með þessum veislumat er svo drukkið gott og kröftugt franskt rauðvín þar sem Frakkar voru iðnir við að koma á land fyrir austan. Ein með öllu á Akureyri Á Akureyri er gott úrval af fínum veitingastöðum. En það má samt ekki gleyma því að lambakjötið frá Norðlenska er það albesta á landinu. Það er því nauðsyn- legt að næla sér í góða lund á grillið og skola henni niður með ísköld- um Kalda beint frá býli. Í desert væri svo tilvalið að fá sér KEA skyr og rjóma með bláberjum. Þjóðhátíð í Vest- mannaeyjum. Í dalnum er hægt að fá ýmsar veiting- ar, en þó allar mjög hefðbundnar eins og hamborgara og pítsur. Við mælum með því að fólk kíki í heimsókn til heimamanna í hvítu tjöldunum og reyni að hafa upp á humarsam- lokum og reyktum lunda. Lundinn er sérstaklega góður með íslensku smjöri. Gott er að hafa góða blöndu í brúsa en best er þó að gæða sér á ísköldum Skjálfta úr Ölvisholtinu. Hann er svalandi en ornar mönnum um leið á löngu slarki í dalnum. T Ú R I S T I Einfaldari lEit að ódýrum hótElum í útlöndum Leitaðu og berðu saman tilboð á hótElum út um aLLan heim og skoðaðu úrvaLið af sérvöLdum gististöðum, orLofsíbúðum og gistiheimiLum fyrir næstu utanLandsferð á túristi.is. Lesendur okkar fá einnig regLuLega sérkjör á gististöðum út í heimi. Föstudagspizzan Pollapizzan er bökuð úr Kornax brauðhveitinu  verslunarmannahelgin matur og drykkur Hvað skal eta og drekka um helgina? Fram undan er stærsta ferða- og skemmtanahelgi sumarsins, versl- unarmannahelgin. Margir leggja af stað og heimsækja þær fjölmörgu úti- og bæjarhátíðir sem eru um allt land. Áður fyrr var farið á útihátíð með nesti, enda voru verslunarmenn almennt í fríi um þessa helgi eins og nafnið gefur til kynna. Eins var neyslusamfélagið styttra á veg komið en gengur og gerist í dag. Núna er hægt að kaupa mat allsstað- ar og vínbúðir eru opnar alla helgina, svo það eina sem þarf að taka með sér eru hlý föt og tjald, eða bara sleppa því og freista þess að verða heppin/n. Hér eru ráð um það hvað best er að borða í hverjum landsfjórðungi, því það má finna úti- og innihátíðir í þeim öllum. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.