Fréttatíminn - 01.08.2014, Blaðsíða 48
HELGARBLAÐ
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is
Andri BjArtur jAkoBsson
Bakhliðin
Trommusjúkur
áhugakokkur
Aldur: 26 ára.
Maki: Ásgerður Snævarr.
Börn: Iðunn Andradóttir.
Menntun: Útskrifaður úr FÍH og
kennaranemi við Háskóla Íslands.
Starf: Trommuleikari og flugþjónn hjá
WOW Air.
Fyrri störf: Hef unnið á hótelum,
bílaleigu, versluninni Brynju og
veitingastaðnum Gló.
Áhugamál: Tónlist, útivist, líkams-
rækt, matur og ferðalög.
Stjörnumerki: Ljón.
Stjörnuspá : Þótt þú hafir ekki græna
glóru um hvað það er sem gengur
á, skaltu umfram allt ekki fara á
taugum. Skoðaðu vandlega hvað þú
hefur sjálfur og lærðu að meta það.
Andri er rosalega góður og hann er alltaf boðinn og búinn að hjálpa. Hans
helsta áhugamál eru trommur
og trommuleikur og ef hann
fengi að ráða væru fjögur upp-
sett trommusett í litlu íbúðinni
okkar,“ segir Ásgerður Snævarr,
unnusta Andra. „Andri er líka
þrusugóður kokkur og sér hann
um alla matseld á heimilinu. Svo
er hann líka ofboðslega góður
pabbi og litla krúttið okkar sér
ekki sólina fyrir honum.“
Andri Bjartur Jakobsson verður á faralds-
fæti um helgina. Hann er trommuleikari
hljómsveitarinnar Mammút og tónlistar-
mannsins Jóns Jónssonar. Á föstudeg-
inum spilar hann með Jóni á þjóðhátíð
í Vestmannaeyjum og flýgur svo beint á
Edrúhátíðina sama kvöld. Á laugardeg-
inum fer hann svo aftur til Eyja og spilar
með Mammút og fer svo til Ísafjarðar
á sunnudeginum þar sem hann spilar
bæði með Jóni Jónssyni og Mammút.
Svo hann er á ferð og flugi alla helgina.
Andri eignaðist sitt fyrsta barn í janúar
og vinnur í sumar sem flugþjónn hjá WOW
Air. Andri er einnig í hljómsveitinni 1860
svo það má segja að það sé nóg að gera
hjá þessum unga manni.
Hrósið...
fær söngvarinn Magni Ásgeirsson
og fjölskylda hans fyrir að standa að
tíundu Bræðsluhátíðinni um síðustu
helgi. Bræðslan er haldin á Borgarfirði
eystri, þar sem Magni ólst upp og faðir
hans er með búskap.