Akureyri - 07.08.2014, Side 1
28. tölublað 4. árgangur 7. ágúst
VI
KU
BL
AÐ
Lín Design Glerártorgi & Laugavegi 176 www.lindesign.is
30%
af öllum
dúnsængum
ÚTSALAN ER HAFIN
25-60% AFSLÁTTUR
25-50%
afsláttur af
rúmfötum
Gagnrýnir ráðningu
Grétar Þór Eyþórsson prófessor í stjórn-
málafræði við Háskólann á Akureyri
segir að það væri til marks um góða
stjórnsýslu ef sveitarstjórn Svalbarðs-
strandarhrepps endurskoðaði afstöðu
sína og auglýsti eftir sveitarstjóra í kjöl-
far umdeildrar ákvörðunar. Samræmd-
ar lagareglur skorti um skyldur sveitar-
félaga við ráðningu á sveitarstjórum.
„Ef loðnar aðferðir eru notaðar við
val á þessum einstaklingum sem oft
á tíðum gegna helstu ábyrgðarstöðu
innan sveitarfélaga er það ekki gott.
Það væri betra fyrir lýðræðið ef vinnu-
brögðin væru skýrari og jafnvel í reglu-
formi,“ segir Grétar.
Eiríkur Haukur Hauksson tók
við starfi sveitarstjóra í Svalbarðs-
strandarhreppi sl. föstudag. Hann sótt-
ist eftir sveitarstjórastóli fyrir fjórum
árum samkvæmt heimildum blaðsins
en fékk ekki. Hann gaf sig ekki út fyr-
ir að vilja þann stól nú þegar hann sem
eini fulltrúi síðustu sveitarstjórnar í
hreppnum sóttist eftir endurkjöri.
Þrír af fimm kosnum fulltrúum fengu
fleiri atkvæði en Eiríkur í sveitarstjórn
og munaði aðeins örfáum atkvæðum
að hann næði ekki kjöri. Ráðningu Ei-
ríks hefur verið harðlega mótmælt. Um
30% kosningabærra manna í hreppn-
um skrifuðu undir áskorun um að Sval-
barðsstrandarhreppur auglýsti stöðuna
en þrír af fimm fulltrúum í sveitarstjórn
ákváðu að hafna því erindi íbúanna.
„Ég veit ekki dæmi þess að svona
dæmi hafi komið upp áður, að ráðning
hafi orðið með þessum hætti, að maður
sem verður þetta neðarlega í kosningu
og standi utan lista sé gerður að sveit-
arstjóra. Vera kann að sveitarstjórn baki
sér skaðabótaábyrgð gagnvart Eiríki ef
þeir bakka út en burtséð frá peninga-
hliðinni þá lítur þetta ekki nógu vel út.
Það gæti verið gott fyrir sveitarstjórn
að endurskoða ferlið og auglýsa eftir
sveitarstjóra þrátt fyrir fyrri ákvörðun.
Það er ekki gott fyrir sveitarstjórn að
hafa ýmsar spurningar nú hangandi yfir
sér,“ segir Grétar Þór. Sjá bls. 12-13
-BÞ
TRISTAN OG ÆVAR, gestir á Sæludegi í sveitinni um verslunarmannahelgina fundu þessa vogmey í fjöru við Hjalteyri. Kannski er þetta
vísir að því sem koma skal, því Fiskidagurinn mikli verður haldinn á Dalvík næstu helgi. Völundur
www.hafkalk.is
Slakandi steinefnablanda
Náttúrulegt magnesíum og
kalkþörungar úr hafinu
Er fiskur of
góður fyrir þig?
ÞRÍR FRAKKAR Baldursgötu 14, Reykjavík - Sími: 552 3939
Opið virka daga 11:30 - 14:30 og 18:00 - 22:00
Opið um helgar frá 18:00 - 23:00
frakkar@islandia.is - www.3frakkar.com
Í gamla bænum - rétt við hjarta miðborgarinnar
Þrír Frakkar
Café & Restaurant
Ferskur léttsteiktur bláugga-
túnfiskur m/soya-smjörsósu
og wasabi-kartöflumús
Hádegistilboð fram að jólum
Súpa, nýbakað brauð og
gratineraður plok fiskur – 1.890,- kr.
hjá Úlfari veitingahús
Baldursgötu 14 – Sími 552-3939