Akureyri - 07.08.2014, Qupperneq 16
14.500 EINTÖK FRÍTT UM ALLT NORÐURLAND Á HVERJUM FIMMTUDEGI | AUGLÝSINGAR 578 1190 & AUGLYSINGAR@FOTSPOR.IS | RITSTJÓRN 862 0856 & BJORN@AKUREYRIVIKUBLAD.IS
VI
KU
BL
AÐ
UM DAGINN OG VEGINN
JÓN ÓÐINN WAAGE
SKRIFAR
Njarðarnesi 8 - 603 - Akureyri - S:4624200 - car-x@car-x.is
Hvað getum við gert fyrir þig á þegar aðstæður á borð við þetta skapast ?
Tjónaskoðun - viðgerðir og málning -
Bílaviðgerðir -
Sala og viðgerðarþjónusta fyrir fjór, sexhjól og sleða -
Hafðu samband við CAR-X.
Bjóðum upp á tjónaskoðun,
réttingar, málningarvinnu og framrúðuskipti auk
þess almennar bílaviðgerðir
Car-X bifreiðaverkstæði - Njarðarnes 8 - 603 Akureyri- Sími 462 4200 - car-x@car-x.is
ER BÍLINN BILAÐUR OG ÍLLFÆRANLEGUR ?
VIÐ GETUM KOMIÐ HONUM Á VERKSTÆÐI FYRIR ÞIG
Er þetta útsýnið þitt?
...úúúps...
Verum
gáfuð
og
borðum
fisk
Kveðja Grímur kokkur
www.grimurkokkur.is
Plokkfiskur
- Hollur kostur tilbúinn á 5 mín.
Kirkjur
Ég var kvíðið barn og óttasleg-
ið. Í þá daga var stöðugt verið
að segja fréttir um að vondir
menn ætluðu að sprengja upp
heiminn. Það hjálpaði ekki til.
Í næsta húsi bjó trúuð fjöl-
skylda, yndislegt fólk. Þar voru
haldnar samkomur sem ég
sótti. Fyrir hrædda barnssál
þá var skjól í trúnni. Ég ætlaði
að verða prestur þegar ég yrði
stór.
Trúin hvarf á unglingsár-
unum, finn ekki fyrir söknuði
en er þakklátur fyrir það
sem að hún var mér þegar ég
þurfti hennar við. Í dag ber ég
virðingu fyrir trú annarra og
trúleysi. Meðan að fólk hefur
þetta fyrir sig er ég sáttur.
Mér finnst gott að fara í
kirkju. Það er einhver ró þar,
líklega eini staðurinn sem að
fólk þegir. Meira að segja ég,
oftast að minnsta kosti. Og tón-
listin, hún er falleg og hjálpar
til. En ég fer ekki til að hlusta
á boðskapinn, enda á ég á erfitt
með að hlusta á talað orð, er yf-
irleitt að bíða eftir að komast
að sjálfur til að tala.
Elsti sonur minn er um
margt líkur mér. Við viljum fá
að taka þátt, nennum ekki að
hlusta.
Þegar hann var fimm ára fór
hann í fermingu hjá frænda
sínum. Syni mínum leiddist
þetta eintal prestsins og var
orðinn ókyrr. Presturinn fór þá
að vitna í Jóhannesarguðsjall
um að guð væri hirðirinn og
við sauðirnir. Þetta fannst syni
mínum eitthvað sem að var-
ið væri í. Hann stökk upp úr
sæti sínu og öskraði: “Og ég er
úlfurinn!“
Presturinn sagði ekki meira.