Akureyri


Akureyri - 16.10.2014, Side 4

Akureyri - 16.10.2014, Side 4
4 38. tölublað 4. árgangur 16. október 2014 AKUREYRI Draupnisgötu 5 462 3002 EGILSSTAÐIR Þverklettum 1 471 2002 REYKJAVÍK Skeifunni 5 581 3002 REYKJAVÍK Skútuvogi 12 581 3022 AKUREYRI Draupnisgötu 5 462 3002 EGILSSTAÐIR Þverklettum 1 471 2002 REYKJAVÍK Skeifunni 5 581 3002 REYKJAVÍK Skútuvogi 12 581 3022 2011 2011 2011 DEKKJAHÖLLIN AKUREYRI Draupnisgötu 5 462 3002 EGILSSTAÐIR Þverklettum 1 471 2002 REYKJAVÍK Skeifunni 5 581 3002 REYKJAVÍK Skútuvogi 12 581 3022 AKUREYRI Draupnisgötu 5 462 3002 EGILSSTAÐIR Þverklettum 1 471 2002 REYKJAVÍK Skeifunni 5 581 3002 REYKJAVÍK Skútuvogi 12 581 3022 AKUREYRI Draupnisgötu 5 462 3002 EGILSSTAÐIR Þverklettum 1 471 2002 REYKJAVÍK Skeifunni 5 581 3002 REYKJAVÍK Skútuvogi 12 581 3022 2011 2011 2011 DEKKJAHÖLLIN AKUREYRI Draupnisgötu 5 462 3002 EGILSSTAÐIR Þverklettum 1 471 2002 REYKJAVÍK Skeifunni 5 581 3002 REYKJAVÍK Skútuvogi 12 581 3022 AKUREYRI Draupnisgötu 5 462 3002 EGILSSTAÐIR Þverklettum 1 471 2002 REYKJAVÍK Skeifunni 5 581 3002 REYKJAVÍK Skútuvogi 12 581 3022 AKUREYRI Draupnisgötu 5 462 3002 EGILSSTAÐIR Þverklettum 1 471 2002 REYKJAVÍK Skeifunni 5 581 3002 REYKJAVÍK Skútuvogi 12 581 3022 2011 2011 2011 DEKKJAHÖLLIN AKUREYRI Draupnisgötu 5 462 3002 EGILSSTAÐIR Þverklettum 1 471 2002 REYKJAVÍK Skeifunni 5 581 3002 REYKJAVÍK Skútuvogi 12 581 3022 – fyrir kröfuharða ökumenn www.dekkjahollin.is Skoðaðu úrvalið á vefnum okkar: /dekkjahollin Verum örugg á veginum Dekkin skipta öllu máli! Þú færð þau í Dekkjahöllinni 400.000 króna tjón og fang- elsisdómur vegna hráka Manni á Akureyri reyndist dýrt að hrækja á lögregluþjón á Akureyri í fyrrasumar. Gildir þá einu þótt hrákinn hafi lent á skyrtu laganna varðar en ekki húð. Um þetta vitn- ar dómur Héraðsdóms Norður- lands eystra. Þar dæmir dómari að maðurinn skuli sæta eins mánaðar skilorðsbundinni fangelsisrefsingu og greiða málskotnað upp á rúmar 400.000 krónur. Saksóknari ríkisins sótti málið. Kemur fram í dóminum að sam- kvæmt rannsóknargögnum var lög- reglunni á Akureyri gert viðvart um ólæti við fjölbýlishús að Borgarhlíð á Akureyri aðfaranótt 23. ágúst 2013. Í lögregluskýrslu er vikið að því að kona hafi óskað eftir aðstoð lögreglu og „þar sem hún hafi verið vandalaus hér á landi“ hefði verið farið að óskum hennar og farið með hana á lögreglustöð þar sem henni hafi verið boðin gisting. Í rannsóknargögnum lögreglu segir frá því að skömmu síðar hefðu lögreglumenn farið á ný að nefndu fjölbýlishúsi, enda hefði ákærði „enn látið öllum illum látum“ úti á svölunum. Segir frá því að við komu hefði ákærði öskrað ókvæðisorðum að lögreglumönnunum og þar sem hann hafi ekki verið talinn líklegur til að bæta ráð sitt hafi hann verið handtekinn og færður í handjárn- um í lögreglubifreið, en síðan ekið að lögreglustöðinni á Akureyri, þar sem lögregluvarðstjóri hafi tek- ið ákvörðun um að vista hann í fangaklefa vegna ölvunarástands. Á þeirri leið hafi ákærði hrækt á bringu lögregluvarðstjórans. Segir í skýrslunni að af þeim sökum hafi skýrsluritari sett hönd sína fyrir andlit ákærða í þeim tilgangi að hindra það að hann hrækti frekar á lögreglumennina. Varðstjóri getur þess að vegna þessa hafi hann farið úr skyrtunni, og að hún hafi í fram- haldi af því verið þvegin. NEITAÐI SÖK Við þingfestingu málsins og við aðalmeðferð neitaði ákærði sakar- giftum. Ákærði kvaðst hafa verið undir áhrifum áfengis umrædda nótt og kannaðist við afskipti lög- reglumanna við heimili sitt en þar kvaðst hann hafa verið með þáver- andi sambýliskonu sinni. Ákærði bar að honum hafi aldrei verið til- kynnt um ástæðu handtöku hans umrædda nótt, en hann kvaðst hafa streist á móti er lögreglu- menn handjárnuðu hann og færðu í lögreglubifreið og óku á lögreglu- stöð. Fyrir dómi bar ákærði að við lögreglustöðina hefði hann verið leiddur af lögreglumönnum álútur út úr bifreiðinni og inn á lögreglu- stöðina. Ákærði neitaði því að hann hefði við lýstar aðstæður hrækt á lögreglumann. Þá kvaðst hann ekki hafa skýringar á andstæðum fram- burði lögreglumanna fyrir dómi. Í niðurstöðu dóms segir að sýni- legra sönnunargagna njóti ekki við í málinu. Þannig var ekki tekin ljósmynd af skyrtu lögregluvarð- stjórans, en að auki var upplýst fyr- ir dómi að myndbandsupptaka sem til var er atvik gerðust við fanga- inngang lögreglustöðvarinnar á Akureyri er ekki lengur til staðar. „Ber ákæruvaldið halla af þessu við sönnunarfærslu.“ Eigi að síður lýsa þrír lögreglumenn að ákærði hafi hrækt á skyrtu lögregluvarðstjóra. Að mati dómsins var framburð- ur lögreglumanna fyrir dómi skýr og greinargóður. „Að ofangreindu virtu telur dómarinn nægilega sannað með trúverðugum fram- burði þriggja lögreglumanna að ákærði hafi í greint sinn hrækt með lýstum hætti og að hráki hans hafi lent á skyrtu lögregluvarðstjóra í bringuhæð eins og segir í ákæru,“ segir í dóminum. FRAMKOMA VIRT TIL REFSILÆKKUNAR Í öðru máli þar sem ákært var fyrir brot gegn valdstjórninni var ungum manni sem hótaði tveimur lögreglumönnum öllu illu, öðrum þeirra lífláti, ekki gerð refsing. Seg- ir í nýjum dómi Héraðsdóms Norð- urlands að æska brotamannsins sem og sú staðreynd að hann hafi komið vel fram, beðist afsökun- ar og tekið í hönd lögreglumanna í dómsal hafi orðið manninum til tekna. -BÞ Leyst verði úr ágreiningi um strætó Aðalfundur Eyþings 2014 leggur áherslu á að leyst verði sem fyrst úr ágreiningi milli landshlutasamtaka um skiptingu tekna af strætóleið 57 ásamt því að ná fram endurskoðun á gjaldskrá landshlutasamtakanna á þessu hausti. Jafnframt sé mikil- væg forsenda fyrir framhaldi verk- efnisins að lög um fólksflutninga á landi verði sett á þessum vetri, til að tryggja einkarétt landshluta- samtaka á almenningssamgöngum. „Ef framangreindir þættir ná fram að ganga væntir aðalfund- urinn þess að forsendur skapist til þess að endurskoða uppsögn Eyþings á samningum við Vega- gerðina um rekstur verkefnisins. Þar með verði unnt að halda rekstri verkefnisins áfram og vinna enn frekar að framþróun almennings- samgangna innan starfssvæðis Eyþings ásamt því að þróa áfram samstarf um rekstur almennings- samgangna milli landshluta. Óum- deilt er að á landsvísu er um að ræða verkefni sem stuðlað getur að bættum forsendum til búsetu utan höfuðborgarsvæðisins og er það sýn Eyþings að ríkið verði að beita sér fyrir úrbótum svo hægt verði að tryggja rekstur almenningssam- göngukerfis sem nær til alls lands- ins,“ segir í ályktun. -BÞ Í einu dómsmáli var geranda sem lýsti iðrun fyrir dómi og tók í hendur lögreglu- manna ekki gerð refsing þrátt fyrir að hafa hótað löggunni lífláti. Í öðru tilviki var maður dæmdur í fangelsi og gert að greiða allan málsskotnað fyrir að hrækja á skyrtu lögreglumanns. Hólaskóla vantar 60 milljónir Menntakerfi Íslands á háskólastigi hefur verið fjársvelt á undanförn- um árum, hvort heldur þegar mið er tekið af fjármögnun háskóla- náms á Norðurlöndum eða meðal ríkja OECD. Þetta segir í tilkynn- ingu frá Háskólanum á Hólum sem segist þolandi í „þeirri uggvæn- legu þróun“. Ársverkum við skól- ann hefur fækkað um 20% frá ár- inu 2009 (úr 51,6 í 40) á sama tíma og kostnaður vegna stundakennslu stendur í stað. Álag og kröfur á starfsmenn skólans hafa marg- faldast, „og enn skal sorfið að sé mið tekið af frumvarpi til fjárlaga 2015. Samkvæmt frumvarpinu verður ekki greitt með 68 nemend- um og nemur sú upphæð allt að 60 milljónum króna sem í raun vant- ar upp á eðlilegan rekstur skólans“ segir í harðri tilkynningu frá há- skólaráði skólans. Háskólinn á Hólum hefur í gegn- um árin haft hátt hlutfall sértekna m.a. á formi rannsóknastyrkja. Há- skólaráð fagnar því að í fjárlögum sé veitt auknu fé í samkeppnissjóði en leggur áherslu á að rekstrarum- hverfi skólans verður jafnframt að vera tryggt. Háskólaráð Háskólans á Hól- um skorar á þjóðkjörna fulltrúa að efla háskólanám á Íslandi og stuðla þannig að jákvæðri þróun efna- hagslífs á Íslandi til framtíðar. a

x

Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.