Víkurfréttir - 20.01.2011, Blaðsíða 18
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001VÍKURFRÉTTIR I 3. TÖLUBLAÐ I 32. ÁRGANGUR18
Aleksanders Mavropulo er 33 ára, fædd-ur og uppalinn í Lettlandi en fluttist til
Íslands 4. febrúar árið 2000. Hann byrjaði
stuttu seinna að vinna hjá Byko í Keflavík
og hefur starfað þar í timbursölunni síð-
an. Aleksanders er mikill sérfræðingur um
timbur og eru fáar spurningar sem hann
getur ekki svarað um það efni.
Aleksanders sér alfarið um að afgreiða timb-
urefni ásamt öllu sem tengist byggingum.
Helstu viðskiptavinir sem hann afgreiðir eru
auðvitað iðnaðarmenn en þeir kunna vel við
Aleksanders enda dugnaðarforkur í vinnu að
sögn yfirmannsins.
„Þetta er fínasta vinna og mér hefur alltaf lík-
að vel hérna,“ sagði Aleksanders en bætti svo
við að það væri einstaklega gott samstarfsfólk
og teymið í timbursölunni mjög öflugt.
Aleksanders segir að framtíðarstarfið sitt sé
að vinna við eitthvað tölvufikt. Hann hefur
mjög gaman af öllu sem tengist tölvum, sama
hvort það er að setja þær saman eða rífa þær
í sundur. „Annars er framtíðin mjög svört.
Ég sé ekki fram á neitt nema bara að lifa af en
eftir u.þ.b. 15 ár verður ástandið í heiminum
hrikalegt að mínu mati,“ sagði Aleksanders
að lokum.
siggi@vf.is
Aleksanders
timbursölumaður
„Framtíðarstarfið við
eitthvað tölvufikt“
Starfið mitt
Nú hefur Lundur starfað í á fjórða ár, aðstoðað marga með ráðgjöf, fyrirlestrum og annars konar fræðslu,
aðallega hvað varðar afleiðingar af mis-
notkun ávanabindandi efna. Farið í skóla,
fyrirtæki og stofnanir. Til þess að geta rekið
slíka starfsemi þarf fólk að nýta sér þetta
betur.
Það líður varla sá dagur að ekki komi í fréttum
að þetta margir hafi verið teknir fyrir áfengis-
eða fíkniefnaakstur, og jafnvel með töluvert
af efnum til sölu, líkamsmeiðingar og önnur ofbeldisverk,
innbrot jafnvel framin, farið heim til sofandi fólks og það
lamið. Allir þeir einstaklingar sem eru á þessum ógæfustað,
eiga foreldra, systkini, vini og aðra ættingja sem eru aðstand-
endur þeirra, og líða fyrir það, margir hverjir. Aðstandendur
sem fyllast ótta, kvíða, svefnleysi og verða einfaldlega andlega
gjaldþrota. Þótt þeir einstaklingar sem neyta áfengis og/eða
annarra efna séu ekki tilbúnir til að leita sér hjálpar, þá er það
alveg lífsnauðsynlegt fyrir þá aðstandendur sem standa þeim
næst, það get ég sagt út frá eigin reynslu. Ef ég hefði ekki leit-
að mér aðstoðar sem aðstandandi og fengið hjálp með mína
meðvirkni, væri ég sennilega inni á einhverri stofnun núna,
eða hreinlega undir grænni torfu. Svo alvarlegt getur þetta
orðið. Enginn getur hjálpað okkur nema við viljum það sjálf.
Til þess að geta hjálpað börnunum okkar eða öðrum, þá verð-
um við að vera í lagi sjálf, vita og þekkja hvað við getum gert.
Til þess að vita, geta og þekkja, verðum við að FRÆÐAST
um þennan vágest, sjúkdóminn í heild sinni. ÞAÐ ER STAÐ-
REYND. Lundur býður upp á þá þjónustu sem þörf er á.
Að lokum langar mig til að láta vita af því að bæklingur fyrir
foreldra, eins konar handbók, er kominn vel á veg, fer í prent-
un á næstunni og verður sendur í öll hús á Suðurnesjum.
Erlingur Jónsson
Skoðið dagskrá Lundar.
www.lundur.net
Elíza Geirsdóttir Newm-an gaf út þriggja laga EP
plötu sl. mánudag um allan
heim en platan er gefin út á
stafrænu formi hjá Amason
og iTunes svo eitthvað sé
nefnt en þessar netbúðir eru
með þeim stærstu í heim-
inum. Platan inniheldur lög-
in Ukulele Song For You sem
hefur notið mikilla vinsælda
á Íslandi, lagið Eyjafjallajök-
ull og áður óútgefið nýtt lag
sem nefnist Out Of Control.
Öll lögin eru tekin upp með
Gísla Kristjánssyni sem einn-
ig stjórnaði upptökum á síð-
ustu plötu Elízu – Pie in the
Sky.
„EP platan er kynningarplata
en hún er einnig undirbúning-
ur fyrir plötuna Pie in the Sky
sem kemur út í allri Evrópu og
Bandaríkjunum í mars,“ sagði
Elíza, en platan er komin út á
Íslandi við góðar viðtökur.
Platan hefur nú þegar vakið
athygli í Bretlandi þar sem hið
virta tónlistartímarit Word
Magazine hefur valið lagið
Eyjafjallajökull á sérstakan
geisladisk sem fylgir blaðinu.
Þeir eru að kynna efnilega tón-
listarmenn til að fylgjast með á
nýja árinu. „Þetta er mjög góð
kynning fyrir mig sem lista-
mann og enn betra þar sem
ég er að gefa út stóru plötuna
mína hérna í Bretlandi svo
það má segja að þetta sé bara
frí auglýsing,“ sagði Elíza en
blaðið er nýkomið út í Bret-
landi. „Ég keypti blaðið í gær
[sunnudag] og er bara mjög
sátt.“
Elíza var að klára mastersnám í
Music education frá Roehamp-
ton háskólanum í London og
kennir núna tónlist í London.
En er tónlistin framtíðarplan-
ið? „Ég spila þetta bara eftir
eyranu og fylgi straumnum.
Ég nýti tækifærin þegar þau
gefast en annars plana ég þetta
ekkert langt fram í tímann,“
sagði Elíza. siggi@vf.is
Enginn getur hjálpað okkur
nema við viljum það sjálf
4 Erlingur Jónsson skrifar
4 Elíza Newman með nýja EP plötu
Spkef Sparisjóður býður 25 ára óverðtryggð lán í stað stofnbréfalána: „Ég spila þetta
eftir eyranu“
Viðbrögð hafa almennt verið góð hjá lántak-
endum. All
margir hafa
þegar geng-
ið frá sínum
málum sem
er afar já-
kvætt. Ein-
hverjir eru
ekki fyllilega
sáttir en það var viðbúið.
Verið er að reyna að koma til
móts við lántakendur eins
og kostur er,“ sagði Einar
Hannesson, sparisjóðsstjóri
um þær aðgerðir sem SpKef
sparisjóður kynnti í síðustu
viku vegna stofnbréfalána.
E i n ar s agð i a ð s t ar f s -
menn SpKef sparisjóðs hafi
að undanförnu hringt í
stofnbréfalántakendur sem
eru nálægt þrjú hundruð. Í
aðgerðum SpKef til stofnbré-
falántakenda er boðið upp á
skilmálabreytingu með þeim
hætti að skuldabréfin verði
færð í upphaflegan höfuð-
stól að viðbættum 3,75%
óverðtryggðum vöxtum frá
útgáfudegi skuldabréfanna.
Erlend lán verði færð á upp-
haflegt gengi gjaldmiðla að
viðbættum 3,75% óverð-
tryggðum vöxtum og þau
færð yfir í íslenskar krónur.
Vextir reiknast frá upphafleg-
um útgáfudegi. Lánin verði
óverðtryggð til 25 ára.
A ð s p u r ð u r u m h v o r t
stofnbréfalántakendur héldu
eftir einhverjum eignarhlut í
nýjum SpKef sparisjóði sagði
hann slíkt ekki vera en stofn-
fjáreigendur nokkurra ann-
arra sparisjóða hafa haldið
allt að 10% eignarhlut í nýj-
um sparisjóði. Eins hafa nýir
stofnfjáraðilar í einhverjum
tilfellum komið inn með nýtt
stofnfé, s.s. í Sparisjóði Vest-
mannaeyja. Ástæðan fyrir
því að stofnfjáraðilar hafa í
ákveðnum tilvikum haldið
eftir hluta af sínu stofnfé, eins
t.d. í tilfelli Sparisjóðs Bol-
ungarvíkur, er sú að í þeim
tilvikum var Seðlabanki Ís-
lands svo til eini kröfuhafinn
en í tilviki Sparisjóðs Kefla-
víkur voru kröfuhafarnir aðr-
ir og fleiri.
Kröfuhafafundur slitastjórn-
ar Sparisjóðsins í Keflavík
verður haldinn á Grand Hót-
el, Sigtúni, Reykjavík í dag
kl. 10:00. Á fundinum verð-
ur farið yfir helstu atburði í
Sparisjóðnum í Keflavík fram
að 23. júlí 2010 sem og helstu
verkefni slitastjórnar eftir
skipun hennar. Kröfuskrá
verður lögð fram á fundinum
ásamt mótmælum sem hafa
borist fyrir fundinn.
-segir Einar Hannesson, Sparisjóðsstjóri
Erum að reyna að koma til móts
við lántakendur eins og kostur er