Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.03.2011, Side 6

Víkurfréttir - 10.03.2011, Side 6
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001VÍKURFRÉTTIR I 10. TÖLUBLAÐ I 32. ÁRGANGUR6 Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið gunnar@vf.is. Auglýs- ingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, sími 421 0000 Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Blaðamaður: Sigurður Jónsson, sími 421 0004, siggi@vf.is Auglýsingadeild: Gunnar Einarsson, sími 421 0001, gunnar@vf.is Útlit, umbrot og prenvistun: Víkurfréttir ehf. Auglýsingagerð: Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0011, thorgunnur@vf.is og Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0011 Afgreiðsla: Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0009, rut@vf.is og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, aldis@vf.is Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf. Upplag: 8500 eintök. Dreifing: Íslandspóstur Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is 141 776 UM HVE RFISMERKI PRENTGRIPUR Ekki er vika án Víkurfrétta - sem koma næst út fimmtudaginn 17. mars. Bókið auglýsingar í síma 421 0001 eða gunnar@vf.is Ritstjórnarpistill Víkurfrétta PÁLL KETILSSON, RITSTJÓRI Marel Andrésson „Finnst þetta alveg ömurlegt og ég er ekki búinn að ákveða hvort ég haldi viðskiptum við bankann áfram.“ Inga Hildur Gústafsdóttir „Ég veit það ekki. Þetta á allt eftir að koma í ljós.“ Guðbjörg Ingimundardóttir „Það er ekki hægt að segja það í stuttu máli en ég er ekki sátt við það.“ Guðjón Árni Antoníusson „Sorglegt. Ég mun skoða hvað er í boði annars staðar áður en ég ákveð framhaldið.“ Steinþór Geirdal Jóhannsson „Þetta er það eina í stöðunni því þetta fór eins og þetta fór, lítið hægt að gera í því.“ Spurning vikunnar // Hvað finnst þér um samruna SpKef og Landsbankans? Afgreiðsla Víkurfrétta er opin alla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17. Athugið að föstudaga er opið til kl. 15. Rúmlega aldarsögu Sparisjóðsins í Keflavík lauk endanlega, reyndar með kennitölu númer tvö, síðasta mánudag. Hvað sem Landsbankinn mun gera er ljóst að það verður erfitt fyrir hann að fylla skarð SpKef sem alla tíð var ótrúlega náinn íbúum á Suðurnesjum. Víkurfréttir hafa fengið tölvupósta frá íbúum sem spyrja hvort ekki sé hægt að stofna nýjan sparisjóð. Fyrrverandi starfs- menn SpKef hafa miklar áhyggjur af framtíð sinni. Einn þeirra sagði við leiðarahöfund að þeim liði illa þar sem bankastjóri Landsbankans hefur gefið það út að það sé ekki útilokað að einhverjum verði sagt upp. Það verður forvitnilegt að sjá hvernig viðskiptavinir SpKef bregðast við þessum breytingum. SpKef var með yfir 50% markaðshlutdeild á Suðurnesjum og náði henni m.a. með því að taka þátt í samfélaginu hér með því að styrkja myndarlega alla tíð íþróttir, menningu og atvinnulífið. Það er því ekki ólíklegt að einhverjir fyrr- verandi viðskiptavinir SpKef hugsi sér til hreyfings eftir yfirtökuna því margir eru ósáttir. Í Víkurfréttum í dag eru auglýsingar frá þremur öðrum bankastofnunum auk Landsbankans sem allir vilja fá viðskipti þúsundir Suðurnesjamanna. Fyrir þremur árum síðan voru fjórar bankastofnanir á Suðurnesjum en nú eru aðeins tvær. Ef við skoðum stöðuna hálfa öld til baka hafa alla tíð verið fjórar bankastofnanir á svæðinu. Það er því ekki hægt að útiloka að hér opni þriðja bankastofnunin innan tíðar. Mörgum finnst ríkisvaldið hafa brugðist Suðurnesjum með þessari yfirtöku Landsbankans. Allir stóru bank- arnir á landinu hafa fengið ríkisaðstoð til að endurreisa sig á einhvern hátt en það var of dýrt að hjálpa Suður- nesjamönnum. Fjármálaráðherra þurfti að éta það loforð ofan í sig að SpKef yrði endurreistur. Hann segir líka í viðtali við VF að Suðurnesin geti alveg bjargað sér án álvers. Félagar hans í VG hafa líka sagt að það sé ekki hægt að starfrækja einkasjúkrahús og fleiri atvinnutæki- færi. Alls ekkert svona einka eitthvað. Það er svo vont. Ferðaþjónustan á að bjarga okkur og Eldfjallagarður. Þúsundir á Nettómóti Nettómótið í körfubolta er skemmtilegt dæmi um góða samvinnu körfuboltafélaganna í Keflavík og Njarðvík sem héldu auðvitað sínu sjálfstæði þrátt fyrir samein- ingu bæjarfélaganna. Fyrir um áratug var mótið fyrst haldið (hét fyrst Samkaupsmótið) en það er fyrir 12 ára og yngri. Nú um síðustu helgi kepptu 185 keppnislið frá 24 félögum. „Ég held að það séu ekki nærri nógu margir sem geri sér grein fyrir því hér á Suðurnesjum, hvað þetta mót er stórt og hvað framkvæmdin er gríð- arlega góð. Þetta er toppurinn á Íslandi í mótum fyrir krakkana,“ sagði formaður Körfuknattleikssambands Íslands við VF. Um þrettán hundruð keppendur og með foreldrum og forráðamönnum voru hér vel á þriðja þús- und gestir í Reykjanesbæ mótshelgina. Þetta var frábær hugmynd á sínum tíma sem nú er stærsta fjáröflun körfuboltadeilda Keflavíkur og Njarðvíkur. Hér samein- ast góðir kraftar bæjarbúa og margir njóta góðs af. Góðar hugmyndir eru nauðsynlegar til að góðir hlutir gerist. Blendnar tilfinningar við andlát Spkef Draumastarfið er atvinnukylfingur 4 Ásgeir Steinarsson, verslunarstjóri hjá Olís/Básnum 4,3 lítrar/100 km lítrar/100 km 4,2 4,3 lítrar/100 km lítrar/100 km3,8 ÍS LE N SK A/ SI A. IS /T O Y 54 04 5 03 /1 1 www.toyota.is Toyota Reykjanesbæ Njarðarbraut 17 Reykjanesbæ Sími: 420-6600 Nú er stórsýning hjá Toyota Reykjanesbæ laugardaginn 12. mars, á milli klukkan 12.00 og 16.00 þar sem sparneytnustu tegundir Toyota verða kynntar. Líttu við hjá Toyota Reykjanesbæ, taktu þátt í laufléttri getraun og kynntu þér hvernig hægt er að fá miklu meira úr hverjum bensínlítra. Stórsýning hjá Toyota Farðu lengra á hverjum dropa 50 þú su nd kr . b en sín ko rt frá O lís fyl gir öl lum To yo ta bif rei ðu m se m er u afh en tar eð a p an tað ar í m ars Bílarnir sem vísað er til í þessari auglýsingu eru: IQ 1.0l, Yaris 1.4 Dísel, Auris HSD og Prius HSD. Útlit bílanna í auglýsingunni getur að einhverju leyti verið frábrugðið útliti þeirra bíla sem vísað er til. Ásgeir Steinarsson, versl-unarstjóri hjá Olís/ Básnum, hefur staðið vakt- ina í 29 ár og hugar ekkert að breytingum, enda líkar starfið vel. Hann starfaði í tvö ár hjá Víkurás áður en hann hóf starf hjá Básnum. Nú hefur bensínverð hækkað mikið seinustu misseri og er fólkið í landinu ekkert hæst ánægt með þá breytingu. „Við finnum mjög mikið hvað fólk er reitt og svekkt yfir þessu ástandi. Sumir kúnnar reyndar láta bensínafgreiðslumann- inn finna fyrir því en það er bara eins og gengur og ger- ist í öllum verslunarbransa,“ sagði Ásgeir. „Auðvitað er fólk ekkert sátt við þetta og þar á meðal ég sjálfur. Ég þarf eins og allir aðrir að kaupa bensín á bílinn minn svo þetta snertir alla. Fyrir utan það er alltaf gott að vera á Básnum, starfs- fólkið yndislegt, góður mór- all og maður biður ekki um meira.“ Ásgeir er einnig mikill golfari og segir það bara vera lífið. „Ég byrjaði að spila golf árið 2001 í Golfklúbbi Sandgerðis með Gulla vini mínum. Við prófuðum og fengum þessa svakalegu dellu og sjáum ekk- ert annað,“ sagði Ásgeir. „Áður fyrr var vinnan númer eitt hjá manni og eitthvað hobbí með. Svo þegar ég kynntist golfí- þróttinni, þá er golfið númer eitt og vinnan bara eitthvað svona smá hobbí með.“ Ásgeir segir ekki nei við því þegar hann er spurður hvort hann vilji verða atvinnu- maður í golfi. „Ég held þetta sé draumastarf flestra þeirra sem spila golf. Það er eiginlega ekki hægt að lýsa þeirri tilfinn- ingu þegar maður nær góðu höggi, en það er einmitt það sem golfarinn sækist eftir. Ef maður ynni við að sækjast eftir góðri tilfinningu, væri maður á toppnum.“ siggi@vf.is Starfið mitt Ferðamálasamtök Suður-nesja fengu milljón króna styrk frá Ferðamála- stofu vegna úrbóta á ferða- mannastöðum. Styrkurinn fer í gerð á upplýsingaskilti við Gunnuhver. Alls hlutu 28 verkefni styrk að heildar- upphæð 33 milljónir króna. Styrkjum vegna úrbóta á ferðamannastöðum hefur verið úthlutað árlega frá 1995 og var þetta því í 17. skipti. Á þessum tíma hefur Ferða- málastofa varið yfir 700 millj- ónum króna til framkvæmda á um 300 stöðum á landinu. Styrkur í skilta- gerð við Gunnu- hver á Reykjanesi

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.