Víkurfréttir - 10.03.2011, Side 14
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001VÍKURFRÉTTIR I 10. TÖLUBLAÐ I 32. ÁRGANGUR14
4 Leikfélag Keflavíkur
4 Safnahelgi á Suðurnesjum
LÉTTU ÞÉR LÍFIÐ
HVAÐ ER STUÐNINGSSTÖNGIN?
Hjálpar- og öryggistæki sem auðveldar fólki að vera virkt og athafnasamt
við daglegt líf án þess að þurfa að reiða sig á aðra.
• Auðveld í uppsetningu
• Engar skrúfur eða boltar
• Tjakkast milli lofts og gólfs
• Hægt að nota við hallandi loft,
timburloft og mikla lofthæð
• Margir aukahlutir í boði
• Falleg og nútímaleg hönnun
• Passar allsstaðar og tekur lítið pláss
• Um 4000 notendur á Íslandi síðan 1999
www.vilji.is • Sími 856 3451
Viðurkennd af Sjúkratryggingum Íslands, hjálpartækjamiðstöð
Sæll Þorsteinn!
.
e) Færa heimasíðu og
símanúmer að miðjunni.
f) Nota sama lit og er
á próförkinni sem ég sendi yk-
kur “appelsínuguli”
g) Er möguleiki að
setja textan Er erfitt að standa
upp í svipað form ( stjörnu)
eins og er á hinni próförkinni ?
Er erfitt að
standa upp?
Föstudaginn 18. mars nk. mun ný revía verða
frumsýnd hjá Leikfélagi
Keflavíkur í Frumleikhús-
inu. Breiðbandið ásamt leik-
félagsdrengjunum Arnari
Inga og Gustav Helga eru
höfundar revíunnar en
Helga Braga Jónsdóttir leik-
stýrir.
Æfingaferlið er búið að standa
yfir síðan í janúar og nú er allt
að smella hjá hópnum. Eins
og í fyrri revíum þá eru tekin
fyrir hin ýmsu mál sem bæj-
arbúar og Suðurnesjamenn
allir ættu að kannast við.
„Það verða örugglega ein-
hverjir fúlir, bæði þeir
sem eru teknir fyrir og svo
verða líka alltaf einhverjir
óánægðir sem ekki eru teknir
fyrir, þannig hefur þetta alltaf
verið. Það er nokkuð fast
skotið í sumum atriðum en
við særum engan, alla vega er
það alls ekki ætlunin en fólk
sem er í sviðsljósinu verður
líka að geta tekið smá gríni
en það geta því miður ekki
allir“.
Eins og áður sagði verður
frumsýningin föstudaginn
18. mars og önnur sýning
sunnudaginn 20. mars.
Nánari auglýsing birtist í
næstu viku.
Fyrsti fræðslufundur þríþrautadeildar UMFN verður haldinn þriðjudaginn 15.
mars kl. 20:00 í Fimleikaakademíunni þar
sem Steinn Jóhannsson, Íslandsmeistari í
Ironman, eða Járnkarli eins og það heitir á
íslensku, mun segja frá því þegar hann setti
Íslandsmet á síðasta ári og fræða fólk um
greinina. Þá sýnir hann hjólið sitt sem er
fullbúið keppnishjól.
Tek i ð verð u r v i ð
skráningum í deildina
á fundinum og fyrstu æf-
ingarnar byrja svo á fullu í
næstu viku.
Stofnfundur þríþrautadeild-
arinnar var haldinn um
miðjan febrúar og var góð mæt-
ing en stofnfélagar deildarinnar voru
23 talsins og má binda vonir við að deildin vaxi
hratt á næstu vikum og mánuðum. Deildin
er sú fjórða á landinu og var Tyrfingur Þor-
steinsson kjörinn fyrsti formaður deildarinnar.
Með honum í stjórn voru kjörin þau Sigurbjörg
Gunnarsdóttir, Steindór Gunnarsson, Guðbjörg
Jónsdóttir og Ævar Örn Jónsson. Í varastjórn
voru kjörnir þeir Ásgeir Snær Guðbjartsson,
Haraldur Hreggviðsson og Kjartan Sævarsson.
„Þríþraut, eins og nafngiftin bendir til, sam-
anstendur af þremur greinum, sundi, hjóreið-
um og hlaupi þar sem allir geta tekið þátt,“ sagði
Tyrfingur Þorsteinsson, formaður þríþrauta-
deildar UMFN. „Vegalengdir eru misjafnar og
því geta allir fundið markmið við sitt hæfi. Ekki
er skylda að keppa, þó fólk æfi og því er
íþróttin kjörin til að halda sér í góðu al-
hliða formi.“
Hægt er að taka þátt í ýmsum vegalengd-
um. Sprettþraut, sem er stysta þrautin, hálf
Ólympísk þraut, Ólympísk þraut, hálfur
Járnkarl og svo Járnkarl, sem almennt er
talin erfiðasta þolþraut í heimi. Í sumum
keppnum eru liðakeppnir og geta þá hópar
tekið þátt, þar sem einn sér um að synda, annar
að hjóla og sá þriðji að hlaupa. Hægt er að velja
eina af þremur greinum eða tvær, fer allt eftir
einstaklingnum.
„Við stefnum á að ná 100 meðlimum fyrir sum-
arið. Það ætti ekki að vera neitt mál þar sem
áhuginn er mikill á svæðinu og okkur hafa bor-
ist margar fyrirspurnir,“ sagði Tyrfingur. „Æf-
ingagjöldin eru í lágmarki en það kostar aðeins
24.000 kr. árið, eða 2.000 kr. á mánuði og er það
næstum gefins.“ siggi@vf.is
Söfn á Suðurnesjum hafa tekið höndum saman um
að bjóða í þriðja sinn upp á
sameiginlega dagskrá helgina
12. – 13. mars nk. Söfn, setur
og sýningar á svæðinu eru
mörg og fjölbreytt og því
verður margt á döfinni og
fjölbreytt dagskrá. Auk þess
eru ýmis gallerí opin þar sem
handverk og listmunir eru til
sýnis. Athygli er vakin á því
að ókeypis er inn á öll söfnin
og þá dagskrá sem er í boði.
Fulltrúar allra sveitarfélaganna
fimm á Suðurnesjum hafa
unnið sameiginlega að undir-
búningi dagskrárinnar og er
verkefnið stutt af Menningar-
ráði Suðurnesja auk framlags
sveitarfélaganna sjálfra.
Dagskrá safnahelgarinnar er
hægt að nálgast á www.safna-
helgi.is. Í henni kennir ýmissa
grasa. Tónleikar, sýningar,
fyrirlestrar og margs konar
uppákomur. Listasmiðja fyrir
börn, Raggi Bjarna syngur sjó-
mannalög auk þess sem haldin
verður uppskriftarkeppni á
saltfiskréttum, rokk og ról og
harmonikutónlist. Skessan í
hellinum, Heimskautin heilla
og Sköpun alheimsins svo fátt
eitt sé nefnt. Í boði er sem sagt
mjög fjölbreytt menningar-
dagskrá og ókeypis afþreying
fyrir alla fjölskylduna.
Frumsýnir revíu
eftir rúma viku
Ókeypis á öll söfn á Suðurnesjum
4 Fyrsti fræðslufundur þríþrautadeildar UMFN nk. þriðjudag:
Stefnum að því að ná 100
meðlimum fyrir sumarið
-segir Tyrfingur Þorsteinsson, formaður deildarinnar