Víkurfréttir - 10.03.2011, Síða 18
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001VÍKURFRÉTTIR I 10. TÖLUBLAÐ I 32. ÁRGANGUR18
Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ um velferðarmál
12. mars kl. 10:30 í sal Sálarrannsóknarfélags
Suðurnesja Víkurbraut 13.
OPINN
LAUGARDAGSFUNDUR
Gestur fundarins er Guðbjartur Hannesson,
velferðarráðherra.
Allir velkomnir - heitt á könnunni.
Sálarrannsóknarfélag
Suðurnesja aðalfundur
Aðalfundur félagsins verður haldinn
14. mars kl. 20:00
Venjuleg aðalfundarstörf
Stjórnin.
Útskrifaðir voru 97 nem-endur á vegum Keilis sl.
föstudag. Um er að ræða 73
nemendur úr fjarnámi Há-
skólabrúar, 21 nemanda í
flugumferðarstjórn og þrjá
úr bóklegu atvinnuflug-
mannsnámi. Þar með hafa
724 nemendur hlotið braut-
skráningarskírteini frá Keili
á þeim tæpu fjórum árum
sem skólinn hefur starfað.
Fjarnámshópurinn kemur
víða að. Keilir hefur þróað
einstaklega góða tækni í fjar-
námi sem gerir fólki kleift að
stunda nám að miklu leyti á
netinu við mjög góð gæði og
nánum tengslum við kennara.
Í flugumferðarstjórninni náði
21 nemandi alla leið, þ.e. að
komast í gegnum þær síur sem
nám í flugumferðarstjórn felur
í sér.
Fram kom í máli Hjálmars
Árnasonar, framkvæmda-
stjóra Keilis, að nemendur eru
nú tæplega 600 talsins. Taldi
hann mikilvægt að sinna ungu
fólki vel – ekki síst á tímum
kreppu – svo við lendum ekki
í sömu ógöngum og Finnar á
sínu tíma. Unga fólkið hrein-
lega gleymdist þar á tímum
kreppunnar með óbætanleg-
um skaða fyrir samfélagið.
Viðurkenningar voru veittar:
Frosti Heimisson fyrir gott
framlag við uppbyggingu
námsbrautar í flugumferð-
arstjórn, Karen Axelsdóttir
dúxaði í flugumferðarstjórn
með einkunnina 9,83. Þá dúx-
aði Snjólaug Guðrún Jóhann-
esdóttir á Háskólabrúnni.
Hlutu þau öll viðurkenningu
fyrir vikið og Snjólaug Guðrún
flutti skörulega kveðjuræðu
fyrir hönd nemenda.
Jógvan Hansen, söngvari og
fyrrum nemandi á Háskólabrú
söng í upphafi og við lok at-
hafnar.
Keilir starfar nú á fjórum meg-
insviðum: Háskólabrú, Orku-
og tækniskóla, Heilsuskóla og
Flugakademíu. Innritun fyrir
næstu önn er hafin á www.
keilir.net.
Það var árið 1958 sem nokkrir ungir
Njarðvíkingar stofnuðu Lionsklúbb
Njarðvíkur. Þetta voru öflugir menn
sem vildu láta gott af sér leiða fyrir
bæinn sinn undir merkjum Lions.
Einn þessara manna var Jón Ásgeirs-
son þáverandi sveitarstjóri í Njarðvík
sem við kveðjum nú í dag. Ég hafði
heyrt margt gott um þennan klúbb og þegar
ég flutti í Njarðvíkurnar fyrir 20 árum lét
ég það verða mitt fyrsta verk að skrá mig í
klúbbinn. Þarna var mjög öflugur og sam-
hentur hópur helstu forkólfa bæjarlífsins og
því mikill akkur í því fyrir hvern nýkominn
að komast í þennan félagsskap. Lionsmenn í
Njarðvík hafa ávallt látið mikið að sér kveða
í bæjarlífinu í Njarðvík og staðið að mörgum
framfaramálum og uppákomum í byggð-
arlaginu og má þar nefna byggingu fyrsta
heimilis aldraðra í Njarðvík, Ólafslund. Þeir
lögðu einnig göngustíg milli Njarðvíkur og
Keflavíkur til að draga úr slysahættu á þessari
leið svo eitthvað sé nefnt. Í þessum góða hópi
kynntist ég Jóni Ásgeirssyni. Jón var afskap-
lega kurteis og vandaður maður með fram-
komu sem skapaði honum alls staðar sér-
stöðu og virðingu. Hann var höfðingi í lund
og lagði ávallt gott til málanna og reiðubúinn
til verka þegar þess þurfti með. Hann var
gjarnan þar sem þurfti að skipuleggja
fjármál og sjá um pappíra og því var
hann einn af þeim sem skipulagði
lionshappdrættið eftir að klúbburinn
byrjaði með það. Hann mætti á alla
fundi á meðan heilsan leyfði og lagði
mikið upp úr því að félagarnir sýndu
klúbbnum sínum þá ræktarsemi að
mæta á fundi. Hann gegndi fjölda trún-
aðarstarfa innan klúbbsins, m.a. sem for-
maður, gjaldkeri og ritari. Jón var útnefndur
sem Melvin Jones félagi fyrstur klúbbfélaga.
Jón lét ekki duga að gegna fjölda trúnaðar-
starfa fyrir klúbbinn í Njarðvík heldur var
hann mjög virkur innan Lionshreyfingarinn-
ar á Íslandi og gegndi þar æðstu stöðum.
Var hann m.a. umdæmisritari og gjaldkeri
Lionshreyfingarinnar á Íslandi 1960-1961 og
umdæmisstjóri 1968-1969. Að leiðarlokum
vill Lionsklúbbur Njarðvíkur þakka Jóni
Ásgeirssyni mikið og óeigingjarnt starf fyrir
Lionshreyfinguna. Hans störf munu lifa í
minningunni og lýsa öðrum Lionsmönnum
í störfum sínum um ókomin ár. F.h. Lions-
klúbbs Njarðvíkur vil ég votta aðstandendum
og öðrum ættingjum Jóns okkar dýpstu sam-
úð. Blessuð sé minning Jóns Ásgeirssonar.
Kristján Pálsson
97 útskrifaðir hjá Keili
Kveðja frá Lionsklúbbi Njarðvíkur
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og
útfarar föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Leifs Sædals Einarssonar,
Heiðarhorni 6, Keflavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins Hlévangs
og Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja fyrir einstaka umönnun og hlýhug.
Guð blessi ykkur öll
Oddný Guðbjörg Leifsdóttir, Björn Ólafsson,
Leifur Gunnar Leifsson, Brynja Hjaltadóttir,
Bryndís María Leifsdóttir, Friðrik Friðriksson,
barnabörn og barnabarnabörn.
STANDIÐ MEÐ OKKUR VAKTINA!
Tekið er við ábendingum um jákvæðar og
skemmtilegar fréttir alla daga í síma 421 0002
eða á póstfangið vf@vf.is
Fréttadeild VíkurFrétta