Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.03.2011, Page 22

Víkurfréttir - 10.03.2011, Page 22
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001VÍKURFRÉTTIR I 10. TÖLUBLAÐ I 32. ÁRGANGUR22 tekst mér alltaf að gleyma einhverju. Þegar við förum með rútu frá skólanum að ferðast innan Texas þá þurf- um við að taka með okkur skilríki og mér hefur alltaf tekist að gleyma vegabréfinu mínu. Þegar við komum að landamærunum þá koma menn inn í rútuna og spyrja hvort við séum bandarískir ríkisborgarar, ég hef því alltaf þurft að ljúga til um þjóðerni mitt. Þjálfarinn verður alltaf jafn pirraður út í mig þegar þetta gerist og ég hef verið að bíða eft- ir að vera skilin eftir út af þessu.“ Hvers saknarðu mest að heiman? „Fjölskyldunnar og vinanna en Skype hefur algjörlega bjargað mér. Ég er líka í daglegu sam- bandi við Helenu Sverrisdóttur sem spilar með TCU. Við ræð- um alltaf saman um hvernig æfingarnar eru og hvernig leikirnir fara og hvetjum hvora aðra og gefum hvor annarri ráð bæði um körfuna og félagslífið, þannig að það hjálpar helling.” Hefur ekki eingöngu verið dans á rósum „Þetta er lífsreynsla sem ég mun aldrei gleyma. Ég hef kynnst svo mörgum hérna í Texas og aðlagast vel umhverfinu að mér finnst eins og ég sé að fara að byrja upp á nýtt þegar ég kem heim. Ég myndi þó hiklaust mæla með þessu fyrir allt ungt íþrótta- fólk. Fólk þarf samt að vera mjög sterkt andlega til að þrauka bæði æfingar og að vera að heiman en þetta er eitthvað sem mér finnst að allir ættu að gera ef þeir hafa tækifæri til þess. Ég tel mig mjög heppna að hafa fengið þetta tækifæri að fá allt námið mitt borgað, þetta er alveg ómetanlegt. Mér finnst ég hafa bætt mig á mörg- um sviðum. Þetta hefur styrkt mig mikið sem leikmann og ég mun lifa á þessari reynslu alla mína ævi. Þetta hefur ekki alltaf verið dans á rósum og getur verið mjög erfitt,“ sagði körfuknattleikskonan María Ben Erlingsdóttir að lokum. EJS SPORT Stundum ekki nóg að tala ensku María býr á háskólasvæðinu í íbúð með þremur herberg- isfélögum frá Brasilíu, Finn- landi og Bandaríkjunum. Fyrstu tvö árin var hún á heimavist þar sem hún deildi herbergi með stelpu úr körfuboltalið- inu. Seinni tvö árin hefur hún svo verið í íbúð sem hún segir töluvert betri kost. „Þetta er mjög gott samfélag og gott að búa hér en mjög ólíkt öðrum borgum í Bandaríkjunum. Það tala allir spænsku hérna og stundum lendir maður í því að fólk skilur ekki ensku, ég get þó orðið bjargað mér á spænsku,“ segir María aðspurð um bæinn sinn Edinburg en þar búa um 50.000 manns. Lítill tími fyrir félagslífið „Það er mjög gott félagslíf hérna. Yfir tímabilið hefur mað- ur þó lítinn tíma fyrir félagslífið í skólanum og því finnst mér ég hafa misst smá úr að því leyti. Það eru ýmsir skemmtilegir amerískir viðburðir reglulega en ég hef mjög sjaldan komist á þessa viðburði vegna körf- unnar. Við íþróttamennirnir þekkjumst þó öll nokkuð vel og hittumst þegar tími gefst. Ég á einnig margar góðar vinkonur bæði í skólanum og í liðinu. Við förum mikið saman út að borða og í bíó og á alls kyns íþrótta- viðburði eins og hafnarbolta, - tennis - og körfuboltaleiki. Svo er strönd hérna rétt hjá sem er ansi vinsæl, þangað förum við oft,“ segir María um félagslífið í háskólanum. Er mikill munur á körfubolt- anum sem spilaður er þarna úti og heima? „Já, það er tölu- verður munur. Banda- ríski boltinn er hrað- ari en heima og leikmenn hafa þann eiginleika að vera snöggir, hoppa hátt og hlaupa hratt á meðan við á Íslandi erum með góðan grunn. Þjálfararnir hérna úti eru mjög kröfuharðir og það er hálfgerður heragi á æf- ingum. Þetta er fyrstu deildar skóli og við erum í riðli sem heitir The Great West.Við æfum á hverjum degi hérna en fáum oftast frí á sunnudögum, en ef það gengur ekki vel hjá okkur í leikjum þá er þjálfarinn með æfingar alla daga og þá stundum langar og erfiðar æf- ingar. Fyrstu tvö árin mín þá voru æfingarnar mjög langar (þrjá til fjóra tíma) en síðustu tvö árin hafa þær minnkað og eru þær í kringum tvo tíma.“ Ferðast mikið og gleymir alltaf vegabréfinu Aðspurð hvernig henni takist að sameina námið og ferðalögin sem fylgja körfboltanum seg- ist María hafa ferðast mjög mikið um Bandaríkin á þessum fjórum árum en henni líkar sennilega best við Kaliforníu og New York. „Við fáum oftast að heimsækja helstu og vinsælustu staði í viðkomandi fylkjum. Mér fannst mjög merkilegt að fá að fara til Hollywood og eyða deginum þar eitt árið. Skól- inn borgar allan kostnað sem fer í ferðalögin og maður þarf ekki að borga neitt til baka, aðeins spila góðan körfubolta og standa sig vel í náminu. Það er mjög erfitt að missa úr tímum og prófum jafnvel vegna ferðalaganna en kennararnir hafa alltaf unnið vel með manni. Mér fannst þetta hálf óþægilegt í fyrstu að missa svona úr skólanum en núna hef ég vanist þessu þannig að ég hef engar áhyggjur og það hefur gengið mjög vel.“ Það stóð ekki á Maríu þegar við spurðum hana hvort hún lum- aði ekki á góðri sögu frá dvöl sinni í Bandaríkjunum: „Liðs- félagar mínir gera mikið grín af því hvað ég er stundum utan við mig. Þegar við ferðumst þá María Ben Erlingsdóttir körfuknattleikskona úr Keflavík hefur undanfarin fjögur ár verið við nám í Bandaríkjunum ásamt því að spila körfubolta. Hún er í háskóla sem heitir University of Texas Pan American þar sem hún er á viðskiptasviði í fjármálanámi og mun María útskrifast í maí næstkomandi. Skóli Maríu er staðsettur mjög sunnarlega í Texas-fylki en í honum eru um 20.000 manns og eru um 90% nemanda frá Mexíkó, en landamærin við Mexíkó eru einungis í um 15 mín- útna fjarlægð frá bænum Edinburg. Árið um kring er hitinn um og yfir 30 stig í bænum og María viðurkennir að þetta hafi verið töluvert menningarsjokk fyrir hana í fyrstu, bæði hvað varðar menn- inguna og tungumálið. Við fengum Maríu til að fræða okkur um lífið og körfuboltann í Bandaríkj- unum. Ekki alltaf dans á rósum María Ben Erlingsdóttir körfuknattleikskona úr Keflavík hefur undanfarin fjögur ár verið við nám í Bandaríkjunum ásamt því að spila körfubolta. Á NBA leik með Rachel Hester, liðsfélaga sínum. Halloween í búningsklefanum.Með góðum vinkonum í skólanum.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.