Víkurfréttir - 28.04.2011, Blaðsíða 24
Fimmtudagurinn 28. apríl 2011 VÍKURFRÉTTIR 23
TILBOÐ EÐA TÍMAVINNA
ÖLL ALMENN
MÁLNINGARÞJÓNUSTA
LIST ÁN
LANDAMÆRA
Á SUÐURNESJUM
Suðurnesin taka nú í þriðja sinn þátt í hátíðinni List án landamæra undir stjórn
Reykjanesbæjar. Þar vinna fatlaðir og ófatlaðir listamenn saman að ýmsum
listtengdum verkefnum.
29. apríl kl. 17.00:
Opnun listsýningar í göngugötunni í Krossmóa (Nettó). Þar sýna félagar í
Björginni, geðræktarmiðstöð Suðurnesja undir leiðsögn Tobbu, börn í
dagþjónustu Ragnarssels og þjónustunotendur Hængarstöðvarinnar undir
leiðsögn Rutar Ingólfsdóttur. Sýningin stendur til 8. maí.
7. maí kl. 15.00:
Tónleikar í Frumleikhúsinu. Lifandi og skemmtilegir tónleikar undir stjórn
Jóhanns Smára Sævarssonar og Arnórs Vilbergssonar. Verða auglýstir betur síðar.
Við minnum einnig á Himininn, sýningu leikskólanema í Duushúsum og Listaverk
í leiðinni, sýningu grunnskólanema um allan bæ.
„Stemningin er þokkaleg og
menn eru bjartsýnir fyrir sum-
arið,“ sagði Ólafur Örn Bjarna-
son, þjálfari Grindvíkinga í knatt-
spyrnu.
Grindvíkingar luku undirbúnings-
tímabilinu með 1-3 tapi gegn ÍA í
vikunni en að sögn Ólafs var undir-
búningstímabilið nokkuð hefð-
bundið. „Ég geri ráð fyrir að menn
séu klárir í mótið því nú hefst alvar-
an. Gengi liða á undirbúningstíma-
bilinu hefur verið upp og niður og
það getur verið hættulegt að lesa of
mikið í þá leiki. Við höfum spilað
góða og slæma leiki eins og flest
lið en það skiptir ekki máli núna
þegar í mótið er komið, heldur að
vera klárir í fyrsta leik en það er
tilgangur undirbúningstímabils-
ins. Mótið byrjar þar sem öll lið
eru með 0 stig og í byrjun geta allir
unnið alla. Með því að spila þétt
fram í júní held ég að mótið verði
enn óútreiknanlegra.“
Grindvíkingar voru einu stigi frá
fallsæti á síðasta tímabili og árið
áður voru þeir í níunda sæti. Lið-
inu er spáð núna fyrir neðan miðja
deild. „Það er alltaf markmið að
gera betur en síðasta sumar sem
er ekkert mikið markmið. Klúbb-
urinn vill festa sig í efri hluta deild-
arinnar og ég tel það vera raunhæft
markmið því það eru tvö til þrjú
lið sem bera af, en svo eru um 7 lið
nokkuð svipuð að getu, eins og Val-
ur, Fram, Keflavík, Fylkir, Stjarnan,
Breiðablik og jafnvel ÍBV. Þessi 7 lið
tel ég vera okkar helstu keppinauta
sem verða að slást um allt frá 3. til
10. sæti. Hversu ofarlega við náum
get ég ekki sagt en það getur stað-
ið og fallið með leikbönnum og
meiðslum því hópurinn er ekkert
alltof stór.“
Miklar breytingar hafa verið á leik-
mannahópi Grindavíkur í vetur en
þeir fengu leikmenn til liðsins fyrr
en áður hefur verið. Leikmenn sem
fóru frá Grindavík voru Jósef Krist-
inn Jósefsson, Gilles Daniel Mbang
Ondo, Grétar Ólafur Hjartarson,
Auðunn Helgason, Loic Mbang
Ondo, Marko Valdimar Stefánsson
og Rúnar Dór Daníelsson. Þeir leik-
menn sem bættust í hópinn í vetur
voru Bogi Rafn Einarsson, Einar
Helgi Helgason, Magnús Björg-
vinsson, Ian Paul McShane, Jamie
Patrick McCunnie, Michal Pospisil,
Yacine Si Salem og Jack Giddens.
„Ég held að allir nýju leikmenn
liðsins komi með ákveðna hluti
sem gerir liðið betra, en það er allt-
af þannig með erlenda leikmenn
að maður veit ekki alveg fyrr en
það reynir á þá. Þeir sem við misst-
um voru þekktar stærðir í íslenska
fótboltanum og það fylgir alltaf
smá óvissa hvernig þeir nýju ná að
aðlaga sig boltanum hérna heima.
Ég trúi því að þeir spjari sig vel og
fylli í skarð þeirra sem fóru og von-
andi vel það.“
Ólafur Örn tók við liði Grindavík-
ur í fyrrasumar eftir að hafa ver-
ið að leika í Noregi. Hann spilaði
einnig með liðinu og var mikill
liðsstyrkur fyrir Grindvíkinga. „Ég
geri ráð fyrir að leika aftur með í
sumar, svo lengi sem ég get eitthvað
í fótbolta.“
-segir Ólafur Örn Bjarnason, þjálfari Grindavíkur
Grindvíkingar standa nú í ströngu að gera knatt-
spyrnuvöllin kláran fyrir sum-
arið. Eins og sést á meðfylgjandi
mynd er völlurinn þakinn í sandi
og voru vallarstarfsmenn að bera
áburð á völlinn þegar ljósmynd-
ari Víkurfrétta kíkti í heimsókn.
Bergsteinn Ólafsson, vallarstjóri
knattspyrnuvallar Grindavíkur,
sagði völlinn alltaf vera seinan til.
„Við erum yfirleitt á eftir hinum
völlunum á vorin en tökum svo
góðan kipp í byrjun maí. Núna
stendur fyrir mikill undirbúningur
fyrir fyrsta leik hér heima. Búið
er að gata völlinn og sanda. Þetta
kemur allt á endanum,“ sagði Berg-
steinn.
Fyrsti leikur Grindvíkinga á heima-
velli verður gegn Valsmönnum
sunnudaginn 8. maí. „Völlurinn
verður kanski ekki í toppstandi en
hann verður nógu góður til að ná
í Grindvískan sigur,“ sagði Berg-
steinn glaður í bragði.
„Nú hefst alvaran“
„Stemningin í hópnum er ljómandi góð og við hlökkum mikið til að
byrja Íslandsmótið,“ sagði Orri Freyr Hjaltalín, fyrirliði Grindavíkurl-
iðsins í knattspyrnu. Liðið hefur verið í botnslag undanfarin tvö ár og
var einu stigi frá falli á síðasta tímabili. Liðinu er spáð á svipaðar slóðir
af ýmsum fjölmiðlum á komandi tímabili.
„Spáin skiptir okkur ekki nokkru máli en okkur er alltaf spáð rétt fyrir ofan
fallsætin og er engin breyting á því þetta árið. Okkur líður bara vel með
þessa spá. Ég held að deildin eigi eftir að vera mjög jöfn þó FH sé kannski
sterkasta liðið í deildinni þetta árið. Í leikjunum í vetur hafa allir verið að
vinna alla svo ég held að bilið á milli efsta og neðsta sætis verði mjög lítið.
Okkur langar að berjast um efstu sætin og gera atlögu að Evrópusæti.“
Orri Freyr sagði undirbúningstímabilið hafa gengið þokkalega en þeir
hefðu þurft að glíma við meiðsli. „Við höfum ekki getað stillt upp okkar
sterkasta liði í vetur sem er ekki gott en við vorum með mjög breiðan hóp
í vetur sem er breyting frá síðustu árum. Vanalega höfum við verið að fá
leikmenn korter í Íslandsmót svo þetta er bara breyting til batnaðar.“
Karlalið Grindavíkur hefur aldrei landað Íslandsmeistaratitli á þeim 16
tímabilum sem þeir hafa verið í efstu deild. „Ég veit ekki hvort það kemur
titill hjá okkur í ár eða á því næsta en það styttist klárlega í hann. Við erum
með gott og sterkt lið sem á eftir að gera góða hluti bæði í deild og bikar,“
sagði Orri Freyr.
Völlurinn tekur góðan
kipp í byrjun maí
-segir Orri Freyr Hjaltalín, fyrirliði Grindavíkur
Ætlum að gera atlögu að Evrópusæti
›› KNATTSPYRNUSUMARIÐ 2011