Víkurfréttir - 05.05.2011, Síða 18
18 Fimmtudagurinn 5. maí 2011VÍKURFRÉTTIR
Karlakór Keflavíkur
Vortónleikar 2011
Ytri-Njarðvíkurkirkju
Fimmtudaginn, 5. maí, kl. 20:30
Söngstjóri: Guðlaugur Viktorsson
Píanóleikari: Jónas Þórir
Einsöngvari: Davíð Ólafsson
Ásdís Móeiður Sigurðardóttir, Árni Guðmundur Árnason
og fjölskylda.
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærs sonar okkar, bróður, mágs,
frænda og vinar,
Sigurðar Árna Árnasonar,
Keflavík,
sem lést 1. apríl sl.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja fyrir
ómetanlegan stuðning og vinarhug.
Margrét Vilmarsdóttir, Reynir Guðjónsson,
Alexander Vilmarsson, Lilja Friðriksdóttir
og afabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og samúð
við andlát og útför okkar ástkæra,
Vilmar Guðundsson,
Tjarnagötu 25, Keflavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
fyrir hlýja og góða umönnun. Guð blessi ykkur öll.
Kristinn Henneberg,
Júlía Kristinsdóttir,
Daniel Kristinsson.
Laufey Guðmundsdóttir,
(frá Hellu í Garði).
Heimdaldsgade 24 Ålaborg.
Lést á sjúkrahúsi Ålabogar 7. apríl 2011. Útför hefur farið
fram frá Romdrupkirkju. Minningarathöfn verður haldin
fimmtudaginn 5. maí 2011 kl. 18:30 í Útskálakirkju.
Jón Kr. Olsen vélvirkjameistari og vél-
stjóri var fæddur 10. september 1921
í Visnes, Lingstad, Noregi. Hann lést
á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 24.
apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru
Olav Ingvald Visnes Olsen frá Visnes,
Noregi f. 6.9.1889, d. 27.8.1973 og
Bjarnrún Magðalena Jónatansdóttir,
frá Sigluvík, Svalbarðsströnd, Eyjafirði
f. 28.11.1895, d. 2.5. 1970.
Systkini Jóns eru Ólöf María f.
3.7.1920, d. 21.12.1965. Sverrir Hart-
vig f. 9.11.1925, d.3.4.2005. Karl Hin-
rik f. 29.10.1926. Bjarni Gísli f. 5.9.1931. Henry f.
26.2.1936, d. 6.1.1938. Birgir f. 22.3.1937.
Jón fluttist með foreldrum sínum til Íslands síðla
árs 1924. Bjuggu þau um stuttan tíma á Akureyri en
sama ár settust þau að í Hrísey þar sem faðir hans
rak vélaverkstæði og útgerð. Árið 1929 fluttu þau til
Siglufjarðar þar sem faðir hans stofnaði Vélsmiðju
Siglufjarðar. Jón byrjaði að vinna í smiðju föður síns
14 ára gamall. Hann var á námssamningi í vélvirkjun
hjá föður sínum á árunum 1937-1941 og lauk síðan
prófi frá Iðnskóla Siglufjarðar 1942 og fékk meistara-
bréf í iðn sinni árið 1947.
Jón kynntist eiginkonu sinni, Gunnlaugu F. Olsen
f. 19.12.1923, d. 25.9.2008, árið 1941 og gengu þau
í hjónaband 30. okt. 1943. Foreldrar hennar voru
hjónin Sigurður Kristján Jónsson frá Básum í Gríms-
eyjarsókn í Eyjafjarðarsýslu, f. 16.2.1867, d. 21.2.1938,
og Sigurbjörg Pálsdóttir frá Lónsgerði í Kræklinga-
hlíð í Eyjafjarðarsýslu, f. 30.3.1886, d. 30.9.1965.
Börn Jóns og Gunnlaugar eru 1) Júlía Sigríður,
f. 31.8.1942, börn hennar eru a) Helgi Rósant, f.
6.6.1969, og b) Aida, f. 15.6.1971, sonur hennar
er Daníel Helgi, f. 1.9.2000. 2) Helga Rósa, f.
20.5.1944, gift Jessie W. Taylor, f. 23.3.1937. 3) Henry,
f. 16.6.1946, d. 15.3.2011. Börn hans eru a) Marí-
anna, f. 28.12.1972, og b) Gísli Birgir, f. 27.2.1975,
sonur hans er Tristan Breki, f. 27.2.2003. 4) Rut, f.
30.9.1954, gift Ingólfi Halldórssyni, f. 18.6.1958. Börn
hennar eru a) Gunnlaug F. , f. 19.8.1974, maki Sturla
Ólafsson. Börn Gunnlaugar eru Kristján Helgi, f.
3.1.1992, Emelía Rut, f. 17.3.1998, og Ásthildur Eva,
f. 29.8.2003. b) Jóna Kristjana Olsen, f. 18.12.1985,
maki Erik Williams.
Afkomendur Jóns og Gunnlaugar eru orðnir 28
talsins.
Árið 1945 seldi faðir Jóns fyrirtæki sitt á Siglufirði og
fluttist til Ytri Njarðvíkur þar sem hann stofnaði Vél-
smiðju Ol.Olsen hf. sem þá varð fjölskyldufyrirtæki.
Fylgdi Jón þar eftir með fjölskyldu sína og starfaði
í fyrirtækinu til ársins 1954 þegar hann ákvað að
breyta um starfsvettvang. Jón byggði fjölskyldu sinni
tvö hús í Njarðvíkunum, Brekkustíg 23 og Hólagötu
27. Árið 1957 fluttist fjölskyldan til Reykjavíkur og
vann hann þar næstu árin ýmist hjá
sjálfum sér eða öðrum. Fluttist síðan
fjölskyldan til Keflavíkur þar sem þau
Jón og Gunnlaug bjuggu til lífsloka.
Jón kom víða við á langri starfsævi.
Hann tók vélstjórapróf frá Fiskifélagi
Íslands 1963 og meiraprófið 1964.
Hann var um tíma vélstjóri á bátum.
Vélstjóri í Hraðfrystistöð Keflavíkur
á árunum 1963-1968. Þá var honum
falið að endurvekja Vélstjórafélag
Keflavíkur 1968, en félagið hafði ekki
starfað frá 1964. Hann náði góðu sam-
bandi við fyrrum félaga þess og var félagið endur-
vakið 1969. Félaginu var þá breytt í Vélstjórafélag
Suðurnesja þegar vélstjórar á Suðurnesjum ákváðu
að sameinast í einu félagi. Fjöldi félagsmanna náði
að verða 270, meðan sjávarútvegur var að einhverju
marki rekinn á Suðurnesjum. Jón var formaður
félagsins og starfsmaður í 23 ár, þá hætti hann for-
mennsku en starfaði fyrir félagið í 5 ár betur. Hann
hætti störfum árið 1997, þá 76 ára og var þá gerður að
heiðursfélaga félagsins. Var hann einnig heiðursfélagi
í Vélstjórafélagi Íslands.
Jón gegndi mörgum trúnaðarstörfum, hann var próf-
nefndarformaður í járniðnaði á Suðurnesjum árin
1950-1953. Hann útskrifaði nokkra járniðnaðarmenn
sem lærðu hjá Vélsmiðju Ol.Olsen hf. Þá sat hann í
samninganefndum Sjómannasambands Íslands í um
16 ár og var ritari sambandsins í nokkur ár. Fulltrúi
Sjómannasambands Íslands í stjórn Fiskifélags Ís-
lands í 4 ár og í nefnd Samgönguráðuneytisins til
endurskoðunar um menntun og starfssvið vélstjóra
og vélfræðinga.
Hann var formaður sjómannadagsráðs Keflavíkur í
nokkur ár.
Jón söng í mörg ár í Karlakór Keflavíkur og var einn
af stofnendum hans en auk þess söng hann í Kirkju-
kór Keflavíkurkirkju um tíma.
Jón var mikill íþróttaunnandi. Meðan hann bjó
á Siglufirði stundaði hann fimleika auk skíða-
íþróttarinnar sem mikið var stunduð á Siglufirði
á þeim árum. Eftir að hann flutti til Njarðvíkur
stundaði hann frjálsar íþróttir í nokkur ár og var í
hópi keflvískra íþróttamanna sem náðu mjög fram-
bærilegum árangri. Jón átti m.a. Suðurnesjametið í
hástökki í nokkur ár, þá var hann í spretthlaupum
og langstökki einnig. Árið 1989 eftir að hann hætti
störfum í félagsmálum sneri hann sér að golfíþrótt-
inni. Hann undi sér vel í golfinu og hafði oft orð á
því að hann hefði átt að byrja miklu fyrr. Síðustu árin
spilaði hann billjard í góðra vina hópi í Ballskák-
klúbbi Suðurnesja og hafði mikla ánægju af.
Jón verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju á
morgun, föstudaginn 6. maí, og hefst athöfnin kl.
14:00.
LIST ÁN
LANDAMÆRA
Á SUÐURNESJUM
TÖFRANDI TÓNLEIKAR
FRUMLEIKHÚSINU LAUGARDAGINN 7. MAÍ, KL. 14.00.
(Athugið breyttan tónleikatíma)
Lifandi og skemmtilegir tónleikar söngfólks úr röðum fatlaðra og ófatlaðra undir
stjórn okkar frábæru tónlistarmanna Jóhanns Smára Sævarssonar óperusöngvara
og Arnórs Vilbergssonar organista.
Ókeypis aðgangur og allir velkomnir á meðan húsrúm leyr
Minnum líka á myndlistarsýningar í tenglsum við List án landamæra í
göngugötunni í Krossmóa (Nettó). Þar sýna félagar í Björginni, geðræktarmiðstöð
Suðurnesja undir leiðsögn Tobbu, börn í dagþjónustu Ragnarssels og
þjónustunotendur Hængarstöðvarinnar undir leiðsögn Rutar Ingólfsdóttur.
Þátttakendur í Samvinnu sýna verk sín í Krossmóa 4.
Jón Kr. Olsen látinn
Opið alla virka daga frá kl. 10:00 - 18:00
Njarðvíkurbraut 9
Auglýsingasími VF er 421 0001