Víkurfréttir - 05.05.2011, Síða 21
Fimmtudagurinn 5. maí 2011 VÍKURFRÉTTIR 21
R í k i s s t j ó r n i n
hefur ákveðið að
fram eigi að fara
vönduð athugun
á kostum þess
að f lytja Land-
h e l g i s g æ s l u n a
til Suðurnesja og
að hagkvæmisat-
hugun verði gerð á þeim kostum.
Minnisblað Deloitte sem rætt
var í ríkisstjórn í síðustu viku og
á samráðsvettvangi sveitarfélaga
á Suðurnesjum og stjórnvalda, er
langt frá því að vera fullnægjandi
hagkvæmiathugun eða athugun
á kostunum. Minnisblaðið er í
mesta lagi innlegg í umræðuna. Í
það vantar ýmsa grundvallarþætti
málsins, s.s. mat á öryggismálum
og samlegðaráhrif við verkefni sem
Varnarmálastofnun sinnti áður.
Minnisblaðið mun ekki stöðva
framgang málsins enda er það
komið til þingsins í formi álykt-
unar allra þingmanna Suðurkjör-
dæmis. Fyrir dyrum stendur vinna
með ályktunina í allsherjarnefnd
Alþingis sem mun leiða málið til
lykta á málefnalegum forsendum.
Samband sveitarfélaga á Suður-
nesjum ályktaði í síðustu viku á
þann veg að mikilvægt væri að
halda áfram hagkvæmisgreiningu
á flutningi Landhelgisgæslunnar
þar sem farið yrði yfir hver sé fram-
tíð Landhelgisgæslunnar og hag-
kvæmni flutnings fyrir bæði gæsl-
una og Suðurnes. Einnig óskaði
stjórn SSS eftir því að myndaður
verði samstarfshópur stjórnvalda
og sveitarfélaga á Suðurnesjum til
að halda áfram greiningu á öllum
hliðum málsins. Ég tek undir
ályktun SSS og tel það algjörlega
nauðsynlegt að Suðurnesjamenn
komi að skilgreiningu þeirra kosta
sem greindir verða.
Næstu vikurnar munum við þing-
menn Samfylkingarinnar í Suður-
kjördæmi standa fyrir 10 opnum
fundum um al lt kjördæmið.
Við byrjum á Höfn í Hornafirði
miðvikudaginn 4. maí og endum
í Reykjanesbæ þann 21. maí. Við
munum kynna viðhorf og baráttu-
mál, áform og framkvæmdir en
fyrst og fremst hlusta á fólkið sem
sækir fundina. Fundirnir á Suður-
nesjum verða í Grindavík 10. maí
kl. 20:00 í sal Verkalýðsfélagsins, í
Garðinum 19. maí kl. 20:00 í sam-
komuhúsinu og í sal Sálarrann-
sóknarfélagsins í Reykjanesbæ
laugardaginn 21. maí kl. 10:30. Ég
hvet Suðurnesjamenn til að fjöl-
menna á fundina og ræða áætlanir
um uppbyggingu samfélagsins eftir
hrun á grundvelli jöfnuðar og rétt-
lætis.
Oddný G. Harðardóttir,
alþingismaður
Brekkustíg 38 | Reykjanesbæ | s. 421 2788 | Stefán 869 2788 | Ari 894 0354 | tsa@tsa.is
TSA ehf.
Trésmíðaverkstæði
Stefáns & Ara
Framleiðum gestahús,
garðhús eða hverskyns
hús af þínum óskum.
Sjáum um flutning
í sveitina.
Elegans Hársnyrtistofan á Nesvöllum - Reykjanesbæ - S. 421 4848
FLOTTAR VÖRUR Á
20%
AFSLÆTTI.
BED HEAD tilboð á hinu vinsæla
AFTER PARTY sem gerir hárið
silkimjúkt&glansandi ásamt
ROCKAHOLIC WAXI
sem mótar hárið eins og
þú vilt!
.
ELEGANS KYNNIR FRÁBÆRT
Tímapantanir: 421 6700 www.lundur.net
Dagskrá á mánudögum:
Kl. 10.00 – 16.00 Viðtöl hjá ráðgjafa
Kl. 16.30 – 17.30 Stuðningshópar
Kl. 18.00 – 19.00 Foreldrafræðsla
Forvarnarfélag
að Fitjabraut 6c
Opið alla mánudaga frá kl. 10.
Ráðgjöf – þarftu aðstoð? – viltu aðstoð?
F y r i r n o k k r u
síðan þurfti ég
á s a m t m í n u m
nánustu að koma
öldruðum tengda-
föður mínum á
öldrunarheimili.
Við áttum svo sem
ekki margra kosta
völ og tókum því með þökkum
að fá inni fyrir gamla manninn á
Garðvangi í Garði.
Mér varð hins vegar ekki um sel
þegar ég sá herbergið sem gamla
manninum var ætlað að búa í. Það
var örugglega minna en tíðkaðist
með barnaherbergi í íbúðum fyrir
áratugum.
Tengdafaðir minn hafði ekki mikið
í kringum sig í herberginu enda var
það ekki hægt. Rúmið komst illa
fyrir, ég sá þegar því var mismunað
inn í herbergið.
Rúminu var skáskotið upp á rönd
og pláss herbergis á móti þurfti
að nýta til að koma rúminu inn.
Með erfiðismunum var svo hægt að
smella því niður upp við vegg.
Næst var að setja örlitla kommóðu
undir gluggann þar sem hægt var
að hafa útvarp, önnur lítil dragkista
komst fyrir gegnt rúminu.
Lítið sjónvarp komst ekki fyrir í
herbergi gamla mannsins. Var því
brugðið á það ráð að setja upp á
vegg sérstakan arm fyrir sjónvarpið
við enda rúmsins.
Loks var hægt að koma fyrir einum
stól framan við rúmið. Þar var ekki
pláss fyrir fleiri. Það var ekki gert
ráð fyrir nema einum gesti í senn.
Væru gestir fleiri þurftu þeir að
opna hurðina og fara fram á gang.
Vaskur var í herberginu.
Mér fannst þetta ömurleg vistar-
vera. Það er svívirða að bjóða
gömlu fólki upp á svona kytrur. Það
er skömm að þessu. Mig grunaði
aldrei að aðbúnaður gamals fólks
væri með þessum ósköpum fyrr
en ég kom inn á Garðvang. Svona
aðbúnaður er liðinn hér í hlaðvarp-
anum hjá okkur!
Við eigum þess ekki kost að berja
þessi herlegheit augum fyrr en við
þurfum sjálf eða okkar nánustu að
nýta þessar kompur á Garðvangi.
Það er hörmulegt að við skulum
ekki búa betur að öldruðum svo
þeir geti lifað með reisn síðustu
æviárin. Allir eiga rétt á að geta
lifað mannsæmandi lífi, þá ekki sízt
aldraðir. Húsnæði fyrir þetta fólk
á að vera til fyrirmyndar, rúmgott
og auðvitað með sér snyrtingu sem
fylgja skal herberginu.
Rétt er að undirstrika að hér var ég
eingöngu að tala um bágborið hús-
næði aldraðra í Garðvangi í Garði.
En starfið þar með öldruðum sýnist
mér vera með ágætum og er ekki
hægt að kvarta yfir því. Það er
ástæða til að mæra starfsfólkið.
Það er ótrúlegt hvað starfsfólkið
getur gert fyrir dvalargesti og veit
ég þó að þarna, eins og víða annars
staðar, er allt undirmannað.
Gylfi Guðmundsson
Garðvangur engum bjóðandi
Eftir Gylfa Guðmundsson
Landhelgisgæslan og opnir fundir
Eftir Oddnýju G. Harðardóttur
Nú fer hver að verða síðastur til að skoða sýninguna Himingeiminn sem nú stendur í sýningarsal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum. Sýningin er afrakstur samstarfs listasafnsins og allra
10 leikskólanna í Reykjanesbæ sem saman hafa skapað undraveröld með dulúðugri birtu, ljósum og
hljóðum sem lætur engan ósnortinn. Hér er á ferðinni sýning sem tilvalið er fyrir foreldra eða ömmur og
afa að skoða með börnum sínum. Í Bíósal er boðið upp á litla smiðju þar sem börnin geta m.a. búið til
skuggaleikhús. Síðasti sýningardagur er sunnudagurinn 8. maí.
Síðasta sýningarhelgi Listahátíðar barna