Víkurfréttir - 15.09.2011, Síða 12
12 FIMMTudagurInn 15. sepTeMber 2011 • VÍKURFRÉTTIR
›› FRÉTTIR ‹‹
Auglýsingadeild í síma 421 0001
Fréttadeild í síma 421 0002
Afgreiðsla í síma 421 0000
vf.is • m.vf.is • kylfingur.is
Víkurfréttir
Dagana 30. september til og með 2. október verður ANH
helgi á Suður-
n e s j u m . A N H
er skammstöfun
fyrir atvinnu- og
nýsköpunarhelgi.
Til að samfélag
vaxi og dafni er
atv inna nau ð-
synleg. Svo hinar ýmsu greinar
atvinnulífsins eflist og þróist er
nýsköpun frumskilyrði. Ég býst
við að við vitum flest hvað atvinna
er. Hins vegar held ég að okkur
finnist mörgum að nýsköpun sé
helst á sviði kjarneðlisfræði eða
geimvísinda. Svo er ekki. Nýsköp-
un er ný eða marktækt betri af-
urð (þjónusta eða hlutur), fram-
leiðsluferli, leið til sölu- eða mark-
aðssetningar, stjórnunaraðferð
eða skipulagsfyrirkomulag innan
fyrirtækis eða stofnunar. Nýsköp-
unin getur ýmist verið ný fyrir
tiltekið fyrirtæki, land, markaðs-
svæði eða heiminn allan. Til þess
að teljast nýsköpun verður afurð-
in, ferlið eða aðferðin að komast í
gagnið. Þannig geta nýjar afurðir
ekki talist nýsköpun nema þær
fari á markað. Hið sama má segja
um ný ferli og aðferðir. Þær teljast
aðeins nýsköpun sé þeim hrint úr
vör innan fyrirtækisins eða stofn-
unarinnar. Stundum finnst okkur
þægilegra að skipta orðinu ný-
sköpun út með orðunum þróun,
hönnun eða skapandi hugsun.
Suðurnesin iða af lífi. Þar eru margir
sem hafa komið góðri hugmynd
í framkvæmd. Á Suðurnesjum
eru margir sem hafa frumkvæði,
kjark, þor og áræðni til að fylgja
eftir hugmynd svo hún verði að
veruleika. Stundum er sagt að til að
nýsköpun eigi sér stað verði fólk að
vera tilbúið að vinna. Það er vinna
að koma nýju hugverki á koppinn
en einnig óskaplega gaman. Það
er sérstaklega gaman þegar unnið
er í hóp. Það er eins og hugmyndir
stækki og verði áþreifanlegri þegar
sagt er frá þeim í hóp sem allur
er af vilja gerður til að koma sem
flestu í verk.
Já, Suðurnesin iða af lífi og sá hluti
sem ég þekki best, Sveitarfélagið
Vogar, er líkt og smækkuð mynd af
Suðurnesjunum öllum. Á innan við
ári hef ég séð margar hugmyndir
þar verða að veruleika, ýmist að
nýju fyrirtæki í fullum rekstri eða
grein út frá þegar starfandi fyrir-
tæki.
Nýverið gaf sjúkranuddarinn Elsa
Lára Arnardóttir út bók um ung-
barnanudd (Nudd fyrir barnið
þitt). Nú heldur hún námskeið í
ungbarnanuddi samhliða því að
reka Sjúkranuddstofu Elsu Láru.
Mæðgurnar Þóranna og Brynja
hófu rekstur flatkökugerðar á
Hafnargötunni í Vogum. Þær hafa
lengi bakað heimsins bestu flat-
kökur en ákváðu fyrr á þessu ári að
stíga skrefið og stofna fyrirtækið
Tótu flatkökur. Nú er hægt að fá
ýmislegt góðgæti hjá þeim.
Diljá Jónsdóttir er klæðskeri. Hún
hannar vörulínuna Húnihún sem
er fyrir börn og selur í Kirsuberja-
trénu á Vesturgötunni í Reykjavík.
Jörundur Guðmundsson vann
að hugmynd og opnaði veitinga-
staðinn Gamla Pósthúsið. Þar er
hægt að fá afbragðs pizzur. Á næstu
vikum verður farið að bjóða upp á
ýmislegt fiskmeti. Aðallega er horft
til silungs sem ræktaður er á Suður-
nesjum og kræklings sem ræktaður
er út af Vogum.
Birgir Þórarinsson býr á Minna
Knarrarnesi. Í sumar var opnuð
bændagisting þar. Sú eina á Vatns-
leysuströnd.
Inga Rut Hlöðversdóttir lauk gull-
smíðanámi í vor. Nú rekur hún
gullsmíðastofu í Vogum. Þar er
margt forvitnilegt að finna.
Marta Jóhannesdóttir í Hlöðunni
vinnur að menningarmálum. Fyrir
utan að halda markaði, gjörn-
ingahátíðir og bjóða upp á hljóðver
þá er hún að koma gestaíbúð fyrir
listamenn á kortið. Á þessu ári hafa
þrír listamenn dvalið í Vogum og
unnið að grein sinni.
Mótorsmiðja. Í haust hefur mótor-
smiðja starfsemi. Það er hugmynd
sem hefur lengi legið í loftinu.
Nú er komið húsnæði, nokkrir
áhugasamir hafa boðið fram krafta
sína. Líklega verða fyrstu skrefin
stigin um líkt leyti og ANH helgin
verður.
Hér hef ég talið örfá af nýjum tæki-
færum sem hafa orðið að veruleika
í Vogum árið 2011. Ég er viss um
að engin af þessum hugmyndum
hefðu orðið að veruleika ef þeir
sem fengu þær hefðu ekki talað um
þær, myndað hóp, deilt þeim með
öðrum. Verið tilbúnir að vinna.
Séð fyrir sér þróun og haft gaman
að. Margir hafa hugmynd sem þeir
vilja gjarnan deila með öðrum.
Aðrir vilja þróa hugmynd sem aðrir
eru með. Allir sem vilja vera með
til framtíðar eru velkomnir á ANH
sem haldin verður á Suðurnesjum.
Þú þarft ekki að hafa viðskiptahug-
mynd til þess að taka þátt. Það eina
sem þarf er opið hugarfar og vilji til
þess að vinna hörðum höndum að
framgöngu viðskiptahugmyndar,
þinnar eigin eða annarra. Skráning
er á vefsíðunni www.anh.is
Ég hlakka til að sjá ykkur sem flest.
Eirný Vals,
bæjarstjóri Sveitar-
félaginu Vogum
Atvinnu- og nýsköpunarhelgi verður haldin á Suðurnesjum þann 30. septem-
ber til 2. október á Suðurnesjum. Helgarnar
eru samstarfsverkefni Landsbankans, Inn-
ovit og sveitarfélaga landsins. Atvinnu- og
nýsköpunarhelgarnar (ANH) verða haldnar
um land allt næstu mánuðina í þeim tilgangi
að virkja fólk til athafna og láta góðar hug-
myndir verða að veruleika. Á helgunum fá
þátttakendur tækifæri til þess að vinna saman
að frumgerð vöru eða þjónustu sem síðar
getur orðið að fullvaxta fyrirtæki.
Allir geta tekið þátt, bæði þeir sem eru með
viðskiptahugmynd og þeir sem vilja vera með
í teymi sem vinnur að viðskiptahugmynd. Fjöl-
margir aðilar með víðtæka reynslu og menntun
munu einnig kíkja við yfir helgina, setjast niður
með teymum og aðstoða þau við framgöngu
hugmyndarinnar. Þá verða nokkur 5-10 mín-
útna erindi flutt sem eru praktísk og snúa að
uppbyggingu hugmyndarinnar. Að helginni lok-
inni geta þátttakendur síðan unnið áfram með
vel mótaðar viðskiptahugmyndir og látið þær
verða að veruleika. Verðlaun eru veitt í nokkrum
flokkum.
Erlend fyrirmynd helgarinnar er Startup Week-
end (www.startupweekend.org), en slíkar helgar
eru haldnar víðs vegar um heiminn til þess að
aðstoða fólk við að keyra viðskiptahugmyndir
af stað. Startup helgarnar hafa verið haldnar í
meira en 100 borgum í 25 löndum. Þá hafa yfir
15.000 manns sótt þá fjölmörgu viðburði sem
hafa verið haldnir og yfir 2000 sprotar myndast
í kjölfarið.
Að baki helginni standa fjöldi aðila á Suður-
nesjum, svo sem öll sveitarfélögin, Samband
sveitarfélaga á Suðurnesjum, Heklan - nýtt at-
vinnþróunarfélag Suðurnesjamanna, Keilir -
Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs, Sam-
band atvinnurekenda á Reykjanesi, og Þróunar-
félag Keflavíkurflugvallar. Að auki nýtur helgin
stuðnings fjölda annarra aðila og fyrirtækja.
Umsjónaraðili verkefnisins er Innovit nýsköp-
unar- og frumkvöðlasetur en viðburðirnir eru
haldnir með stuðningi og í nánu samstarfi við
Landsbankann.
Ferlið er í stuttu máli á þessa leið:
Þátttakendur sem eru með viðskiptahugmynd
halda stutta kynningu á henni. Það er í góðu lagi
að hugmyndin sé á byrjunarpunkti og kvikni
jafnvel á staðnum.
Mynduð eru teymi um þær hugmyndir sem
mestan hljómgrunn fá og unnið er áfram með
þær yfir helgina.
Settar eru vörður um hvernig beri að þróa við-
skiptahugmyndina yfir helgina og hvaða vörðum
hópurinn ætli sér að ná.
Samvinna er lykill helgarinnar.
VINNA ! VINNA ! VINNA!
Kynningar á hugmyndunum og verðlaunaaf-
hending
Athugið að viðburðurinn er fyrir alla þá sem vilja
vera með og leggja atvinnusköpun og nýsköpun
lið með kröftum sínum og þekkingu - ekki bara
þá sem eru með viðskiptahugmynd!
Boðið er upp á léttar veitingar yfir helgina.
Blásið verður til leiks seinnipart dags föstudag-
inn 30. september og helginni lýkur seinnipart
sunnudagsins 2. október og fer viðburðurinn
fram í húsakynnum Keilis á Ásbrú.
Allir geta tekið þátt og það kostar ekkert! Skráið
ykkur á vefsíðunni www.anh.is þar sem þið getið
líka fengið frekari upplýsingar!
Þeir sem eru á Facebook geta líka fylgst með þar:
www.facebook.com/ANHSudurnes
Ath þó að skráning þarf að fara fram í gegnum
heimasíðuna.
Þyrstir þig í að skapa og framkvæma?
›› Eirný Vals, bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Vogum skrifar:
Atvinnu- og nýsköpunarhelgin
virkjar Suðurnesjamenn til að kynda undir atvinnulífinu á svæðinu!
Á meðfylgjandi mynd má sjá fulltrúa aðstandenda helgarinnar sem komu saman þegar heimasíðu verkefnisins, www.anh.is, var hleypt af stokkunum.
Haustmark-
aður Hlöðunnar
í Vogum
Haustmarkaður Hlöð-unnar í Vogum á Vatns-
leysuströnd verður haldinn í
annað sinn laugardaginn 17.
september frá kl. 12-18.
Laugardaginn 17. september
bjóða íbúar Voga og Vatnsleys-
ustrandar grönnum sínum að
njóta haustuppskerunnar með
sér.
Meðal þess sem verður á boð-
stólum er ýmislegt matarkyns
svo sem sultur, rúgbrauð og
nýupptekið grænmeti. Einnig
verða til sölu húfur, treflar og
prjónadúkkur ásamt öðru hand-
verki.
Á markaðnum verður keppt
um bragðbestu sultuna og eru
gestir hvattir til þess að skrá sig
í keppnina á netfangið sveita-
markadur@hladan.org. Einnig
verður svokallað „skiptiborð“
á markaðnum þar sem hægt
verður að skipta á varningi s.s.
grænmeti, sultutaui, handverki
eða lopasokkum.
Boðið verður upp á kaffi og heitt
súkkulaði á sanngjörnu verði
og landnámsgeitur- og hænur
koma m.a. í heimsókn.
Markaðurinn er haldinn í hlöðu
sem stendur við Egilsgötu 8 eða
bæinn Minni-Voga í Vogum á
Vatnsleysuströnd og hefst hann
stundvíslega kl. 12:00 laugar-
daginn 17. september.