Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.09.2011, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 15.09.2011, Blaðsíða 14
14 FIMMTudagurInn 15. sepTeMber 2011 • VÍKURFRÉTTIR vf.is 9VÍKURFRÉTTIR • FIMMTudagurInn 8. sepTeMber 2011 Mikill mannfjöldi var á Ljósanótt í Reykjanesbæ og var hápunkturinn á laugardags- kvöldið þegar metfjöldi mætti í miðbæinn. Húsbílar og hjólhýsi fylltu öll tjaldsvæði, sem boðið voru upp á og eins stæði við Æg- isgötuna við hátíðarsvæðið. Lögreglan var með mikinn við- búnað alla helgina og voru um 40 lögreglumenn á vakt á laug- ardagskvöldinu þegar hátíðin stóð sem hæst. Fjöldi björgunarsveit- armanna var við störf bæði á landi og sjó, auk Landhelgisgæslunnar. Þá naut lögreglan á Suðurnesjum aðstoðar frá sérsveit Ríkislögreglu- stjóra og lögreglunni á Höfuðborg- arsvæðinu. Þá voru sjúkraflutn- ingamenn til taks á hátíðarsvæðinu. Engin alvarleg mál komu til kasta lögreglu fyrir utan slys í leiktæki á hátíðarsvæðinu á laugardeginum, þar sem 9 ára gömul stúlka slasaðist alvarlega á handlegg eftir að hafa fest hann í tækinu. Mikið annríki var hjá lögreglunni á laugardags- kvöldinu en miðað við mannfjölda gekk allt vel fyrir sig. Umferðin gekk hægt en greiðlega fyrir sig og lítið um umferðaróhöpp um helgina. Annríki hjá lögreglu á Ljósanótt en allt gekk vel Íslenska sjávarútvegssýningin 2 0 11 Smárinn, Kópavogur • September 22-24 www.icefish.is Eini viðburðurinn sem nær til íslenska sjávarútvegsins í heild sinni * Alþjóðlegar VIP-sendinefndir verða á staðnum * Íslensku sjávarútvegsverðlaunin verða afhent í fimmta sinn þann 22. september 2011 Forðist biðraðir og sparið fé! Skráið ykkur á Netinu á www.icefish.is til þess að spara 20%! Allt fyrir atvinnumenn í sjávarútvegi frá veiðum til vinnslu og dreifingar á fullunnum afurðum Nánari upplýsingar veitir Marianne Rasmussen-Coulling í síma +44 (0) 1329 825335, netfang: mrasmussen@mercatormedia.com Íslenska sjávarútvegssýningin er atburður á vegum Mercator Media Samstarfsaðili um flutninga SkipuleggjandiAlþjóðleg útgáfa Opinber íslensk útgáfa Opinbert flugfélag/loftflutningafélag & hótelkeðja Icefish 2011_140wx90h_Aug22nd_Icefish 22/08/2011 08:10 Page 1 Stærsta Ljósanóttin Það var fjölbreytt dagskráin í Frumleikhúsinu á föstudeginum en ungar og efnilegar hljómsveitir af ýmsu tagi stigu þar á stokk. Þarna mátti sjá argasta harðkjarna og dúllulega popptónlist, svo allt þar á milli. Margar skemmtilegar hljómsveitir komu fram og m.a. þessir hressu strákar í hljómsveitinni A day in december. Snemma á laugardagsmorgun voru þeir allra morgunhressustu mættir við Vatnaveröld til þess að þreyja Reykjanesmaraþon Lífsstíls. Veðrið var með besta móti en undanfarin ár hefur verið vætusamt á meðan á hlaupinu hefur staðið. Það var margt um manninn við Skólaveg 12 á laugardaginn þar sem elsta starfandi plötuútgáfufyrirtæki landsins, Geimsteinn, er til húsa. Lands- þekktir listamenn komu þar fram í veðurblíðunni þ. á m. voru goðsagnir eins og Bjartmar Guðlaugsson, Gylfi Ægisson og sjálfur meistari Megas. Auk þess komu fram yngri tónlistarmenn eins og hljómsveitirnar Lifun, Eldar og Valdimar. Írena Líf Jónsdóttir er búin að vera í sjósundi í 1 ár og æft sund frá 10 ára aldri. Sjósundið segir hún henta sér betur en hið hefðbundna sund. „Ég hætti í sundi vegna meiðsla en í sjónum er allt svo dofið út af kuldanum þannig að ég get synt eins og ég vil án þess að finna fyrir verkjum.“ Á dögunum varð Írena yngst allra til að ljúka Viðeyjarsundinu svokallaða þar sem synt er frá Viðey til Reykjavíkurhafnar. Ekki nóg með það heldur náði hún besta tíma sem náðst hefur í þessu erfiða sundi eða á 1:18.07. Írena Líf er 16 ára stúlka úr Njarðvík en hún hefur nú flust til Akureyrar þar sem hún hyggst hefja nám í MA og síðar meir stefnir hún á að fara í læknisnám. Fo r m l e g t Vi ð e y j a r s u n d e r 4,3 km langt í beinni línu en oftast er synt um 5 km vegna strauma. Hvernig hagaði hún undirbúningi fyrir sundið? „Ég synti frá Viðeyjarbryggju og inn í Reykjavíkurhöfn hjá gamla slippnum. Ég synti í sundbol en ekki galla og var með sundhettu og sundgleraugu, var ekkert smurð. Ég undirbjó mig eiginlega ekkert, ákvað á sunnudagskvöldi að synda þetta á mánudagsmorgni. Ég var samt búin að vera að fara í sjóinn á Fitjum, úti í Vogum og á Garðskaga. Svo var ég líka búin að vera að synda aðeins í Nauthólsvík og tók þátt í Íslandsmeistaramóti og vann 3 km sund kvenna.“ Hvað er svona skemmtilegt við sjósund? Kuldakikkið, sjá svipinn á fólki þegar ég kem upp úr og að geta synt endalaust áfram í stað þess að synda fram og til baka sömu leiðina í sundlaug. Hver eru helstu áhugamál þín fyrir utan sundið? Gítar, júdó, fjölskylda og vinir. Hvenær stefnirðu á Ermasundið og er það alveg raunhæft markmið? 2012 ef ég fæ gott slot, annars 2013. Já fólk telur það raunhæft og hefur mikla trú á mér. Hvers vegna fluttir þú norður á Akureyri? Ég er að fara í MA Áttu þér einhverja fyrimynd í sundinu? Já, klárlega Benna Hjartar Ermasundsfara, hann er snillingur. Hvert stefnirðu í framtíðinni bæði hvað varðar sundið og í skólanum? Að klára Ermasundið og synda eitthvað nýtt og spennandi hérna heima. Klára MA og fara svo í læknisfræði. Úr klórnum í saltið Njarðvíkingar eygja enn veika von um að leika í 1. deildinni í knattspyrnu karla að ári. Þeir eru þremur stigum frá öðru sætinu sem nægir þeim til þess að komast upp um deild og á laugardaginn klukkan 14:00 fá þeir granna sína úr Reyni Sandgerði í heimsókn. Reynismenn hafa ekki að neinu að keppa sem slíku en fyrri viðureign liðanna í sumar endaði 6-3 fyrir Reyni í bráðfjörugum leik. Víkurfréttir náðu tali af Gunnari Magnúsi Jónssy ni þjálfara Njarðvíkinga. „Ég býst bara við fjörugum leik og vona að sem flestir sjái sér fært að mæta, miðað við markasúpuna sem þessi lið hafa boðið upp á í sumar þá ætti enginn að vera svikinn. Það væri óskandi að liðin hefðu bæði möguleika á að komast upp eins og gerðist fyrir tveimur árum en nú erum það við sem getum mögulega komið okkur upp og þetta verður hörkuleikur.“ Njarðvíkingar eru þremur stigum á eftir Tindastól/Hvöt og verða því að treysta á að þeir tapi sínum leik og Njarðvíkingar sigri granna sína úr Sandgerði. Tímabilið hefur verið brokkgengt hjá Njarðvíkingum og þeir hafa m.a. ekki enn sigrað tvo leiki í röð í sumar. „Það er í raun ótrúlegt og deildin hefur verið gríðarlega jöfn. Það er líka merkilegt að segja frá því og sennilega er það einsdæmi en það hefur ekki enn orðið 0-0 jafntefli í deildinni í sumar sem er hreint með ólíkindum.“ „Þetta er ungt lið sem skortir kannski reynslu en þarna eru fullt af hæfileikamönnum. Ég tel að við séum tilbúnir í slaginn í 1. deild en auðvitað yrði kannski að bæta við nokkrum reynsluboltum og svo verða þessir strákar sem við erum með orðnir einu ári eldri. Það kemur svo í ljós á laugardaginn hvort við náum að klára þetta, það er enn von,“ sagði Gunnar og hvatti um leið fólk til að mæta á leikinn. ENN ER voN Reykjanesmótið í körfubolta er farið af stað og léku Suðurnesjaliðin sína fyrstu leiki í gærkvöldi og eru úrslit ókunn þegar þetta er ritað en Kefl- víkingar tóku á móti Breiðablik og Njarðvík heimsótti Hauka. Grindvíking- ar mæta svo lærisveinum Teits Örlygssonar í Stjörnunni í Garðabæ í kvöld. Erlendir leikmenn eru komnir á klakann og liðin orðin nánast fullmönnuð, áhugamenn um körfubolta geta því loks glaðst yfir því að tímabilið sé að hefjast fyrir alvöru. Úrslit úr leikjum gærdagsins er hægt að nálgast í íþrótt- um á vefsíðu okkar, vf.is. REykjaNEsmótið í köRfukNattlEik hafið

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.