Þjóðlíf - 01.12.1987, Blaðsíða 18
„Neskaupstaður er Taisan íslands“
Segir Yu Chong Hua blakþjálfari
\ H a n *
1 -t-i-1*........• • - i
* *-
ÍL
• Yu Chong Hua a æfingu.
HAUSTIÐ 1978 VAR byrjaö að æfa blak
með skipulegum hætti hjá íþróttafélaginu
Þrótti í Neskaupstað. Þá óraði engan fyrir
því að tæpum tíu árum síðar myndi um tíu
prósent íbúa bæjarins leggja stund á íþróttina
og félagið eiga íslandsmeistara í nokkrum
aldursflokkum pilta og stúlkna. Sem dæmi
um hið ágæta unglingastarf hjá blakdeild
Próttar má nefna að á síðasta ári þegar
unglingalandslið íslands í blaki léku lands-
leiki í Neskaupstað voru fimm Norðfirðingar
í stúlknaliðinu og sjö í piltaliðinu.
Nú er blakíþróttin tiltölulega ung á íslandi
og á ekki jafn glæsta sögu og aðrar bolta-
íþróttir, sem stundaðar eru innanhúss. En
hvers vegna skyldi þá blakæði hafa gripið um
sig í Neskaupstað?
Astæðurnar eru ýmsar, en þrjár koma
fyrst upp í hugann: í iyrsta lagi eru forystu-
menn Þróttar óhemju duglegir og áhuga-
samir. Ber þar helst að nefna þá Ólaf Sig-
urðsson og Grím Magnússon kennara við
Verkmenntaskóla Austurlands, en þraut-
seigja þeirra og starfsgleði hefur smitað út frá
sér og stuðlað að mydun samhents og góðs
hóps, sem stendur að baki stafsemi blak-
deildarinnar. Sem dæmi um dugnaðinn má
nefna að öll þjálfun á vegum deildarinnar var
unnin í sjálfboðavinnu þar til í september sl. í
öðru lagi má skýra uppgang blaksins í Nes-
kaupstað með því að íþróttahúsið á staðnum
er of lítið til að hægt sé að stunda þar aðrar
vinsælar boltagreinar með góðu móti, en
húsið hentar hinsvegar blakinu vel. í þriðja
lagi má skýra ást Norðfirðinga á blakíþrótt-
inni með því að vonin til að ná góðum
árangri, t.d. íslandsmeistaratitili, eróneitan-
lega meiri í þeirri grein en rótgrónari íþrótt-
um eins og t.d. handknattleik eða körfu-
knattleik.
Vissulega mætti líka benda á þætti sem
gera það óhemju erfitt að leggja stund á
blakið í þessum austasta kaupstað landsins.
Það er t.d. staðreynd að hvergi annars staðar
í Austfirðingafjórðungi er blak iðkað af
alvöru sem keppnisgrein og því þurfa Þrótt-
arar að fara langan veg til að etja kappi við
verðuga andstæðinga. Styst geta þeir farið til
Akureyrar eða Laugarvatns, en flestir kapp-
leikir fara þó fram á Reykjavíkursvæðinu.
Og til að halda niðri ferðakostnaði hafa
Þróttarar tekið upp þann sið að fara með
rútu til allra leikja á útivöllum. Skiljanlega
verða slíkar ferðir yfir háveturinn oft hinar
ævintýralepustu, en rútunni ekur enginn
annar en Ólafur Sigurðsson núverandi leik-
maður og fyrrverandi þjálfari.
Hin síðari ár hafa íslensk íþróttafélög í
talsverðum mæli sóst eftir kínverskum blak-
þjálfurum og á yfirstandandi keppnisári hafa
fimm kínverjar ráðist til slíkra starfa á Iand-
inu. Fjórir þeirra þjálfa hjá félögum á
Reykjavíkursvæðinu, en sá fimmti, Yu
Chong Hua, leiðbeinir norðfirsku blakfólki.
Yu Chong Hua þjálfar alla aldursflokka
Þróttar og þegar hann telur ástæðu til leikur
hann einnig með meistaraflokki karla í
fyrstudeildarkeppninni.
Yu kemur frá borginni Nanking í Kina, en
þar munu vera búsettar um þrjár milljónir
manna. Yu er vel menntaður þjálfari, en
hann lagði stund á nám við íþróttaháskólann
í Nanking á árunum 1962-70 og var blakið
þar hans sérgrein. Auk námsins lék hann
með úrvalsliði héraðsins, Jiangsu, en það er
eitt af sterkustu liðunum í Kina. Annars er
Yu alinn upp í Shanghai og borginni Suzhou,
sem mun vera einhver mesta ferðamanna-
borgin í kínverska alþýðulýðveldinu.
Árið 1976 hætti Yu að mestu að leika
blak, en tók við þjálfun Jiangsu-liðsins.
Þjálfaði hann liðið með góðum árangri og
hefur gert síðan að undanskildu árinu 1982,
en þá annaðist hann þjálfun kvennalandsliðs
Kína, sem reyndar vann heimsmeistaratitil
undir hans stjóm.
ÞJÓÐLÍFI lék forvitni á að fá að vita
meira um þennan mann, sem kemur frá
milljónaborg í fjölmennasta ríki heims eftir
að hafa þjálfað veraldarinnar bestu blak-
18