Þjóðlíf - 01.12.1987, Síða 24
ERLENT
• Táknræn mynd fyrir sérstaka tegund barnabarsmiöa i Svíþjóð.
Kristilegu kærieiksblómin
Uppagudfræöi og barnabarsmíöar í Svíþjóö
SÉRTRÚARSÖFNUÐIR ÝMSIR hafa verið
nokkuð til umfjöllunar að undanförnu í Sví-
þjóð. Nokkrir þeirra hafa tengst rannsókn
morðsins á Olof Palme sökum ofstækisfulls
haturs á Palme. Aðrir hafa svo lent undir
smásjá sökum óvanalegrar afstöðu í ýmsum
málum. Einn þessara hópa nefnir sig Orð
lífsins og mun sækja fyrirmynd sína (og stýr-
ingu) til Bandaríkjanna. Hingað til hefur
hópur þessi aðallega vakið athygli fyrir þá
guðfræðilegu afstöðu sem Svíar nefna
„framgángsteologi“ og e.t.v. mætti íslenska
sem „uppaguðfræði“. Felst hún í því að litið
er svo á að reikningsstaða einstaklinga hjá
almættinu endurspeglist í jarðnesku hlut-
skipti þeirra. Þannig megi ljóst vera að þeir
er nokkuð eiga undir sér séu í náðinni meðan
fátæklingar og sjúklingar séu syndugri en
góðu hófi gegnir og taki nú út sína hegningu.
Hefur mörgum blöskrað þessi afstaða til ver-
aldlegrar velferðar og flestir kirkjunnar
þjónar snúist gegn hugmyndinni. Þeir sem
raunsærri (eða kaldhæðnari) eru hafa hins
vegar bent á að hvað svo sem Kristur hafi
sagt um eyri ekkjunnar þá hafi það aldrei
verið nema eyrir og ekki verði lengi gert út á
slíkar upphæðir. Orð lífsins hefur á hinn bóg-
inn, líkt og margir aðrir sértrúarsöfnuðir,
virst ávaxta sitt pund vel og mun enda boð-
skapurinn hljóma betur í eyrum þeirra er
hvorki þurfa né vilja velta hverri krónu, en
hinna er engar krónur hafa til að velta. Er
sjálfsagt eins gott að menn taki mátulega
alvarlega líkinguna um úlfandann og nálar-
augað.
En þó svo þessi uppaguðfræði hafí verið
það er upphaflega vakti verulega athygli á
söfnuði þessum hefur þó annað mál skyggt
hér mjög á að undanförnu. Svo virðist sem í
söfnuði þessum sé forræðishyggja með ólík-
indum sterk, boðskapur safnaðarprestsins
lítt í efa dreginn og allt lagt í sölurnar. Er
raunar svo komið að sænska kirkjan hefur
séð sig tilneydda að bjóða fyrrverandi með-
limum uppá „lækningu" í formi samræðna
og bæna, meðan þeir eru aftur að ná áttum í
samfélaginu.
FORRÆÐISHYGGJAN hefur tekið á sig
önnur form og öllu ógeðfelldari. í ljós hefur
komið að söfnuðurinn telur líkamlegar refs-
ingar nauðsynlegar börnum og gengur þar
þvert gegn opinberri afstöðu Svía. Eins og
kunnugt mun vera eru bamabarsmíðar
bannaðar með lögum hérlendis og hefur svo
verið í þó nokkur ár. Frekar eru lög þessi þó
táknræn fyrir afstöðu samfélagsins en að
þeim sé mikið beitt og þær ógnarsögur er ég
man eftir að hafa heyrt íslendinga segja um
sænsk börn er komið hafi foreldrum sínum í
fangelsi fyrir smáskell eiga sér enga stoð í
raunveruleikanum. Sárasjaldan hefur það
komið fýrir að börn kærðu foreldra sína og
þegar það hefur gerst, hefur það sýnt sig að
síst var vanþörf á að grípa í taumana.
Nú hefur þó komið í ljós að söfnuður þessi
sker sig mjög úr í sænsku samfélagi, í og með
vegna þess að hann hvetur foreldra til að
refsa börnum sínum líkamlega og leiðbeina
forsvarsmenn safnaðarins um rétt vinnu-
brögð. Pannig skulu foreldrar jafnan hafa
biblíuna á lofti við refsingar og ekki má beita
24