Þjóðlíf - 01.12.1987, Page 35
LISTIR
• Karl: „Vissar fílósófiur eru einsog
útgangspunktar."
um forngrikkja. Tónlist frakkans Schön-
bergs er öll útsett fyrir tuttugu manna hljóm-
sveit af bresku „súperstjörnunni" John
Cameron, en hann mun væntanlega verða
kominn hingað til lands þegar þessar h'nur
birtast til að leggja Þjóðleikhúsinu lið. Sæ-
björn Jónsson verður hljómsveitarstjóri sýn-
ingarinnar, en Agnes Löve hefur unnið alla
tónlistina með leikurunum.
Benedikt: „Og ekki má gleyma því að
Böðvar Guðmundsson hefur unnið það
mikla þrekvirki að þýða þennan þriggja
klukkustunda langa söngtexta. Það er sann-
arlega ekki hlaupið að því að þýða svona
stykki, en að okkar dómi sem stöndum að
sýningunni þá hefur tekist glettilega vel til og
texti þeirra Boublils og Kretzmers kemst vel
til skila. Sjálf músíkin er mjög rómantísk,
enda mikið sótt í smiðju nítjándu aldar tón-
skálda. Inná milli bregður síðan fyrir bar-
áttusöngvum í Marseillaise takti.“
NEISTAFLUG MILLI PÓLA. „Verkið er
ákaflega dramatískt," heldur Benedikt
áfram, „og eitt megineinkenni þess er tog-
streitan á milli andstæðna; svart eða hvítt,
gott eða illt, rétt eða rangt? Þetta eru spum-
ingar sem í gegnum allt verkið brenna á vör-
um persónanna. Þama eru heiftarleg upp-
gjör einstaklinga við sjálfa sig, tilgang sinn og
tilveru í heimi óvissu og ótta. Öllum þessum
einstaklingum er eins og stillt upp við vegg
og til að mynda veldur spurningin um rétt-
niæti glæps einni aðalsöguhetjunni miklum
heilabrotum. En það er spurningin um ást
eða ekki ást sem skapar spennu og neistaflug
á milli hinna andstæðu póla í hugum þessa
fólks.“
Karl: „Þetta er dæmigerð nítjándu aldar
rómantík þar sem hetjurnar þurfa að ganga í
gegnum einhvern hreinsunareld til að ná
stillingu sinni og fyrri reisn og töfraljóma.
Sýningin er full af bókmenntalegum vanga-
veltum og textahöfundarnir, Boublil og
Kretzmer, eru mjög trúir hinni upphaflegu
sögu Hugos.“
Svo er bara að sjá hvernig þessir nítjándu
aldar Fransmenn spjara sig á Þjóðleikhúss-
fjölunum á annan í jólum. Skyldi fellibylur
tendra í þeim dularfullan neista?
• Ólafur Engilbertsson
Ingólfsstræti 6, s. 25656
Hektu hhrtvaií
Vesalingarnir er með flóknustu sýningum sem
Þjóðleikhúsið hefur sett á svið. íhenni leika 28
fullorðnir og þrjú börn. Með helstu hlutverk
fara:
Egill Ólafsson: Jean Valjean, söguhetjan.
Jóhann Sigurðsson: Javert lögregluforingi.
Aðalsteinn Bergdal: Enjolras, forsprakki
stúdenta.
Ragnheiður Steindórsdóttir: Fantine.
Edda Heiðrún Backman: Cosette, dóttir
Fantine.
Sverrir Guðjónsson: Marius, elskhugi
Cosette.
Sigurður Sigurjónsson: Thénardier.
Lilja Þórisdóttir: Madame Thénardier.
Sigrún Waage: Éponine, dóttir Thénardier-
hjónanna.
Víðir Óli Guðmundsson og ívar öm
Sverrisson: Gavroche, götustrákur.
Dóra Ergun og íris Ósk Lárusdóttir: Éponine
sem lítil stúlka.
35