Þjóðlíf - 01.12.1987, Qupperneq 36
LISTIR
HELGI FRIÐJÓNSSON
• Þórunn leikstjóri: „Ámóta vinna og að stýra
frystitogara."
Síldin kemur
A síðastliðnu ári var söngleikurinn
„Síldin kemur og síldin fer“ eftir syst-
urnar Kristínu og Iðunni Steinsdœtur
fluttur á a.m.k. þremur stöðum utan
höfuðborgarsvæðisins. í þessum upp-
færslum voru gamlir slagarar síldarár-
anna notaðir til að gefa tóninn. Nú þegar
Iðnó tekur verkið upp er frumsaminni
tónlist Valgeirs Guðjónssonar veitt inn í
verkið auk þess sem Hlíf Svavarsdóttir
hefur verið ráðin til að semja ný dans-
atriði og hreyfingar. Leiktextinn sjálfur
stendur hins vegar að mestu óbreyttur,
en á þeirri stundu sem þetta erskrifað eru
þó uppi ráðagerðir um að breyta nafni
verksins í„Síldin er komin“.
AÆTLAÐ ER AÐ frumsýna síldarsöngleik-
inn í leikskemmunni á Meistaravöllum hinn
8. janúar 1988, á aímælisdegi Ágústs Finns-
sonar - svo vitnað sé í Valgeir Guðjónsson,
textahöfund og tónlistar-. Nú fara að verða
síðustu forvöð að njóta hinnar sérkennilegu
braggastemmningar sem skemman býður
upp á, þar sem til stendur að rífa hana næsta
sumar. „Við flytjum okkur þá bara yfir í
næsta bragga,“ segir Þórunn Sigurðardóttir
leikstjóri galvösk. Ástandsáraverkið Djöfla-
eyjan hefur nú verið flutt í skemmunni fyrir
fullu húsi svo mánuðum skiptir og nú er sem-
sé ætlunin að skyggnast á önnur mið í ís-
landssögu þessarar umbrotaaldar og rifja
upp síldarárin.
Þær systur, Iðunn og Kristín, hafa að
undanförnu verið iðnar við kolann í leikrita-
• „Hópsýning hinnar samhentu alþýðu.'
gerð. Nú nýlega hlutu þær verðlaun í leik-
ritasamkeppni Ríkisútvarpsins fyrir verk sitt
„ 19. júní“, og önnur stykki þeirra systra munu
nú vera á fjölum hér og hvar á landsbyggð-
inni. Síldin kemur og síldin fer var þó fyrsta
verkið sem þær skrifuðu í sameiningu. Iðunn
hefur gefið út sex barnabækur og Kristín
hlaut barnabókaverðlaun Vöku/Helgafells
fyrir Franskbrauð með sultu á síðasta ári.
Leikritagerð þeirra systra er sérkennilegur
stakkur búinn þar sem Kristín býr á Akra-
nesi en Iðunn í Reykjavík. Að sögn Iðunnar
láta þær fjarlægðir ekkert á sig fá og senda
iðulega Akraborgina yfir flóann með leik-
þætti og leiðréttar setningar allt upp í þrisvar
á dag. Venjulegast skrifa þær þátt og þátt
hvor í sinni höfn og eiga því giska jafnmikið í
sögupersónunum.
KLOFSTÍGVÉL UNGDÓMSÁRANNA. í
upptærslu Leikfélags Reykjavíkur á þessu
síldarævintýri þeirra systra bætist Valgeir
Guðjónsson við sem þriðji textahöfundur,
því auk tónlistar semur hann söngljóð í verk-
ið.
Aðspurður segir Valgeir þessa nýju tónlist
við verkið ekki vera slagara eða períóðu-
músík einsog notast var við í fyrri uppfærsl-
um. í stað einnar harmonikku er nú komin
sex manna hljómsveit sem Jóhann G. Jó-
hannsson (ekki Óðmaður!) mun stjórna.
„Það má segja að ég gefi í textunum
komment á atburðarásina í stað þess að bæta
einhverju við hana,“ segir Valgeir. „Þetta er
að sjálfsögðu allt unnið í mesta bróðerni,"
segir leikstjóri verksins, Þórunn Sigurðar-
dóttir, og höfundurinn Iðunn samsinnir því.
„Við Valgeir höfum unnið saman áður í leik-
húsi og vitum því nokkurnveginn að hverju
við erum að ganga,“ heldur Þórunn áfram.
„Gott ef við ferðuðumst ekki saman um
landið á nærbrókinni einni fyrir á að giska
áratug. Þá vorum við bæði þátttakendur í
söngleiknum Grœnjaxlar; Valgeir sem hluti
af Spilverki þjóðanna, sem sá um tónlist í
verkinu. Þá voru ævintýratímar og allir svo
ungir og upprennandi, ekki satt Valgeir?"
Valgeir jánkar, ífærður klofstígvélum sem
hann kveðst einmitt hafa valsað um í öll ung-
dómsárin í slorinu, en stígvélin þau arna
væru nú orðin órjúfanlegur þáttur í sviðs-
Sfldin kemur
Valgeir Guðjónsson semur söngljóð í verk
þeirra Iðunnar og Kristínar Steinsdætra sem
Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir þann 8.
janúar n.k. Upphafssöngurinn heitir Síldin
kemur og er á þessa leið:
I litlum bœ við lygnan sjó
er lifað mestanpart í spekt og ró.
Sumir gera annað á meðan aðrir gera hitt
og enginn hugsar eingöngu um sitt.
A klofstígvélum ganga karlar þar
og konur hnýta siffonslœðurnar.
Illa klceddur ceskulýður með sitt kvef og hor
elst upp við saltfisk, sauðkindur og slor.
Pá heyrirfólk í útvarpinu frétt.
Nei, fjandinn, getur þetta verið rétt?
Nú harðlífið og blankheitin á kjaftinn verða
kýld
því komin er hin sumarvissa síld.
Og síldin veður um víðan fjörð
á vosklœðum má sjá þá Grím og Hörð,
Kristínarnar, Karítösin og Hildigunnurnar
hverfa onísíldartunnurnar.
Nýársuppfærsla Leikfélags Reykjavíkurí Skemmunni
36