Þjóðlíf - 01.12.1987, Qupperneq 41
LISTIR
Lúkas í Bdgíii
„Frábært leikhúsverk“
segir leikstjórinn
í nóvember sýndi leikhúsið Brussels
Kamer Toneel verkið Lúkas eftir Guð-
mund Steinsson. Fréttaritari Pjóðlífs var
ú staðnum og ræddi við leikstjórann og
fleiri. Ummœli leikstjórans eru þau að
hér sé um frúbært leikhúsverk að ræða.
ÞETTA ER í FYRSTA skipti sem íslenskt
leikrit hefur verið sett á svið í Briissel. Við
þýðingu leikritsins var stuðst við enskan og
þýskan texta. Lítið flæmskt atvinnuleikhús,
Brússels Kamer Toneel sýndi leikritið og var
þýðingin unnin á vegum þess. Fram til þessa
hefur þekking Belga á íslandi verið ærið
klisjukennd: „Á íslandi eru eldfjöll, hverir
og fiskur og aftur fiskur." Nóbelskáldið
þekkja margir og einstaka menn hafa lesið
verk þess, oftast sér til ánægju. Líklegast
hafa knattspyrnumennirnir haldið uppi
merki íslands á seinni árum. Norðursjávar-
byggð Belgíu á langa hefð í samskiptum við
ísland, bæði í gegnum verslun Hansakaup-
manna og sömuleiðis sjómanna allt fram
undir seinustu ár. Á þeim slóðum mun hægt
að finna torg og stræti sem kennd eru við
ísland. Þar kyrjar fólk einnig fjölda þjóðlaga
sem greina frá svaðilförum á íslandsmið og
ástúðle^um samskiptum við fólkið uppi á
landi. Islendingar sækja þó lítið til Belgíu
annað en samskipti við NATO og Evrópu-
bandalagið. Það er. í rauninni miður vegna
þess að þjóðleiðin til Evrópu endar í túnjaðr-
inum, þ.e. í Luxemborg. Belgía hefur upp á
margt að bjóða, Brússel er mjög falleg borg og
gömlu borgirnar í Flandri eru nánast mið-
aldasöfn. Ekki spillir að þjóðin er elskuleg,
hvor þeirra sem er.
LEIKHÚSIÐ. Brússels Kamer Toneel hefur
starfað í 25 ár, en það varð til á sjöunda
áratugnum sem framúrstefnu- og tilrauna-
leikhús. En þeir sem vildu breyta heiminum
gegnum leikhúsið eru orðnir gamlir og því
hefur Brússels Kamer Toneel fundið sér nýtt
hlutverk. Það einbeitir sér helst að því að
koma á framfæri verkum óþekktra höfunda
og nýtur mikillar virðingar sem slíkt. Opin-
ber viðurkenning hefur fengist á þessu hlut-
verki leikhússins og árlega fær það styrk frá
ríkinu, tæplega 13 milljónir íslenskra króna.
Leikritið Lúkas var valið af löngum lista
ættuðum frá Þýskalandi, en þar er margt fólk
sem sinnir því vel að koma íslandi og íslend-
ingum á framfæri. Að jafnaði velur Ieikhúsið
til sýninga eitt af hverjum hundrað leikritum
sem farið er yfir.
• „Fólið Lúkas situr yfir krásunum." Willem Carpentier í hlutverki sínu í uppfærslu
belgíska leikhússins Brússels Kamer Toneel.
41