Þjóðlíf - 01.12.1987, Blaðsíða 58
• Svefnherbergi.
• Auðkúla í haust. Eftir á að torfklæða þakið.
„Kúluhúsið fciðmar
mann að sér“
„Þaö fylgja því ólýsanleg þægindi aö búa í
kúluhúsi og gestir hafa haft á orði aö það sé
eins og húsiö faðmi sig að sér þegar inn er
komið. Manni líður einhvem veginn miklu
betur þegar form hússins er svona heldur en í
venjulegu ferhymdu húsi. Auk þess skapast
óteljandi möguleikar sem .venjulegar bygg-
ingar hafa ekki,“ segir Ásthildur Þórðar-
dóttir nemi í Garðyrkjuskóla ríkisins en hún
og maður hennar, Elías Skaftason múrari,
ásamt fjórum bömum, fluttu í haust inn í
kúluhús sem þau byggðu á ísafirði. Það hefur
vakið mikla athygli í bænum og aðdáun því
kúluhúsið, Auðkúla eins og sumir kalla það,
er sérdeilis skemmtilegt og fellur vel að um-
hverfinu. Auðkúla er ekki einvörðungu
íbúðarhús heldur og að hluta til garðskýli.
Utanfrá séð má ekki ætla að rými sé mikið en
þegar inn er komið kemur annað í ljós. íbúð-
in er alls 120 fermetrar og á þremur hæðum;
fimm herbergi, bað, stofa, sjónvarpshol og
eldhús. Garðskýlið er 110 fermetrar - trú-
lega hið stærsta í einkaeign hér á landi.
Húsið er hannað af Einari Þ. Ásgeirssyni,
arkitekt, eftir hugmyndum Ásthildar og
Elíasar og heiðurinn af innréttingum á Hall-
dór Magnússon húsgagnasmíðameistari á
ísafirði.
„Einn af mörgum kostum er sá að þetta
sparar 70% kyndingarkostnað,“ segir Ást-
hildur. Og hún bætir því við að eftir að hún
kom fram í útvarpsþætti og iýsti kúluhúsinu
• Séð úr stigapalli í eldhús. Gluggarnir snúa
að garðhýsinu.
hafi skriða fyrirspurna farið af stað. „Það
blundar í mörgum að byggja sér kúluhús,“
segir hún, „og ýmsir eru þegar famir að
byggja, þ.á.m. nokkrir sem hyggjast reisa sér
sumarbústað af þessu tagi.“
Ekki segir Ásthildur að byggingarkostn-
aður húsa af þessu tagi sé meiri en gengur og
gerist með einbýlishús. „Efnið nýtist þó bet-
ur og þegar þesar byggingar verða staðlaðar
efast ég ekki um að það verður ódýrara að
byggja sér kúluhús en algeng einbýiishús,“
segir hún.
• Utaná grind kúlunnar er strekktur dúkur og
íbúðarhlutinn er svo klæddur torfi.
58