Víkurfréttir - 26.02.2009, Side 23
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 26. FEBRÚAR 2009 23STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Grindvíkingar mörðu sigur á
Íslandsmeisturum Keflavíkur
í Iceland Express deild karla
í körfubolta í Toyota höllinni
sl. föstudag. Lokatölur voru
82-85 fyrir gestina í jöfnum
og spennandi leik.
Staðan var 77-77 þegar um
3 mínútur voru til leiksloka.
Tvær þriggja stiga körfur
Brentons Birmingham og
Arnars Freys Jónssonar komu
þeim í sex stiga forskot á
lokakaflanum og það bil náðu
heimamenn ekki að brúa í
blálokin.
Brenton skoraði 18 stig fyrir
Grindavík en stigaskor þeirra
dreifðist jafnt í leiknum og
voru 6 leikmenn sem skoruðu
10 stig eða meira. Sigurður
Þorsteinsson var stigahæstur
Keflvíkinga með 22 stig auk
þess sem hann tók 9 fráköst.
Grindavík fær Breiðablik
í h e i m s ó k n í k v ö l d .
Njarðvíkingar sem innbyrtu
góðan sigur á Þór á Akureyri
79-84 leika gegn toppliði KR
annað kvöld.
Nau›synlegir eiginleikar: Jákvætt hugarfar, kraftur, nákvæmni, miklir hæfileikar
í mannlegum samskiptum og vilji til a› gera betur í dag en í gær. Æskilegt er a›
vi›komandi hafi reynslu af sambærilegu starfi.
Umsóknir sendist á ingibjorg@dominos.is fyrir 8. mars. Nánari uppl‡singar veitir
starfsmannastjóri, Ingibjörg Gunnarsdóttir í síma 585 0800.
Verslunarstjóri
Domino’s Pizza óskar eftir umsóknum
í stö›u verslunarstjóra í Reykjanesbæ
58·12345
www.dominos.is
Keflavíkurstúlkur hefndu fyrir tapið gegn KR í bikarúrslit-
unum með öruggum sigri í Toyota höllinni á konudaginn.
Keflavíkurstúlkur innbyrtu sannfærandi sigur 79-70 og var allt
annað að sjá til þeirra en í bikarúrslitunum.
Forráðamenn deildarinnar færðu stúlkunum konudagsblóm og
fleira huggulegt í tilefni dagsins.
Í gær léku Keflavíkurstúlkur stórleik við efsta liðið, Hauka og
Grindavík gegn Val. Nánar um það á vefsíðu Víkurfrétta, vf.is.
Konudagssigur hjá Keflavíkurstelpum
Naumur sigur UMFG í Keflavík
Ómar Jóhannsson,
markvörður úrvalsdeildarliðs
Keflvíkinga í knattspyrnu,
leikur að öllum líkindum ekki
með liðinu á næsta á kep-
pnistímabili. Hann þarf um
miðjan mars að gangast undir
aðgerð vegna þrálátra meiðsla
í öxl.
Ómar var í vandræðum með
öxlina allt síðasta sumar, þá
ekki verra en svo það hindraði
hann í því að spila.
„Þetta háði mér ekkertsérstak-
lega í leikjum en stundum gat
ég ekki æft. Svo fór ég bæði í
góða endurhæfingu og hvíld
eftir tímabilið og allt benti
til þess að ég væri að ná mér
þegar bakslagið kom og jafnvel
verra en áður,“ sagði Ómar í
samtali við VF. Hann segir
ekki útséð með það hvort
hann missi af öllu tímabilinu
en hann verði frá í einhverja
mánuði og líklega megnið af
tímabilinu.
„Læknirinn nefnir 3 – 4
mánuði lágmark en aðgerðin á
væntanlega eftir að leiða þetta
betur í ljós. Það
er leiðinlegt að
lenda þessu. Ég
var að komast í
ágætis form eftir
að hafa unnið í
þessum meiðslum
og sá bara fram á gott tímabil,“
segir Ómar.
Hann segir engar áhyggjur
hafa af markvörslunni hjá
liðinu á meðan hann verði í
burtu.
„Magnús Þormar er góður
markvörður og ég treysti
honum mjög vel,“ svarar Ómar
aðspurður væntanlegan stað-
gengil.
„Aðgerðin er 11. mars og svo
tekur við endurhæfing. Maður
verður að reyna vera bjartsýnn
en raunsær á sama tíma og
vona að maður nái inn í liðið
aftur sem fyrst. Ég verð frá í
einhvern tíma og þá verður
Maggi væntanlega búinn að
hirða af mér sætið. Það gefur
auga leið að ég á ekkert þetta
sæti og þarf ábyggilega að hafa
fyrir því að ná því aftur.“
Nick Bradford lék með
Grindavík gegn sínum gömlu
félögum og sagði að það hafi
verið erfitt. VF-mynd/hildur
Treysti Magnúsi
-segir Ómar Keflavíkurmarkvörður
Birkir Már setur skólamet
Sundmaðurinn Birkir Már
Jónsson stóð sig vel í Sun
Belt deildinni á úrtöku-
mótinu fyrir NCAA. Birkir
setti tvö skólamet í einstak-
lingssundum og tvö met í
boðsundum ásamt því að
synda næsthraðasta tíma í
sögu skólans í 100m bak-
sundi. Birkir setti skólamet
í 100m og 200m flugsundi
og er greinilega í fínu
formi. Birkir Már ætlar að
koma og keppa með ÍRB
á IM 50 og er það okk-ur
mikið gleðiefni, segja þjálf-
arar ÍRB í fréttaskeyti.
Sport alla
daga á vf.is
Sendið okkur
íþróttafréttir
á pket@vf
K-Markaðurinn í Samkaup
Körfuknattleiksdeildin
í Keflavík hefur í
fjáröflunarskyni sett af stað
markað, K-Markaðinn,
í nýja verslunarhúsnæði
Samkaupa. Þar er hægt
að versla á vægu verði
ýmiskonar varning eins
og hillusamstæður,
vettlinga, vinnuföt,
tískuföt, skó, hljómplötur
(vinyl), bækur og blöð.
Deildin væri afar þakklát
þeim sem sjá sér fært að
styrkja körfuknattleikinn
með seljanlegum hlutum.
Stærri hluti er sjálfsagt að
sækja. K-Markaðurinn er
opinn milli kl. 13 og 19
alla daga nema sunnudaga.
Upplýsingar gefur Þóra
í síma 861-2042.
Glóðarbikar í knattspyrnu
Glóðarbikarinn er heiti
á knattspyrnumóti í
Reykjaneshöllinni. Þátt
taka fjögur lið, öll af
Suðurnesjunum. Leikið
er eftir keppnisreglum
utandeildarinnar og
verður fyrsta umferð nk.
laugrdag frá kl. 16. Aðrir
keppnisdagar verða 1., 15. og
28. mars. Sjá nánar á http://
geirfuglar.123.is/page/22735/
Hákon og María sigruðu
Púttklúbbur Suðurnesja
hélt mót á dögunum sem
styrkt var af HS orku hf.
Úrslit urðu eftirfarandi:
Karlar
Hákon Þorvaldsson 62
Eiríkur Ólafsson 63
Birkir Jónsson 64
Bingó
Hákon Þorvaldsson 12
Konur
María Einarsdóttir 70
Ása Lúðvíksdóttir 71
Gerða Halldórsdóttir 71
Bingó
Helga Árnadóttir 8
Þorsteinn formaður
Þorsteinn Gunnarsson,
formaður Samtaka
Íþróttafréttamanna og
fyrrum íþróttafrétta-
maður á Stöð 2, er nýr
formaður knattspyrnu-
deildar Grindavíkur.
Jón H. Gíslason gaf ekki
kost á sér sem formaður og
var Þorsteinn Gunnarsson
kosinn nýr formaður í hans
stað. Jónas Þórhallsson
og Eiríkur Leifsson eru
einnig nýir menn
í stjórn en Gunnar
Már Gunnarsson og
Sigurður Gunnarsson
gáfu ekki kost á sér.
Sigurður steig niður úr
stjórn eftir 15 ára setu og
var honum þakkað sérstak-
lega fyrir framlag sitt.
Í skýrslu stjórnar kom
fram að hagnaður af
rekstri deildarinnar var
1.376.817 kr af rúmlega
77 milljóna kr veltu.