Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.04.2009, Blaðsíða 22

Víkurfréttir - 22.04.2009, Blaðsíða 22
22 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 17. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR Flugakademía Keilis útskrifaði sl. föstudag 33 flugfreyjur frá skólanum. Þetta eru fyrstu flugfreyjurnar sem skólinn útskrifar en námið hófst sl. haust. Um er að ræða svonefnt grunnnám en einnig verklega þjálfun og tegundaþjálfun. Þetta er fyrsti hópurinn sem lýkur slíku námi innan íslenska skólakerfisins. Námið allt var skipulagt í samráði við helstu flugfélög á Íslandi og hefur m.a. verið viðurkennt af Icelandair. Þar með má segja að nám flugfreyja/þjóna sé orðið hluti af íslensku skólakerfi. Þó staða heimsmála sé ekki björt um þessar mundir þá má segja að ferðabransinn sé alltaf sá fyrsti til að rétta úr kútnum. Á samdráttarskeiði er einmitt góður tími til að afla sér menntunar og vera því tilbúin þegar úr rætist. Margt bendir til að nokkrar úr hinum nýja hópi flugfreyja muni strax í sumar fá vinnu, segir í tilkynningu. Við athöfnina, sem haldin var í Top of the Rock, fengu flugfreyjurnar nýju prófskírteini s ín afhent , verðlaun veitt fyr ir góðan námsárangur og ávörp haldin. Hópur nýrra flugfreyja ásamt Arndísi Hreiðarsdóttur, deildarstjóra, og Hjálmari Árnasyni, framkvæmdastjóra Flugakademíu. Keilir útskrifar 33 flugfreyjur úr námi Hjálmar Árnason framkvæmdastjóri Flugakademíu Keilis afhendir Agnesi Kristínu Einarsdóttur fyrsta prófskírteini Keilis fyrir flugfreyjur.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.