Víkurfréttir - 01.10.2009, Qupperneq 4
4 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 39. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf., kt.
710183-0319
Afgreiðsla, ritstjórn
og auglýsingar:
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík,
Sími 421 0000 Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 421 0002, hilmar@vf.is
Blaðamaður:
Ellert Grétarsson,
sími 421 0004, elg@vf.is
Auglýsingadeild:
Gunnar Einarsson,
sími 421 0001, gunnar@vf.is
Útlit, umbrot og prentvistun:
Víkurfréttir ehf.
Hönnunardeild Víkurfrétta:
Þorsteinn Kristinsson,
sími 421 0006, steini@vf.is
Þórgunnur Sigurjónsdóttir,
sími 421 0011,
thorgunnur@vf.is
Skrifstofa Víkurfrétta:
Rut Ragnarsdóttir,
sími 421 0009, rut@vf.is
Aldís Jónsdóttir,
sími 421 0010, aldis@vf.is
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og kylfingur.is
Afgreiðsla Víkurfrétta
er opin alla virka daga frá
kl. 09-12 og 13-17.
Athugið að föstudaga
er opið til kl. 15.
Með því að hringja í síma
421 0000 er hægt að velja
beint samband við auglýsingadeild,
fréttadeild og hönnunardeild.
FRÉTTAVAKT ALLAN
SÓLARHRINGINN ER
Í SÍMA 898 2222
VÍKURFRÉTTIR EHF. Framkvæmdir við fimm-tíu milljarða króna raf-rænt gagnaver Verne Global
á Ásbrú, gamla varnarsvæð-
inu í Keflavík, eru í fullum
gangi. Mörg hálaunastörf
fyrir Íslendinga verða til
þegar starfsemin fer í gang
innan skamms tíma. Árni Sig-
fússon, bæjarstjóri Reykjanes-
bæjar segir að þetta rafræna
gagnaver muni m.a. nýta ís-
lenska rokið til að kæla flók-
inn tölvubúnað en stofnun
þess muni hafa mikla og
margvíslega þýðingu og ekki
aðeins fyrir nærsamfélagið.
Forráðamenn íslensk/banda-
ríska fyrirtækisins, Verne
Global kynntu gang mála í
uppbyggingu þess fyrir frétta-
mönnum í dag. Mörg þúsund
fermetrar húsbygginga varnar-
liðsins eru í endurbyggingu,
verða stækkaðar og fá nýtt
hlutverk. Þær munu hýsa gríð-
armikinn búnað, risavaxin
tölvusalarkynni og rafafls-
Snarpar umræður
um nýja aðal-
skipulagstillögu
Alls komu 48
athugasemdir
og ábendingar
fram vegna
Aðalskipulags
Voga 2008
- 2028 sem kynnt var í vor
en athugasemdafrestur
rann út í byrjun júlí. Málið
varð tilefni snarprar um-
ræðu á bæjarstjórnarfundi
í Vogum í síðustu viku þar
sem fulltrúar minnihlutans
sátu hjá í atkvæðagreiðslu
við afgreiðslu málsins.
Þeir halda því fram að
gengið hafi verið gegn vilja
íbúanna. Sjá nánar í frétta-
safni Víkurfrétta á vf.is.
Biðlisti í tónlist-
arskólann
Hundrað sextíu
og sex nem-
endur eru á
biðlista Tónlist-
arskóla Reykja-
nesbæjar. Mest
er ásóknin í píanó,- fiðlu,-
og gítarnám en þó er biðlisti
í nám á flestöll hljóðfæri.
Alls sækja nú 402 nem-
endur forskólann og aðrir
nemendur eru 368 talsins.
Þetta kom fram á fundi
Fræðsluráðs í síðustu viku.
Dregið hefur verið saman
í stöðugildum og þar af
leiðandi færri nemendur
teknir inn í skólann vegna
aðhalds í fjármálum.
Einnig hefur verið dregið
úr samspili, hljómsveitar-
starfi og undirleik, segir
í fundargerð ráðsins. 45
kennarar/stjórnendur starfa
við skólann í 26,8 stöðu-
gildum. Aðrir starfsmenn
eru tveir í 1,75 stöðugildi.
Kalka hækkar
verðskrá um 5%
Sorpbrennslu-
stöðin KALKA
hefur ákveðið
að hækka verð-
skrá sína um
5% frá og með
1. október nk. Á heima-
síðu Sorpeyðingarstöðvar
Suðurnesja kemur fram
að helstu ástæður þess-
arar hækkunar séu miklar
hækkanir sem hafa orðið
á helstu kostnaðarliðum
Kölku að undanförnu.
Verðskráin hafi þar að auki
ekki breyst frá 1.okt. 2008.
Framkvæmdir á fullu við
50 milljarða kr. gagnaver
Verðlaunahafar í ratleik í
Bátasafni Gríms Karlssonar
Á Ljósanótt var boðið upp á skemmtilegan fjölskylduratleik
í Bátasafni Gríms í Duushúsum. Á annað hundrað þátttak-
endur, fjölskyldur og skólahópar, flökkuðu um safnið í leit að
vísbendingum um ýmislegt sem tengist sjómennsku og sjáv-
arútvegi. Dregið var úr réttum lausnum og hlutu hinir heppnu
nýja Ljósanæturdiskinn, könnu merkta Bátasafninu, penna og
viðurkenningarskjal. Þeir sem hlutu verðlaun voru; Magnús
Örn Hjálmarsson, Þorbjörn Óskar Arnmundsson, Ásta Rún Arn-
mundsdóttir og hún Sigurlaug sem kom frá Hafnarfirði með
ömmu sinni.
Árni Sigfússon á tali við starfsmenn ÍAV og Verne Global.
varastöðvar auk annars sem
tengist starfsemi gagnaversins
sem verður keyrt áfram með
grænni, íslenskri jarðvarma-
orku. Í vöruhúsi og stórverslun
Varnarliðsins forðum, Navy
Exchange verða í náinni fram-
tíð stórir salir fullir af flóknum
tölvubúnaði.
Fyrirtækið hefur gert samn-
inga við stór íslensk fyrir-
tæki eins og Landsvirkjun
um orkuöflun sem og fleiri
nauðsynlega þjónustuaðila. Ís-
lenskir aðalverktakar sjá um
byggingaframkvæmdir með
um fimm tugi starfsmanna
á svæðinu. Forstjóri Verne
Global vonast til að geta
greint frá fyrsta viðskiptavin-
inum á næstunni en báðir að-
ilar eru að ljúka samningum
við íslensk stjórnvöld.
Árni Sigfússon segir að þetta
sé ekki lengur falleg hugmynd
heldur sé verkefnið komið vel
af stað og eigi eftir að verða
svæðinu til hagsbóta og skapa
mörg fjölbreytt störf. „Þessi
gerð af hátækni mun leiða
til nýrrar íslenskrar fagþekk-
ingar. Hún mun nota græna
orku og verða mikill styrkur
fyrir atvinnulífið, ekki aðeins
á Reykjanesi heldur landinu
öllu“.
„Við erum spennt að sýna Ís-
lendingum hvað við erum að
fara að gera hérna. Aðstæður
eru þær allra bestu í heim-
inum fyrir svona starfsemi
og við hlökkum til að hefjast
handa. Framkvæmdir við
stór húsakynni eru í fullum
gangi og hér eru um 50 starfs-
menn frá Íslenskum aðalverk-
tökum og aðrir fimmtíu eru
við önnur störf við undir-
búning starfseminnar,“ sagði
Jeff Monroe, forstjóri Verne
Global.
Meðal þess sem kemur sér vel
fyrir gagnaverið er kælikerfið
sem er mikilvægt fyrir allan
tölvubúnaðinn. Í gögnum
Verne er það kallað „free cool-
ing“ en þar nýtist íslenska
rokið og veðráttan hér á landi
mjög vel. Jeff sagði að meðal
mikilvægra atriða í staðsetn-
ingunni hér á Suðurnesjum
væri nálægð við alþjóðlegan
flugvöll. Þá lofaði hann allt
samstarf sem fyrirtækið hefur
átt við íslenskar stofnanir og
aðila og nefndi meðal ann-
ars Landsvirkjun, Landsnet,
Mannvit og Reykjanesbæ.
Byggingakranarnir á Ásbrú
eru þeir einu á landinu
sem ekki eru notaðir sem
vindhanar.
Séð yfir framkvæmdasvæðið hjá Verne Global á Ásbrú.