Víkurfréttir - 01.10.2009, Blaðsíða 9
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 1. OKTÓBER 2009 9STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
�������������������������
�� ��������������������
�������������������
�� ����������������
����������������������������������
�� �������������� ���������
Starfsemi Fjörheima er komin á fullt eftir sum-
arfrí. Opnað var með stóru
balli föstudaginn 11. septem-
ber þar sem um 250 krakkar
mættu og skemmtu sér mjög
vel.
Það sem helst ber að nefna
í starfi Fjörheima þetta árið
er öflug klúbbastarfsemi.
Hljómsveitarval er samstarfs-
verkefni á milli Njarðvíkur-
Heiðar- og Akurskóla, þar
sem nemendum eru kennd
undirstöðuatriði í hljómsveit-
arbransanum.
Hljómsveitarvalið er lokaður
klúbbur en Ævintýraklúbbur
er opinn klúbbur ætlaður
nemendum í 8. - 10. bekk.
Margt skemmtilegt verður í
boði í þeim klúbbi, sambland
af skemmtun og fræðslu,
gistinætur, ferðalög og margt
fleira. Klúbburinn er á mið-
vikudagskvöldum frá 19:30
- 21:30. Þá verður opið hús
á mánudags- og miðvikudags-
kvöldum frá 19:30 - 21:30.
Böll eru haldin annan hvern
föstudag og eru þau öll með
ákveðnu þema. Alls kyns
keppnir verða í gangi. Má
þar nefna fótboltakeppni,
danskeppni, fatahönnunar-
keppni og söngvakeppni.
Hægt er að láta sækja sig
með því að hringja í síma-
númer sem birt er á forsíðu
Fjörheima, fjorheimar.is.
Að auki gengur strætó upp
í Fjörheima samkvæmt áætl-
unarkerfi. Einnig eru leigðir
strætóar á stærri böllin.
Þjóðlagatónlist á
Top of the Rock
Þjóðlagahljóm-
sveitin Rósin
okkar mun
halda tónleika í
Top of the Rock
- Ásbrú fimmtu-
daginn 1. október kl. 21:00.
Þar mun hljómsveitin leika
þjóðlög úr ýmsum áttum;
norsk, írsk, skosk og íslensk.
Undanfarna mánuði hefur
hljómsveitin getið sér gott
orð fyrir líflegan tónlistar-
flutning víða um land.
Það er ekki nokkur
ástæða fyrir unnendur
góðrar tónlistar að láta
þetta framhjá sér fara.
Aðgangseyrir er 1.000 kr.
Listamaðurinn Todd McGrain sækist eftir
því að
koma fyrir
listaverki
tileinkuðu
geirfugl-
inum í
fjörunni
neðan við
Valahnjúk á Reykjanesi.
Formlegt erindi þess efnis
hefur borist Menningarráði
Reykjanesbæjar sem hefur
samþykkt staðsetningu
verksins fyrir sitt leyti.
Styttan af geirfuglinum er
hluti af stærra verkefni lista-
mannsins sem kallast „Lost
Bird Project“ og er tileiknað
fimm útdauðum fuglateg-
undum. McGrain hefur gert
fimm skúlptúra af fuglunum,
einn fyrir hverja tegund.
Hann hefur unnið að verk-
efninu undanfarin fimm ár.
Þann 3. júní 1844, voru tveir
síðustu geirfuglarnir í heim-
inum drepnir á syllu í Eldey,
suðvestur af Reykjanesi. Um
80 uppstoppaðir geirfuglar
hafa varðveist til dagsins í
dag og er einn þeirra á Nátt-
úrúfræðistofnun Íslands.
Fjörheimar komnir á fullt
Listamaður heiðrar
minningu geirfuglsins
Nýtt nafn á
gönguleið
Alls hafa 570 íbúar tekið
þátt í skoðanakönnun um
nýtt nafn á strandleiðina
sem liggur frá Gróf í átt að
Stapa. Alls bárust yfir 70 til-
lögur sem dómnefnd skar
niður og íbúar gátu sagt álit
sitt á þeim. Nú eru einungis
sex tillögur eftir sem kosið
er um en dómnefnd mun
taka endanlega ákvörðun
um hvaða nafn verður
notað fyrir þessa skemmti-
legu gönguleið.
Þær tillögur sem standa
eftir eru:
Strandleið
Ölduslóð
Öldustígur
Fjöruslóð
Fjörustígur
Strandstígur
Réttir í Krísuvík
á laugardaginn
Réttir verða í Krísuvík
á laugardaginn
kl. 13:00 í
nýrri rétt. Þeir
Suðurnesjamenn
sem vilja taka þátt í
réttarstemmingu í náttúru
Krísuvíkur geta fylgt skiltum
frá Grindavík sem munu vísa
leiðina.
Aðalfundur Tón-listarfélags Reykja-
nesbæjar verður haldinn á
Kaffi Duus fimmtudaginn
8. október kl. 20.00.
Á fundinum verða hefð-
bundin aðalfundarstörf.
Þá hvetur stjórnin hvetur
nýja félaga til að mæta.
Aðalfundur Tónlistarfélags
Reykjanesbæjar eftir viku