Víkurfréttir - 01.10.2009, Side 10
10 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 39. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR
Kaffitár hefur afhent Björginni, geðræktarmiðstöð á Suð-urnesjum, 200 þúsund króna styrktarfé sem fékkst með
kaffi,- súkkulaði,- og kleinusölu á síðustu Ljósanótt.
Um var að ræða samstarfsverkefni þar sem starfsmenn gáfu
vinnu og MS, Nói Síríus, Innnes og HP kökugerð á Selfossi gáfu
hráefnið.
Á myndinni tekur Unnur Svava Sverrisdóttir (tv) við ávísuninni
fyrir hönd Bjargarinnar frá fulltrúum Kaffitárs, þeim Brynju
Dögg Kristbergsdóttur og Guðrúnu Jensdóttur.
Fréttir af sauðburði er eitt-hvað sem við heyrum
af snemma vors en ekki á
þessum árstíma. Þó eru til
undantekningar á því eins
og sýndi sig í Grindavík á
laugardaginn þegar ærin
Rjúpa bar tveimur lömbum.
Nafngiftin á hinum nýfæddu
lömbum lýsir kringumstæð-
unum best því annað lambið
fékk nafnið Stormur og hitt
Slydda í tilefni af veðrinu
sem ríkti utan við fjárhúsin
á laugardagskvöldið þegar
þau komu í heiminn.
Ærin Rjúpa bar ekki í vor.
Hefur greinilega verið upp-
teknari af einhverju öðru en
að fjölga sér. Hún var þá sett
út með hrútunum í viku og
einn þeirra, hrúturinn Týr,
stóð sína pligt greinilega með
prýði.
Líney Hauksdóttir er á leið út að borða með alla fjölskylduna
í boði Securitas á Reykjanesi. Ástæðan er sú að hún tók þátt í
leik sem Securitas efndi til á sýningunni Reykjanes 2009 sem
stóð yfir Ljósnæturhelgina í Íþróttaakademíunni. Hátt á fimmta
hundrað sýningargesta tóku þátt í leiknum og kom nafn Líneyjar
upp úr pottinum. Hún fer því út að borða með fimm manna fjöl-
skyldu sína á Thai Keflavík.
Bókaspjall og ætt-
fræði á Bókasafni
Reykjanesbæjar
Þriðjudaginn 6. okt.
nk. kl. 20, hittast bók-
menntaunnendur á bóka-
safninu og spjalla um
áhugaverðar bækur.
Á sama tíma hittast einnig
félagar í Ættfræðifélaginu
á Suðurnesjum og ræða
saman um ættfræði.
Allir áhugasamir
eru velkomnir.
Stafgöngudagurinn
á laugardaginn
Næstkomandi laugardag,
þann 3. október, verður
Alþjóðlegi göngu- og staf-
göngudagurinn haldinn á
Íslandi. Þetta er í fjórða sinn
sem stafgöngudagurinn er
haldinn hér á landi og það
hefur alltaf verið góð mæt-
ing hjá Suðurnesjamönnum
í stafgöngukennslu á þessum
degi. Á Suðurnesjum
verður gengið frá bílastæð-
inu í Bláa lóninu og hring-
inn í kringum Þorbjörn. Að
göngu lokinni ætlar Bláa
lónið að bjóða í Lónið.
Kennsla fyrir byrjendur er
kl. 10:50 og síðan verður lagt
af stað í gönguna kl. 11:30
Tvö ný strætó-
skýli í Garðinn
Blikksmiðja Ágústar Guð-
jónssonar mun smíða tvö
ný strætisvagnaskýli fyrir
Sveitarfélagið Garð. Tilboða
var leitað á tveimur stöðum
og býðst blikksmiðjan til að
smíða strætisvagnaskýli fyrir
890 þúsund krónur stykkið
með virðisaukaskatti. Hinn
aðilinn sem leitað var til
ákvað að bjóða ekki í verkið.
Strætóskýlin verða tilbúin
í ársbyrjun 2010 og kostn-
aður af framkvæmdinni
verður settur á fjárhags-
áætlun næsta árs.
Sauðburður í september!
Líney fer út að borða
Kaffisala skilaði 200 þús-
undum til Bjargarinnar
Ærin Rjúpa með lömbin sín tvö, Storm og Slyddu.
Mynd/www.grindavík.is
Hj á l p r æ ð i s h e r i n n í Reykjanesbæ vill vekja
athygli á söfnunarátaki sem
verður fyrstu vikuna í októ-
ber. Safnað er fyrir starfi
Hjálpræðishersins á Íslandi
og sem starfsemi má nefna
barna- og unglingastarf í
Reykjanesbæ og á Akureyri,
dagsetur útigangsmanna í
Reykjavík og margt fleira.
Hjálpræðisherinn í Reykja-
nesbæ vill vekja athygli bæj-
arbúa á þessu söfnunarátaki
með því að halda tónleika við
Nettó mánudaginn 5. okt.
þar sem gospelkórinn KICK
mun syngja fyrir vegfarendur
og þriðjudaginn 6. okt. en þá
munu börnin úr gospelkór-
unum syngja. Það er ósk
Hjálpræðishersins í Reykja-
nesbæ að bæjarbúar taki vel
í átakið og styrki starfið með
kaupum á merkjum og/eða
pennum.
SÖFNUNARÁTAK
HJÁLPRÆÐISHERSINS