Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.10.2009, Page 12

Víkurfréttir - 01.10.2009, Page 12
12 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 39. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR ✔ Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Lögfræðingur ✔ Hvaða verk í tónlistarsög- unni vildir þú hafa samið? Hef aldrei hugsað þetta svo- leiðis - frekar hvað það er gaman að framkvæma þessi stórkostlegu verk sem eru til - alveg frá La Boheme e. Puccini (Ljósanótt) til syrpu af lögum frá Blues Brothers-myndum (sem lúðrasveitin mín spilaði fyrir NBA leik í Orlando í fyrra) og allt þar á milli! ✔ Syngur þú í sturtu? Nei - ekki nema þegar maður er komin með lag á heil- ann (sem gerist af og til!) ✔ Afdrifaríkasta ákvörðun lífs þíns? Að fara í háskólanám til Íslands! Tók einn vetur á meðan ég var í háskóla - þá byrjuðum við Bjössi saman og þá var ekki aftur snúið! ✔ Besta ráð sem þú hefur fengið? Æfingin skapar meistarann. ✔ Hefurðu gert eitthvað verulega kjánalegt? Ekki svo ég muni eftir ✔ Uppáhaldskvikmyndir? Gamanmyndir ✔ Uppáhaldstónlist? Big Band tónlist ✔ Uppáhalds hljóðfæri? Trompet en franskt horn og fagott eru líka orðin ansi hátt skrifuð! Ég spila á trompet og börnin á hin hljóðfærin ✔ Áhugamál önnur en tónlist? Að ferðast. ✔ Hvaða stað í heiminum langar þig mest til að skoða? Hef lengi langað að fara til Nýja Sjálands og Ástralíu ✔ Hefurðu fylgst með sápuóperu? Reyndi þegar ég var lasin þegar ég var í há- skóla - tókst ekki! ✔ Hefurðu grátið við að horfa á bíómynd? Margoft! ✔ Hvernig tölvupóst myndir þú vilja fá í dag? Alltaf gaman að heyra í Bjössa eða börnunum. ✔ Ertu á Facebook? (Hve marga vini?) Já, á 245 vini. Tónlist er líf og yndi Karenar J. Sturluson, aðstoðarskólastjóra Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Hún var um síðustu helgi sæmd Lund- anum, verðlaunum Kiwanis klúbbsins Keilis. Þau eru veitt þeim sem hafa látið gott af sér leiða eða unnið óeigingjarnt starf í þágu bæjarfélagsins. Nafn: Karen Janine Sturlaugsson Aldur: 53 Fjölskylduhagir: Gift, 2 börn og 1 barnabarn! Staða: Aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla Reykjanesbæjar Víða á Reykjanesinu liggja gamlir járnahaugar frá gam- alli tíð þegar ekki tíðkaðist að endurvinna neitt. Má þar nefna við Stapann þar sem í fjörunni liggja stórar báta- vélar og stórir málmhlutir sem Ægir konungur hefur ekki náð að brjóta mélinu smærra, gömlu öskuhaugar Varnarliðsins sáluga (með- fylgjandi mynd), á Ásbrú, úti í miðri Miðnesheiðinni eru gamlir öskuhaugar, gömlu námurnar milli Garðs og Sand- gerðis og víða. Í aðflugstefnu að Keflavíkurflugvelli fyrir flugbrautina 02-20 sést vel úr lofti þessi ómynd sem gömlu Varnarliðshaugarnir eru og einnig á Miðnesheiðinni sést í járnadrasl á víð og dreif. Undirritaður vill gera stórá- tak í að endurvinna allt þetta járnadrasl, skapa með því verðmæti sem felast í því að brotajárnið verður að gjald- eyri, þetta skapar einhverjum aðilum störf og þetta bætir ímynd okkar í þeirri viðleitni að lifa í sátt við umhverfið. Ég skora á alla opinbera aðila sem og aðra umsjón- araðila og landeigendur á Reykjanesi að skora á íslensk stjórnvöld að eitthvað að því fjármagni sem Varnarliðið skildi eftir til að hreinsa upp eftir sig mengun verði deilt út til þeirra aðila sem vilja virkilega gera góðverk. Það er því miður af nógu að taka í þessum málaflokki og ef til vill verður skrifað meira um önnur tækifæri sem bíða okkar í þeim málum seinna. Hérna er kjörið tækifæri til að byrja að skapa Reykjanesskag- anum forystu í því að verða Umhverfisvænsta samfélag Ís- lands og þó víðar væri leitað. Kær kveðja. Tómas J. Knútsson, formaður Bláa hersins PÓSTKASSINN · vf@vf.is Liggja fjármunir grafnir hérna? Auglýsingasíminn er 421 0001 - sókn er besta vörnin!

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.