Víkurfréttir - 01.10.2009, Side 13
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 1. OKTÓBER 2009 13STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Hættum skutlinu - notum strætó!
Frábært barna- og fjölskylduleikrit eftir Berg Þór Ingólfsson
og Guðmund S. Brynjólfsson með tónlist eftir Villa Naglbít.
Næstu sýningar:
Laugardaginn 3. október kl. 14.00
Sunnudaginn 4. október kl. 14.00
Sunnudaginn 11. október kl. 17.00
- Athugið breyttur sýningartími.
Miðaverð kr. 2500 -
Hópafsláttur ef pantað er fyrir 10 eða fleiri kr. 2200 -
Miðasala á www.midi.is og í síma 823-5477
Sýnt í Hafnargötu 7a, Grindavík, gengið inn hjá Mamma Mia
FIMM STJÖRNUR Í FRÉTTABLAÐINU!
„GRÍÐARVEL UNNIÐ
HANDRIT“
„SALURINN VELTIST
UM AF HLÁTRI“
„GAMAN!!!“
E.B.FRÉTTABLAÐIÐ
EKKI MISSA AF ÞESSARI
FRÁBÆRU SKEMMTUN.
HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ
YKKUR Í LEIKHÚSINU!
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
afi, tengdasonur, mágur og besti vinur,
Gunnar Þór Sveinbjörnsson,
Vatnsnesvegi 23,
Keflavík,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
þriðjudaginn 29. september sl.
Erla Sigríður Sveinsdóttir,
Sigurður Árni Gunnarsson, Birna Valgarðsdóttir,
Magnús Þór Gunnarsson, Kristjana Arnarsdóttir,
Árni Steinn, Jakob Máni og Viktor Magni
Sveinbjörg Þóra Gunnarsdóttir, Sævar Leifsson,
Elísabet Ester, Sigurður Gunnar og Viktoría Sól,
Anna Pála Sigurðardóttir, Sveinn Ormsson,
Helga Sveinsdóttir, Magnús Steinar Sigmarsson,
Anna María Sveinsdóttir, Brynjar Hólm Sigurðsson
Í dag, fimmtudaginn 1. októ-ber hefur göngu sína ný
strætóáætlun sem aðallega
mun taka mið af þörfum íbú-
anna í Garði og Sandgerði.
Með nýja kerfinu er verið
að sameina áætlun Garð og
Sandgerðis í eitt öflugt kerfi
með níu ferðum á dag.
„Við erum jafnframt að auka
við ferðir um helgar og tengja
þetta við strætó Reykjanes-
bæjar. Núna verður ekið í
gegnum Sandgerði og Garð
inn í Reykjanesbæ um Hring-
braut og að Reykjaneshöll í
stað stoppistöðvar við SBK
áður. Þannig er komin teng-
ing við FS og Vatnaveröld. Þá
erum við jafnframt með þessu
að tengja notendur þjónust-
unnar við rútuferðir SBK til
Reykjavíkur með stoppistöð
við Myllubakkaskóla, þaðan
sem stutt er í banka, sjúkraús,
verslanir og aðra þjónustu.
Við teljum okkur að með
tiltölulega hóflegum viðbót-
arkostnaði séum við að ná
fram gríðarlegum samgöngu-
bótum fyrir íbúana undir kjör-
orðunum Hættum skutlinu
- notum strætó,“ segir Ás-
mundur Friðriksson, bæjar-
stjóri í Garði.
Um er að ræða samstarfsverk-
efni SBK, Hópferða Sævars,
Sveitarfélaganna Garðs og
Sanderðis og Strætó Reykjanes-
bæjar. Um tilraunaverkefni er
að ræða fram að áramótum en
þá verður staðan metin út frá
notkun íbúanna og ákvörðun
tekin um framhaldið.
Fyrsta ferð frá Reykjaneshöll
er kl. 6:14 á morgnana og síð-
asta ferð kl. 22:57. Um helgar
er fyrsta ferð kl. 07:35 og síð-
asta kl. 22:50. Áætlunina er
hægt að kynna sér nánar í
auglýsingu í blaðinu í dag. Á
virkum dögum eru níu ferðir
og fjórar hvorn daginn um
helgar. Alls eru þetta því 53
ferðir á viku að viðbættum
skólabíl.
-stórbætt þjónusta við notendur strætó í Garði og Sandgerði
Við þessa nýbreytni verður
efnt til leiks í strætistvögnum
þar sem farþegar fá miða sem
sem þeir fylla út og geta skilið
eftir í vögnunum. Verðlaunin
eru ekki af verra taginu,
hvorki meira né minna en ut-
anlandsferð fyrir tvo og ým-
islegt fleira. Þá er rétt að taka
fram að þessar strætisvagna-
ferðir eru fríar.
Þann 8. október næst-komandi munu Samtök
Náttúrustofa á Íslandi (SNS)
standa fyrir náttúrustofu-
þingi. Þetta er í fimmta
skipti sem slíkt þing er haldið
í tengslum við ársfund félags-
ins.
Að þessu sinni sér Náttúru-
stofa Reykjanes í Sandgerði
um undirbúning þingsins og
verður það haldið í Samkomu-
húsinu í Sandgerði. Dagskráin
hefst klukkan 09.30 með
ávarpi umhverfisráðherra og
stendur til 17:00.
Þingið er öllum opið, bæði á
allt þingið eða einstaka fyrir-
lestra.
Sjá nánar á vf.is
Náttúrustofuþing
2009 í Sandgerði