Heima og erlendis - 01.04.1953, Síða 1
G. árp.
2. tltl.
Heima og erlendis
Um Island og Islendinga erlendis
Apríl 1958
STÚDENTAFÉLAGIÐ
VIÐ GO ARA AFMÆLI fESS
það sætir undrun, aÖ félagsskapur meÖal
Islendinga í Kaupmannaliöfn skuli hafa náÖ
svo háum aldri og raun er á um Félag ísl.
slúdenta í Kaupmannahöfn, er átti 60 ára
afmæli 21. janúar þessa árs. AstæÖan er
sennilega sú, aö félagiö er í raun réttri
stéttarfélag og aÖ því hætist áriega nýjir fé-
lagar — nýtt blóð.
Félagsskapur þessi hefir aldrei legiÖ niÖri
eöa veriö í dauðateygjunum, enda þótt það
hafi á tímabili orÖið fyrir hlóðmissi, sem
mun hafa dregiÖ úr lífsfjöri þess um stund.
Um tildrög og stofnun félagsins segir Sig-
fús Blöndal (Frón janúar 1943):
„Af daghók, sem ég hélt þá, sé ég að 19.
des. 1892 sendum við út áskorun um al-
mennan stúdentafund og vorum alls 14 sem
skrifuÖum undir, aÖ Bjarna meðtöldum (Jóns-
syni frá Vogi). Auk þeirra sem áÖur eru
nefndir voru meÖ okkur Eggert Briem (síð-
ar yfirdómari), Pétur Hjálmsson (sem þá las
norrænu en síÖar varð prestur í Vesturheimi),
— ég hygg þessir tveir hafi líka skrifaÖ undir
skjalið. AÖrir stuðningsmenn okkar voru þeir
Bjarni Sæmundsson (dýrafræðingur) Arni
Thorsteinsson (þá stud. jur., síðar tónskáld),
Helgi Pétursson (síðar Dr. Helgi Péturss,
jaröfræðingur) og SigurÖur Pétursson frá
Ananaustum, verkfræöingur. Af dagbókinni
sé ég aÖ daginn eftir höfum viÖ haldiÖ eins-
konar undirhúningsfund á GarÖi í herhergi
Péturs Hjálmssonar, og vorum við á honum
Bjarni og GuÖmundur Björnsson, Steingrím-
Rr Jónsson, Pétur Hjálmsson og ég.
A þorláksmessu 23. des. kom svo saman
almenni stúdentafundurinn í Skindergade 9
þar höfóu stundum áður veriö haldnir fundir
1 Islendingafélagi. Eggert Briem var kjörinn
fundarstjóri. Á fundin-
um uröu allsnarpar um-
ræÓur. Einkum veittist
stjórn íslendingafélags
móti okkur, og gekk
þeim mönnum þó gott
eitt til. þeir voru sem
sé hræddir um, aÖ nú
kynni að rísa upp ný
óróa- og æsingaöld og
klofningur, eins ogverið
haföi nokkrum árum
áður. Helzti maðurinn,
sem talaði af þeirra
hálfu, var Jóhannes Jóhannesson (síðar
bæjarfógeti). Eg man ekki meÖ vissu hvort
Dr. Valtýr GuÖmundsson talaði þar líka, en
viÖ þóttumst vita aÖ hann væri okkur and-
vígur. Aftur á móti studdi Dr. Jón þorkels-
son okkur kröftuglega. Hann hafÖi þá árið
áður byrjaÖ aÖ gefa út „Sunnanfara", og
ýmsir af okkur, Bjarni Jónsson, þorsteinn
Gíslason og ég, studdum hlaÓ hans og rit-
uðum í þaÖ, og hann var sérstakur vinur
þorláks Jónssonar. Fundinum lauk meÖ því
aÖ samþykkt var tillaga okkar um að stofna
stúdentafélag, og var nefnd sett til aÖ semja
lög. I henni voru Bjarni Jónsson, Steingrím-
ur Jónsson, Eggert Briem, Siguröur Hjör-
leifsson (Kvaran, siðar héraðslæknir) og Dr.
Jón þorkelsson. Eg vil segja þaÖ til heiöurs
Jóhannesi Jóhannessyni og stjórn íslendinga-
félags yfirleitt og eins Dr. Valtý GuÖmunds-
syni aÖ þeir gengu allir í félag okkar, er
þaÖ var komið á stofn, og ég man eftir aÖ
Jóhannes kom viÖ og viÖ á fundi og tók
þátt í umræðum.
Laganefnd lauk starfi sínu fljótt og vel,
og fyrsti fundur hins nýstofnaóa félags var
svo haldinn 21. janúar 1893, aÖ mig minnir
hjá Kúcher í Ostergade 32l, og þar voru
Steingrímur Jónsson
einn af núlifandi stofn-
endum félagsins
9