Fagnaðarboði - 01.01.1950, Blaðsíða 2
2
FAGNAÐARBOÐI
Hvert ætlarðu?
Hjarta yðar slcelfist ekki; trúið á Guð og
trúið á mig. 1 húsi Föður míns eru mörg
híbýli; væri ekki svo, mundi ég þá nafa
sagt yður, að ég færi burt að búa yður
stað? Og þegar ég er farinn burt, og hefi
búið yður stað, kem ég aftur og mun taka
yður til mín, til þess að þér séuð og þar
sem ég er. Og veginn þangað, sem ég fer,
þekkið þér. Tómas segir við Hann: Herra,
vér vitum ekki hvert þú fer; hvernig skyld-
um vér þá þekkja veginn? Jesús segir við
hann: Eg er vegurinn og sannleikurinn
• og lífið; enginn kemur til Föðurins nema
fyrir mig. Jóh. lý. 1---6.
í hinni hreinu trú, er ekkert að skelfast, en
allt að öðlast. Því trúin er siguraflið, sem hefir
sigrað heiminn.
Að trúa á Guð, er að trúa á Soninn. Trúin
á Soninn, er trúin á Guð. Á náðartímabilinu,
opinberar Faðirinn sig aðeins í Syninum. Fyr-
ir utan Hann hefir enginn aðgang að Föðurn-
um.
En Jesús kallaði og sagði:
Sá sem trúir á mig, hann trúir ekki á mig,
heldur á þann, sem sendi mig. Jóh. 12. ýý.
Eftir sigurinn á jörðinni í holdinu steig Sonur-
inn upp til himna, til að búa sínum börnum stað
heima í dýrðinni, sem Hann nú hafði áunnið þeim
með fórn sinni. Þar munu hinir vitru skína eins
og ljómi himinhvelfingarinnar, og þeir sem leitt
höfðu marga til réttlætis, eins og stjörnurnar, um
aldur og æfi.
Sjá hve huggunarríkur spádómurinn er í þriðja
versinu, þar sem Jesús segir fyrir komu sína,
verk, og hvar Hann ætlar sínum samastað.
öll Guðs Orð, eru skínandi ljós, sem lýsa þeim,
er þekkja þau, veginn heim til Föðurhúsanna.
Þetta ljós hafði skinið til lærisveinanna frá Meist-
ara þeirra, svo að þeim var kunnur vegurinn,
þó að Tómas skildi ekki líkinguna.
Svo skulum við þá íhuga ,hvernig Jesús Kristur
er vegurinn, sannleikurinn og lífið.
Aðeins vegur hins eilífa Kærleíka, sem allt
leggur í sölurnar, öllu fórnar og allt hefir að gefa,
liggur inn til hinna eilífu Föðurhúsa. Þetta finnst
aðeins í Kristi, sem öll fylling Guðdómsins opin-
berast í. Þess vegna er Hann einasti vegurinn.
Frelsarann skortir ekkert, hvorki vizku, speki,
vísdóm, þekkingu, kærleika, mátt né vilja til að
frel§a hinn fremsta syndara og saklausasta barn.
Þess vegna er Hann fullkomni vegurinn.
Kristur er sá eini, sem komið hefir frá himni.
Honum eru kunnir frá eilífð allir leyndardómar
spekinnar. Hann þekkir allt á himni og jörð, hið
smæsta og stærsta. Hinar huldustu hugrenning-
ar og duldustu tilfinningar mannshjartans. öll
leyndarmál tilverunnar. Allt þetta, og allt það
sem augað ekki sér, og eyrað ekki heyrir, af vizku
og dýrð, býr í Jesú Kristi. Þess vegna er Hann
sannleikurinn.
Fræðimenn og spekingar heimsins fljúga hátt
og kafa djúpt, en eru þó eins og Guð er órannsak-
anlegur langt frá hinum fullkomna sannleika.
Kristur er eini sannleikurinn. Ekkert er honum
hulið né torskilið. Allt á himni og jörð er opið og
augljóst fyrir alvitund Hans.
Hann sem heldur öllu uppi með Orði máttar
síns, en englar, völd og kraftar eru undir Hann
lagðir.
1 upphafi var Orðið, og Orðið var hjá Guði,
og Orðið var Guð; það var í upphafi hjá
Guði. Allir hlutir. eru gjörðir fyrir það,
og án þess varð ekkert til, sem tíl er orð-
ið. 1 því var líf og lífið var Ijós mannanna.
Jóh. 1. 1—4.
Þannig lýsir Heilagur Andi uppsprettu hins
sanna lífs.
Ef maðurinn hefði eilíft líf, þyrfti hann ekki
að lúta valdi dauðans.
Það er því augljóst, að það er ekki maður-
inn, heldur Kristur einn, sem hefir eilíft líf í
sér varandi. Hann, sem allir hlutir eru gjörðir
fyrir, og lífið er runnið frá.
Þessari vegsemd tapaði maðurinn, þegar hann
syndgaði, með því að brjóta boðorð lifsins.
En Jesús Kristur kom í heiminn, til þess að
ávinna manninum hið tapaða líf með því að
gjörast maður og sigra í holdi þann, sem hafði
mátt dauðans.
Þeir sem sofa í dufti jarðarinnar hafa verið
brenndir á báli, eða orðið villidýrum að bráð,
vegna Nafns Drottins, bíða eftir komu hins