Fagnaðarboði - 01.01.1950, Blaðsíða 8

Fagnaðarboði - 01.01.1950, Blaðsíða 8
8 FAGNAÐARBOÐI Drottinn kallar Leitið Drottins meðan Hann er að finna kdllið á Hann meðan Hann er nálcegur. Jes. 55. 6. Hér er náðin Drottins boðuð til allra fyrir Heilaga Andann, er einn þekkir að tími manns- ins er stuttur, en þörfin er mikil fyrir nálægð Drottins. Það er eins og margir hugsi á þá leið, það er gott í ýtrustu neyð, að kalla á Drottinn, en eg reyni að komast hjá því svo lengi sem mögulegt Bæn Krists var Konungleg: Faðir fyrigef þeim, því að þeir vita ekki hvað þeir gjöra. Lúk. 23, 34- Hann vissi til hvers Hann leið og bað í gras- garðinum. Hann vissi hverra bikar Hann drakk. Hann vissi fyrir hvern Hann dó. Hann vissi hví- líkir syndarar við vorum. Hann vissi vel, að Hann var kominn í fullkominni elsku, til að gjöra þessa að þegnum sins Ríkis. Enn er tími til að hrópa til Hans á hinum mikla náðardegi, sem stendur yfir á meðan iðrun og syndafyrirgefning er boðuð fyrir sáttmála Blóð Krists. En náðardagurinn styttist og eitt er víst, að hann líður fljótt. Mikil er dýrð Guðs, er Hann gaf og uppfyllir í Jesúm Kristi í öllum, sem til Hans koma. Nú var skelfing ræningjans afmáð honum til handa, því hann þráði Krists samveru, með því að ákalla Hann sér til miskunnar. Ekkert annað varir, en frelsið til huggunar, friðar og gleði. Aðeins í Jesú Kristi krossfestum er dauðinn afmáður. Náðu vinarfundinum, svo angist dauðans sé ekki að skelfa þig. Því í minning Frelsarans er sú sára, beiska kvöl umflúin. Kristur ritar á hjarta þitt friðarsættina, og viðheldur sínu verki í hjarta þínu, með ljósi Sannleikans, sem er tryggt með sáttmála Blóði Hans. Minnst þú Jesú Krists til frelsis í dag. Vertu viss um, að Hann er við til að sinna þér og veita þér þína grasgarðsbæn. Það er blessunarbikar Krists. Guðs náð, sé verkandi í frelsandi ki’afti Jesú Krists til þín, sem biður og hrópar. Leitið Drottins til þess, að þér megið lífi hálda. Amos 5, 6. Guðrún Jónsdóttir. er. Það væri mjög óhyggilegt að hugsa þannig, eða mundi nokkur, sem er í lífsháska að veltast í hafrótinu hugsa á þá leið; neyðarskeyti sendi eg ekki fyrr en eg er meðvitundarlaus. Þannig hafa menn misst andlega meðvitund sína í volki veraldarinnar við brimgný synda og freistinga. Hrópið meðan Hann er að finna heyrist langt í fjarska. Hinir unaðasríku ómar heyrast ekki lengur, því botnlaus leðja veraldarglaumsins lok- aði eyrum og öllum skilningarvitum, sama um allt. Kæruleysið sezt að völdum í hjartanu. En Guð er hinn sami, náðugur og ríkur að miskunn. Hann segir: „Hér er eg, hér er eg — við þá þjóð, er eigi ákallaði Nafn mitt. Jes. 65, 1. Og nú hrópar hinn eilífi Fagnaðarboðskapur til allra: kallið á Hann til Hjálpræðis, sýnið Drottni virðing, Hann einn elskaði að fyrra bragði; fallið fram fyrir hásæti Hans, öll þjóðin, notið tímann, því sjá, sorti grúfir yfir þjóðunum og enginn megnar að frelsa, nema Drottinn, er breiðir út hendur sínar móti þrjóskum börnum, svo reiðin komi ekki yfir land og þjóð, gefið Drottni dýrðina, þvi Hann er mikill Frelsari fyrir alla þá, er á Hann trúa, og Hann blessar sín börn með fi’iði. Það er gott á neyðartímanum að eiga Frelsara frá allri neyð og vita, að Hann ber um- hyggju fyrir þeim, er á Hann vona. Hann þerrar tárin af augum þeirra. Það er vitnisburður allra endurleystra Guðs-barna, að þau fá nýja sjón, til að líta dýrðina, sem þeim er fyrirbúin í Kristi, því Hann hefir snúið við hag þeirra, frá dauða til eilífs lífs. Honum sé dýrðin um aldir alda. Hálldóra S. Einarsdóttir. Jesús sagði: Sanhlega, sannlega segi ég yður: ef nokkur varðveitir mitt Orð, hann skál áldrei að eilífu sjá dauðann. Jóh. 8, 51. Þökk sé Guði fyrir að Hann vakir yfir Orði sínu, til þess að framkvæma það. Þegar Fagnaðarboði nú byrjar þriðja árgang sinn, þökkum vér öllum velunnendum blaðsins og þeim, sem lagt hafa á sig margvíslegt erfiði við útbreiðslu þess, enn fremur þökkum vér gjafimar er blaðinu hafa borizt og biðjum Drottin að blessa ykkur öll og launa eftir rík- dómi sínum og kærleika.

x

Fagnaðarboði

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fagnaðarboði
https://timarit.is/publication/1103

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.