Fagnaðarboði - 01.04.1952, Side 1
■Uvemig Vrollinn leysli Ípéiur úl úr fiangelsinu
En um þessar mundir hóf Heródes konungur
handa til að misþyrma nokkrum af söfnuðinum,
og lét hann höggva Jakob, bróðir Jóhannesar,
með sverði. En er hann sá að Gyðingum líkaði
það vel, hélt hann áfram og lét einnig taka Pétur,
en þá voru dagar ósýrðu brauðanna, og er hann
hafði handtekið hann, lét ‘hann setja hann í fang-
elsi og fékk hann til gæzlu fjórum ferningum
hermanna, og ætlaði hann sér eftir páskana að
leiða hann fram fyrir lýðinn. Pétur var þá hald-
inn í fangelsi, og stöðug bænagjörð til Guðs
var af söfnuðinum haldin fyrir honum. En er
Heródes ætlaði að fara að leiða hann fram, svaf
Pétur þá nótt milli tveggja hermanna, bundinn
tveim fjötrum, og varðmenn fyrir dyrum úti
gættu fangelsisins. Og sjá, þá kom engill Drott-
ins, og ijós skein í klefanum, og hann laust á
síðu Pétri og vakti hann og mælti: Rís upp
skjótt. Og fjötrarnir féllu af höndum honum.
Og engillinn sagði við hann: Gyrð þig og bind
á þig ilskó þína. Og ‘hann gjörði svo. Og Hann
segir við hann: Far þú í yfirhöfn þína og fylg
mér. Og hann gekk út og fylgdi honum, og ekki
vissi hann, að þetta sem engillinn gjörði, væri
svo í raun og veru, heldur hugðist hann sjá sýn.
Og er þeir höfðu gengið fram hjá innri og ytri
verðinum, koma þeir til járnhliðsins, er liggur
til borgarinnar, og laukst það upp af sjálfu sér
fyrir þeim, og fóru þeir út um það og gengu
áfram eitt stræti, og þá skyldi engillinn allt í
einu við hann. Og þegar Pétur kom til sjálfs sín,
sagði hann: Nú veit ég sannlega, að Drottinn
hefur sent engil sinn og hrifið mig úr hendi
Heródesar og frá allri eftirvænting Gyðinga-
lýðs. Og er hann hafði komið þessu fyrir sig,
gekk hann að húsi Maríu, móður Jóhannesar —
að viðurnefni Markús, — en þar voru allmargir
saman komnir og báðust fyrir. En er hann
knúði hurð fordyrisins, gekk stúlka fram, að
nafni Róde, til að vita hver þar væri, og er hún
þekkti málróm Péturs, gáði hún eigi fyrir fögn-
uði að ljúka upp fordyrinu, heldur hljóp hún
inn og sagði, að Pétur stæði fyrir utan fordyrið.
En þeir sögðu við hana: Þú ert frávita. En hún
stóð fast á því, að svo væri. En þeir sögðu: Það
er þá engill hans. En Pétur hélt áfram að berja
að dyrum, og er þeir luku upp, sáu þeir hann
og urðu forviða. En hann benti þeim með hend-
inni að þegja, og skýrði þeim frá, hvernig Drott-
inn hefði leyst sig út úr fangelsinu, og mælti:
'Segið Jakob og bræðrunum frá þessu. Og hann
gekk út og fór í annan stað. En er dagur rann,
varð meira en lítið uppþot hjá hermönnunum
út af því, hvað af Pétri væri orðið. En er Heródes
hafði látið leita hans, og fann hann ekki, hélt
hann rannsókn yfir varðmönnunum og bauð að
fara með þá til lífláts......En Orð Guðs efldist
og útbreiddist. Post. 12.