Fagnaðarboði - 01.03.1961, Qupperneq 4
4
FAGNAÐARBOÐI
Xtmflýið dóm iapaðra
(Þegar ég, í síðasta tölublaði Fagnaðarboða, skrifaði um upprisu heilagra, hafði ég í huga að
minnast síðar, í nokkurs konar framhaldsgrein, lítillega á hinn annan dauða, - eldsdíkið).
Og dauðanum og Helju var kastað í eldsdíkið.
Þetta er hinn annar dauði; eldsdíkið. Og hver, sem
ekki fannst ritaður í lífsins bók, honum var kast-
að í eldsdíJúð. (Opb. 20, 14.)
Opinberun Jóhannesar varðar alla menn. Allir eiga
eftir að birtast fyrir dómstóli Guðs. Allir eiga eftir að
taka sín laun, — sinn BÚSTAÐ, sín FÖÐURHÚS, hvort
heldur menn fara vel eða illa. Verður það hinn annar
dauði, sem við hér ræðum um.
1 Heilagri Ritningu er ekkert það, sem okkur menn-
ina skiptir ekki máli. Þess vegna megum við ekki ganga
fram hjá erindinu til safnaðanna sjö í Asíu. Það er eng-
um efa bundið, að erindið varðar alla menn um víða
veröld, hvar sem Fagnaðarerindið hefir verið og verð-
ur boðað.
Allra kristinna manna verk, er því að gera skil er-
indinu, er Drottinn gaf sínum að vinna að. Gefum því
gætur, hvort kirkjulif okkar tíma eigi nokkuð skylt við
baráttu hinnar fyrstu kristni, Guðs útvöldu, er með
fullkominni elsku til Jesú Krists, Frelsara síns, létu lífið
fyrir Hann sem píslarvottar. Hyggjum einnig að þvi,
hvort við höldum velli í baráttunni, að útrýma öllu því,
sem við vitum, að er Guði mótstæðilegt og þannig höf-
um hugfast, að taka aga Guðs, svo við fáum heilagleika
Hans og staðið sem stríðsmenn á verði gegn óvinarins
veldi, — óvininum og öllum sem með honum berjast
í hinum ýmsu og margbreytilegu myndum hjáguðadýrk-
unarinnar. Það er máske ekki dýrkun stokka og steina,
heldur hinar dulbúnu myndir hjáguðadýrkunarinnar,
beinar afleiðingar andlegs sljóleika gagnvart djöfladýrk-
un þessarar aldar. Mennimir dýrka verk syndarinnar
og dauðans, gera óttalausir sinn vilja. Þeir rangsnúa
Guðs Orðinu sér og öðrum til tortímingar — og útiloka
þannig frá sér Guðsríkið, kraft þess og mátt.
Þegar Jóhannes fær erindi safnaðanna sjö, þá er það
söfnuðurinn í stórborginni Smymu í Tyrklandi, sem fær
hið fullvissandi Orð frá Drottni um það, að sá, er sigrar,
honum muni sá annar dauði alls ekki granda. Eftir
þessu að dæma, hefur söfnuðurinn verið uppfræddur
um hinn annan dauða, og sigurinn væri þeim vís, ef
þeir gættu erindisins, skyldu sinnar við Guð sinn.
Guð er öllum sínum börnum trúr og söfnuðurinn hafði
því alla möguleika, til þess að reka erindi Guðs og sigr-
ast á því, sem Honum var mótstæðilegt.
Hver söfnuður hefir sitt erindi frá Drottni, og hlýtur
svo sina sigra eða vansigra. Þar, sem kristni er eiga
hmirnir sem heild að vera söfnuður, er innir af hendi
erindi Guðs. Það er verk safnaðarins, að vaka yfir fjár-
sjóðum himnaríkis og ávaxta þá til sigurlaunanna, svo
launin verði ekki tjón og tap. Drottinn sýnir söfnuð-
unum sigurlaunin og um leið laun dauðans, hinn annan
dauða, svo þe:r mættu keppa að því, að ná si-gri. Hver
söfnuður gengur svo að sinum launum, þeir eiga að
þekkja sigurmarkið.
Sá, er sigrar, lionum mun hinn. annar dauði alls ekki
granda. (Opb. 2, 11.)
Kristur Drottinn, sem leið krossins kvalir á Golgota,
vissi vel, hvað Hann þurfti að sigra fyrir okkur. Og
það var Hann, sem gaf söfnuðum þetta erindi. Höfum
það hugfast, að erindið er ekki smíð manna, heldur
gefið í kærleika Guðs til Hans elskuðu, er meta eiga
það eitt, að vera Guði trúir, að þjónusta þeirra sé Guði
til dýrðar og þeim sjálfum til vegsemdar á hinum mikla
degi, er Drottinn kemur.
Synd og dauði dæmist myrkur fyrir Guði. Eins er
líka hinn annar dauði óefað Guðs réttlátur dómur, því
dómar Guðs yfir öllu óvinarins verki eru í fullkomnum
sigri kærleikans, af Guði kunngert og gefið til safnað-
anna, sem Jesú Krists sigurverk, að þeir fyrir það,
mættu hljóta sigur.
Óvinur ljóssins kemur í öllum myndum til að fella
og blekkja Guðs börn, ávallt til þess eins, að hafa af
þeim sigurdýrð Krists. En Guðs Sonurinn hefur séð við
öllum blekkingum óvinarins. Og eins og synd og dauði
er óvinarins, er eldsdikið óvinarins heimkynni eftir
verkum hans, að Guðs réttlátum dómum. 1 Opinber-
unarbókinni 20. kap. 14. versi er þetta skýrt tekið fram.
Þetta er Júnn annar dauði; eldsdikið.
Það er réttlátur dómur Guðs yfir óvininum og verk-
um hans.
En Guð vill ekki, sakir kærleika sins, að mennirnir
hreppi dauðans dóm. Þess vegna vísar Hann syndara
veginn. Öllum þeim, sem trúna taka og sannleikanum
hlýðnast hefir Guð búið samastað með sér fyrir Jesúm
Krist.